Bæjarráð Hornafjarðar
760. fundur
4. apríl 2016
kl.
16:00
-
17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Atvinnumálanefnd - 16
Fundargerð samþykkt.
2.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 184
Fundargerð samþykkt.
3.
Umsögn um útgáfu leyfa Íslandshótel
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
4.
Umsögn um útgáfu leyfa Hafnarbraut 20
Bæjarráð bendir á að umsækjandi hefur ekki skilað inn teikningum eins og getið er um í 22. gr. reglugerðar um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Einnig kveða reglur sveitarfélagsins á um að hámark gesta sé allt að 16, en sótt er um fyrir allt að 20 gesti.
Bæjarráð getur ekki gefið umsögn um útgáfu leyfisins.
Bæjarráð getur ekki gefið umsögn um útgáfu leyfisins.
5.
Umsögn um útgáfu leyfa Dalbraut 4
Bæjarráð bendir á að umsækjandi hefur ekki skilað inn teikningum eins og getið er um í 22. gr. reglugerðar um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.
Bæjarráð getur ekki gefið umsögn um útgáfu leyfisins.
Bæjarráð getur ekki gefið umsögn um útgáfu leyfisins.
6.
Umsögn um útgáfu leyfa Höfðavegur 3
Bæjarráð bendir á að umsækjandi hefur ekki skilað inn teikningum eins og getið er um í 22. gr. reglugerðar um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.
Bæjarráð getur ekki gefið umsögn um útgáfu leyfisins.
Bæjarráð getur ekki gefið umsögn um útgáfu leyfisins.
7.
Deiliskipulag Moto-cross braut
Skýrsla um hljóðmælingar frá Eflu verkfræðistofu lögð fram.
Bæjarráð vísar málinu til skipulagsnefndar.
8.
Deiliskipulag skotsvæði Höfn
Skýrsla um hljóðmælingar frá Eflu verkfræðistofu lögð fram.
Bæjarráð vísar málinu til skipulagsnefndar.
9.
Umsókn um lóð, Ægissiða 11
Bæjarráð mælir með að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
10.
Umsögn um tækifærisleyfi tímabundið áfengisleyfi, kúttmagakvöld, Lionsklúbbur Hornafjarðar
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
11.
Aðalfundur Sláturfélagsins Búa svf
Fundarboð frá Sláturfélaginu Búi svf. dags. 22. mars.
Aðalfundur Búa verður haldinn 6. apríl nk. Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með atkvæði sveitarfélagsins á fundinum. Jafnframt hvetur bæjarráð alla áhugasama að mæta á fundinn.
12.
Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu Bjarnanesvegar
Erindi frá Vegagerðinni dags. 30. mars lagt fram.
Bréf frá Vegargerðinni lagt fram til kynningar þar sem tilkynnt er um fyrirhugaða niðurfellingu Bjarnarnesvegar 9775-01 af vegaskrá þar sem ekki er lengur föst búseta þar. Bæjarráð óskar eftir að starfsmenn staðfesti að um réttan veg sé að ræða þar sem meðfylgjandi gögn eru óskýr.
13.
Jarðstöð í landi Hafnarnes
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá kaupum á jarðstöð í landi Hafnarness með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar á viðauka við fjárhagsáætlun. Starfsmönnum fjármálasviðs falið að undirbúa viðauka þar sem kaupverð kemur til lækkunar á áætluðum rekstrarafgangi ársins.