Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

753. fundur
8. febrúar 2016 kl. 16:00 - 17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Umhverfisnefnd - 13
Málsnúmer 1601014F
Umræður um stöðu sorpmála í sveitarfélaginu.
Fundargerð samþykkt.
2.
Skipulagsnefnd - 13
Málsnúmer 1601010F
Fundargerð samþykkt.
3.
Reglur og gjaldskrá um útleigu á húsnæði í eigu sveitarfélagsins
Málsnúmer 201504035
Reglur og gjaldskrá um útleigu á húsnæði í eigu sveitarfélagsins lagðar fram. Bæjarráð leggur til að fella niður aldurstakmörk gesta í 2. grein reglnanna en aldurstakmörk leigutaka haldist óbreytt. Jafnframt er lagt til að bæta við 3. grein að öll neysla áfengis er bönnuð.
Samþykkt að vísa reglunum til staðfestingar bæjarstjórnar.
4.
Fjölbreytni í ferðaþjónustu í Suðursveit
Málsnúmer 201602011
Erindi frá Bjarna M. Jónssyni dags. 1.febrúar 2016 lagt fram. Óskað er eftir staðfestingu sveitarfélagsins vegna umsóknar til uppbyggingar á ferðamannastöðum.
Bæjarráði lýst vel á hugmyndir um aukna afþreyingu ferðamanna á svæðinu. Bæjarráð bendir á að nauðsynlegt er að vinna skipulag á svæðinu.
5.
Rammasamningur um innkaup á tetra farstöðvum
Málsnúmer 201602002
Bæajarráð samþykkir þátttöku í útboði og rammasamningi í samvinnu við Neyðarlínuna.
6.
Umsögn um útgáfu leyfa Localguide ehf
Málsnúmer 201601077
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
7.
Umsögn um útgáfu leyfa Árshátíð FAS 2016
Málsnúmer 201602018
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
8.
Framkvæmdir við Hornafjarðarflugvöll
Málsnúmer 201601074
Farið yfir bréf frá Isavia þar sem fram koma viðbrögð við bókun bæjarráðs dags. 25. janúar. Bæjarráð þiggur boð fulltrúa Isavia að koma til fundar með bæjarráði. Bæjarstjóra falið að finna hentugan fundartíma.