Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

750. fundur
18. janúar 2016 kl. 16:00 - 17:35
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Skipulagsnefnd - 12
Málsnúmer 1512011F
Fundargerð samþykkt.
2.
Umhverfisnefnd - 12
Málsnúmer 1512009F
Fundargerð samþykkt.
3.
Atvinnumálanefnd - 13
Málsnúmer 1601005F
Fundargerð samþykkt.
4.
Hringvegurinn um Hornafjarðarfljót
Málsnúmer 201501018
Umhverfisnefnd og skipulagsnefnd hafa tekið erindi Vegagerðarinnar til umfjöllunar.
Umræður um útfærslu vegamóta og áningarstaðar við Hafnarveg. Vegagerðin leggur til að lögð verði stefnugreind T-vegamót. Hringtorg eru almennt öruggari kostur en miðað við umferðarmagn á umræddu svæði eru T-vegamót fullnægjandi að mati Vegagerðarinnar. Hringtorg þarfnast umtalsvert meira landssvæðis auk þess að vera dýrari kostur.
Bæjarráð samþykkir tillögu Vegagerðarinnar um tvenn stefnugreind T-vegamót sem verða upplýst. Um er að ræða samfelda lýsingu milli þessara tveggja T-vegamóta. Einnig rætt um upplýstan áningarstað vestan megin við Hafnarveg og ýmsar aðgerðir sem dregið geta úr umferðarhraða við vegamót. Sveitarfélagið fær endanlega hönnun til umsagnar.
5.
Útleiga á íbúð Hofgarði
Málsnúmer 201601049
Ernidi dags. 13. janúar frá eigendum Fjallsárlóns ehf. þar sem óskað er eftir að fá leigða íbúð í Hofgarði í sumar líkt og síðasta sumar.
Bæjarráð samþykkir að leigja íbúðina í sumar og felur starfsmönnum að ganga frá leigu.
6.
Skipulagsbreytingar hjá SASS
Málsnúmer 201512057
Farið var yfir aðdraganda og stöðu mála í skipulagsbreytingum hjá SASS. Bæjarráð harmar það að nú einum mánuði eftir að breytingar voru settar fram skuli mál atvinnuráðgjafa á svæðinu enn vera í lausu lofti. Ekkert hefur komið fram á áþreyfanlegan hátt sem tryggir það ferli sem kynnt var í lok desember um að gerður verði samningur við Nýheima Þekkingarsetur Bæjarráð óskar eftir fundi með formanni og framkvæmdastjóra SASS sem fyrst þar sem farið verður yfir stöðu mála.
7.
Vinna um samræmda lóðaafmörkun
Málsnúmer 201601046
Erindi lagt fram frá Sambandi Íslenskra Sveitarfélaga dags. 8. janúar.
Lagt fram til kynningar.
8.
Umsögn um tækifærisleyfi Bautinn ehf
Málsnúmer 201601024
Erindi frá Sýslumanni dags. 8. janúar þar sem óskað er eftir tímabundnu áfengisleyfi og dansleik fyrir Þorrablót Hafnar.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
9.
Gjalddagar fasteignagjalda
Málsnúmer 201601057
Lagt er til að gjalddögum fasteignagjalda verði fjölgað úr fimm í átta. Ef álagning er undir 30 þkr. verði ekki um dreifingu gjalddaga að ræða. Einnig verði 2%staðgreiðsluafsláttur lagður af. Óski fyrirtæki eftir að greiða heildarupphæð í einni greiðslu miðast það við fyrsta gjalddaga, þ.e. 1. febrúar.
Bæjarráð samþykkir framlagðar tillögur.
10.
Reglur um afslátt fasteignaskatts
Málsnúmer 201601054
Bæjarráð samþykkir reglur um afslátt fasteignaskatts.
11.
Samningur um rekstur Náttúrustofu Suðausturlands
Málsnúmer 201601050
Lögð fram drög samnings um rekstur Náttúrustofu Suðausturlands. Bæjarstjóra heimilað að skrifa undir samning.