Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

737. fundur
12. október 2015 kl. 16:00 - 17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Skipulagsnefnd - 9
Málsnúmer 1509002F
Gunnlaugur Rúnar fór yfir fundargerðina.

Fundargerð samþykkt.
2.
Umhverfisnefnd - 9
Málsnúmer 1509014F
Bryndís fór yfir fundargerðina.

Fundargerð samþykkt.
3.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 180
Málsnúmer 1510001F
Fundargerð samþykkt.
4.
Almannavarnanefnd - 52
Málsnúmer 1411006F
Fundargerð samþykkt.
5.
Verkefnastjóri við skólaskrifstofu
Málsnúmer 201510035
Fræðslustjóri fór yfir vinnu verkefnastjóra skólaskrifstofu sem var ráðinn tímabundið fyrir árið 2015.
Fræðslustjóri fór yfir skýrslu verkefnastjóra og ósk um áframhaldandi starf verkefnastjóra við skólaskrifstofu. Umræður sköpuðust um varanlega eða tímabundna stöðu verkefnastjóra. Bæjarráð er sammála um þörf fyrir aukið stöðugildi hjá skólaskrifstofu. Í ljósi ákvörðunar bæjarráðs frá fundi 16. mars um að tíminn næsta skólaár verði notaður til endurskoðunar á stjórnskipulagi grunnskóla og rekstur þeirra, leggur formaður til að framlengja tímabundna ráðningu verkefnastjóra til loka árs 2016. Ásgerður telur að það ætti að fara í ótímabundna ráðningu nú um áramót þar sem verkefnin eru ærin og gott að fá fastan starfsmann í starfið.
Meirihluti bæjarráðs vill framlengja tímabundna ráðningu út árið 2016. Ásgerður greiðir atkvæði gegn tillögunni. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
6.
umsögn um frumvarp til laga um náttúrvernd
7.
Ágóðahlutagreiðsla EBÍ 2015
Málsnúmer 201510030
Hlutdeild Hornafjarðar er 804.000 kr.
8.
Fundargerðir SASS 2015
Málsnúmer 201501065
Fundargerð SASS nr.498
Fundargerð lögð fram til kynningar.
9.
Aukaaðalfundur Samorku 16.okt 2015
Málsnúmer 201510016
Samorka boðar til aukaaðalfundar 16. október að beiðni nokkurra aðildarfélaga. Boðað er til fundarins vegna hugmynda um aukna virkni félagsins. Sérstaklega er horft til aukningu á upplýsingargjöf til aðildarfélaga sem hefði í för með sér aukinn rekstrarkostnað. Einnig eru tillögur að lagabreytingum til umfjöllunar á fundinum.
Lagt fram til kynningar.