Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

755. fundur
22. febrúar 2016 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Menningarmálanefnd - 15
Málsnúmer 1602009F
Fundargerð samþykkt.
2.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 16
Málsnúmer 1602005F
Umræður um tillögu að breyttu stjórnskipulagi í Grunnskóla Hornafjarðar. Bæjarráð vísar breytingu á stjórnskipulagi Grunnskóla Hornafjarðar til bæjarstjórnar.
Rætt um starfsmannamál á Lönguhólum. Bæjarráð tekur undir áhyggjur nefndarinnar af stöðu mála. Fræðslustjóri og leikskólastjóri vinna að lausn.
Fundargerð samþykkt.
3.
Breytingar í leikskólamálum á Höfn
Málsnúmer 201602046
Fræðslustjóri fór yfir ferlið og umræður á fundi fræðslu- og tómstundarnefndar. Farið yfir þá valkosti sem eru í stöðunni. Afgreiðslu málsins frestað til næsta fundar.
4.
Ósk um áheyrnafulltrúa í nefndnum sveitarfélagsins
Málsnúmer 201512035
Fulltrúar ungmennaráðs sátu fundinn undir þessu lið.
Ungmennaráð gerði grein fyrir hugmyndum sínum varðandi áheyrnarfulltrúa í nefndum sveitarfélagsins.
Umræður um mögulegt fyrirkomulag. Ungmennaráð sendir bæjarráði tillögur að skipan áheyrnarfulltrúa í nefndir.
5.
Öldrunarrannsókn
Málsnúmer 201508027
Erindi frá Janus heilsuefling slf. dags. 8. febrúar þar sem óskað er eftir vilyrði til að taka þátt í verkefninu "Fjölþætt heilsurækt í sveitarfélögum - leið að farsælli öldrun".
Matthildur fór yfir í hverju þátttaka sveitarfélagsins felst. Verkefnið snýst um að koma á fót íhlutun í nokkrum sveitarfélögum á Íslandi sem snýr að fjölþættri heilsurækt fyrir eldri aldurshópa 65 ára.
Bæjarráð samþykkir þátttöku í verkefninu að því gefnu að ríkið standi við loforð um sinn hluta fjármögnunar og næg þátttaka náist.
Árlegt framlag sveitarfélagsins er 4,5 milljónir á ári næstu þrjú árin. Bæjarráð leggur til að fjármögnun þessa árs verði tekin af rekstrarafgangi ársins.
6.
Ósk um breytingu á aðalskipulagi Hagatún 1
Málsnúmer 201602059
Bæjarráð vísar erindinu til skipulagsnefndar.
7.
Verkefni til fjölgunar leiguíbúða
Málsnúmer 201602052
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu verkefnisins. Búið er að leita til arkitektastofu um heildarhönnun svæðisins með teikningar að þremur til fimm húsum með fimm íbúðum hvert. Hugmyndir eru um stofnun leigufélags til að halda utan um þessar byggingar. Bæjarstjóra heimilað að kanna aðkomu mögulegra fjárfesta að verkefninu.