Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

745. fundur
7. desember 2015 kl. 16:00 - 17:50
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Umhverfisnefnd - 11
Málsnúmer 1511014F
Bæjarráð samþykkir breyttan opnunartíma sorpmóttöku frá og með 1. febrúar 2016. Fundargerð samþykkt.
2.
Skipulagsnefnd - 11
Málsnúmer 1511003F
Fundargerð samþykkt.
3.
Uppbygging við Fjallsárlón
Málsnúmer 201512023
Forsvarsmenn Fjallsárlóns ehf. kynntu fyrirhugaða uppbyggingu við Fjallsárlón. Rætt um framkvæmdina og framkvæmdahraða. Bæjarráð leggur áherslu á að fjöldi snyrtinga verði ekki vanmetinn. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við uppbyggingaráformin.
4.
Samstarfssamningur um menningarmiðstöð Hornafjarðar
Málsnúmer 201512025
Samstarfsamningur Hornafjarðarsafna/Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga lagður fram.
Lagt fram til kynningar.
5.
Gjaldskrá Tónskóla A-Skaft 2015-2016
Málsnúmer 201511064
Lagt fram til kynningar.
6.
Gjaldskrár fræðslu- og tómstundanefndar 2016
Málsnúmer 201510045
Lagt fram til kynningar.
7.
Verkefnisstjórn fyrir hagsmunagæslu í úrgangsmálum
Málsnúmer 201512006
Lagt fram til kynningar. Bryndís Bjarnarson umhverfisfulltrúi hefur verið skipuð varamaður í verkefnisstjórn fyrir hagsmunagæslu í úrgangsmálum.
8.
Hringvegurinn um Hornafjarðarfljót
Málsnúmer 201501018
Erindi frá Vegagerðinni dags. 23. nóvember lagt fram.
Skipulagsnefnd óskaði eftir því að Vegagerðin gætti að umferðaröryggi t.d. með hringtorgi á þjóðvegi 1 og Hafnarveg. Vegagerðin telur að umferðaröryggi verði jafn vel tryggt með stefnugreindum T- vegamótum við Hafnarveg. Þá óskar Vegagerðin eftir að gera áningastað syðst í Skógey.
Erindi vísað til skipulagsnefndar og umhverfisnefndar.
9.
Hljóð og mynd í sal/miðrými
Málsnúmer 201512015
Bæjarráð samþykkir þátttöku á kaupum á búnaði í sal Nýheima. Hluta upphæðar, 1.100 kr., eru á óráðstöfuðu. Það sem uppá vantar rúmast innan fjárhagsáætlunar 2015.
10.
Verkefnastjóri almannavarna á Suðurlandi
Málsnúmer 201512014
Beiðni frá Lögreglustjóranum á Suðurlandi um þátttöku sveitarfélagsins vegna ráðningu verkefnastjóra til eflingar almannavarna.
Bæjarráð samþykkir þátttöku í verkefninu. Kostnaður vegna ársins 2015 rúmast innan áætlunar. Starfsmönnum falið að koma með tillögu vegna ársins 2016.
11.
Rekstur og fjármagn til Fræðslunetsins og Háskólasamfélagsins í Austur- Skaftafellssýslu
Málsnúmer 201512008
Bæjarráð harmar þá staðreynd sem upp er komin að minnka eigi starfshlutfall í starfsstöð Fræðslunetsins og Háskólafélagsins á Höfn. Einnig hafa verið settar álögur á nemendur sem nýta sér þjónustuna sem getur virkað letjandi á nýtingu aðstöðunnar og dregið úr hvata til náms.
12.
Jöklavagnar leyfi til að staðsetja veitingavagn á lóð sveitarfélagsins
Málsnúmer 201512007
Erindi frá Jöklavögnum ehf. dags. 24. nóvember um leyfi til að setja upp veitingarvagn sumarið 2016.
Bæjarráð vísar erindinu til hafnarstjórnar og atvinnumálanefndar.
13.
Rekstur þjónustukjarna á vesturbakka Jökulsárlóns
Málsnúmer 201512026
Erindi frá Jöklavögnum ehf. dags. 24. nóvember, ósk um samstarf um rekstur þjónustukjarna við vesturbakka Jökulsárlóns, veitingavagn, almenningssalerni og upplýsingagjöf. Bæjarráð vísar í fyrri afgreiðslur umsókna á vesturbakka Jökulsárlóns og hafnar því erindinu.
14.
Beiðni um styrk vegna samstarfsverkefnisins Bændur græða landið
Málsnúmer 201511056
Erindi frá Landgræðslu Ríkisins dags. 15. nóvember lagt fram.
Óskað er eftir styrk 60.000 kr. styrk til verkefnisins.
Bæjarráð samþykkir þátttöku í verkefninu.