Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

764. fundur
2. maí 2016 kl. 16:00 - 17:25
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Atvinnumálanefnd - 17
Málsnúmer 1604010F
Árdís fór yfir fundargerð atvinnumálanefndar. Rætt um 2. lið í dagskránni vegna landsáætlunar um uppbyggingu innviða og er verkefnið skilgreint frekar opið. Beðið er eftir nánari skilgreiningu frá Sambandi sveitarfélaga á Íslandi á því hvernig aðkoma sveitarfélaga verður að þessu verkefni. Ásgerður spurði út í 1. lið og þar er tillaga um að stofna starfshóps vegna Jökulheima. Bæjarráð vísar hugmynd um starfshóp til umræðu í Menningarmálanefnd.
Árdís taldi mikilvægt að vinna heildarsýn Jöklaleiðar og að allir verði að vinna að framgangi þeirra verka sem fengið hafa styrk úr sjóðnum.
Fundargerð samþykkt.
2.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 185
Málsnúmer 1604009F
Björn Ingi upplýsti að Skinney Þinganes hefur skrifað undir samkomulag við Sjávarútvegsskólann 2016 og verið er að skoða með hvaða hætti aðkoma sveitarfélagsins verður að verkefninu.
Fundargerð samþykkt.
3.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 15
Málsnúmer 1604014F
Haldinn var fundur á Selfossi með stjórnendum HSU, fulltrúum Sjúkratrygginga Íslands og Velferðarráðuneytis. Beðið er eftir formlegu samningsumboði frá heilbrigðisráðherra til að hefja viðræður við gerð nýs þjónustusamnings.
Fundargerð samþykkt.
4.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 19
Málsnúmer 1604011F
Fundargerð samþykkt.
5.
Ársreikningur 2015 Heilbrigðisstofnunar HSU Hornafirði
Málsnúmer 201604082
Afkoma af rekstri stofnunarinnnar á árinu 2015 var neikvæð um 8.394 þús.kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé stofnunarinnar í árslok var neikvætt um 8.5 millj.kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Launakostnaður hækkaði verulega á árinu, eða um rúmar 40 milljónir, í kjölfar gerð kjarasamninga og launabætur duga ekki til að mæta þeirri hækkun. Stöðugildi við stofnunina á árinu 2015 voru 49 að meðaltali en voru 48,5 árið 2014.
Framlögðum ársreikningi vísað til bæjarstjórnar.
6.
Ungmennaráð óskar eftir skuggakosningum 2016
Málsnúmer 201603078
Ungmennaráð óskaði eftir að skuggakosningar verði fyrir ungt fólk í Sveitarfélaginu Hornafirði samhliða forsetakosningum 25. júní 2016.
Bæjarráð fagnar áhuga ungmennaráðs á að það fari fram skuggakosningar samhliða forsetakosningum í vor. Bæjarráð felur starfsmönnum að útbúa reglur um framkvæmd skuggakosninga og telur mikilvægt að öll ungmenni eigi kost á þátttöku í kosningunum.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu í bæjarstjórn.
7.
Eftirlitsskýrsla HAUST v. Gámasvæðis
Málsnúmer 201604108
Eftirlitskýrsla Heilbrigðiseftirlits Austurlands vegna Gámasvæðis sveitarfélagsins lögð fram.
Í skýrslunni kemur fram að þörf er á ýmsum lagfæringum við Gámasvæði.
Skýrslunni vísað til kynnaingar í Umhverfisnefnd.
Bæjarráð felur starfsmönnum svara athugasemdum og ábendingum sem fram koma í skýrslunni.
8.
Sameining sveitarfélaga
Málsnúmer 201604109
Lagt fram minnisblað þar sem lagt er til að kannaður verið áhugi nágranna sveitarfélaganna á möguleikum og hagkvæmni í sameiningu sveitarfélaganna Djúpavogshrepps, Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Skaftárhrepps.
Bæjarráð vísar málinu til umræðu í bæjarstjórn.
9.
Innkaupareglur Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 201604088
Björn Ingi kynnti helstu breytingar á innkaupareglum sveitarfélagsins.
Bæjarráð leggur til að við reglurnar verði bætt ákvæði er varðar undirverktaka og að farið sé að kjarasamningum.
Bæjarstjóra falið að útfæra reglur og leggja fyrir bæjarráð.
10.
Umsögn um breyting á rekstrarleyfi Seljavellir ehf
Málsnúmer 201604066
Erindi frá sýslumanninum á Suðurlandi dags. 18. apríl þar sem óskað er eftir umsögn um leyfi fyrir gistiheimili fyrir Gistihúsið Seljavelli.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við breytingu á rekstraleyfi fyrir Seljavelli ehf.
11.
Umsögn um útgáfu leyfa Funi ehf
Málsnúmer 201604075
Erindi frá Sýslumanni dags. 20. apríl þar sem óskað er eftir umsögn um leyfi fyrir íbúðargistingu að Víkurbraut 2.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
12.
Umsögn um útgáfu leyfa Sigríður Guðbjörg Garðarsdóttir
Málsnúmer 201604074
Erindi frá Sýslumanni dags. 20. apríl þar sem óskað er eftir umsögn um rekstarleyfi fyrir heimagistingu að Dalbraut 8.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins. Bæjarráð bendir jafnframt á að, ávallt skal í það minnsta einn af heimilismönnum búa á heimilinu og gegna hlutverki næturvarðar skv. 10. gr. reglugerðar um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr.585/2007.
13.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfi Suðursveit ehf
Málsnúmer 201603025
Erindi frá Sýslumanni dags. 8. mars þar sem óskað er eftir umsögn um rekstarleyfi fyrir gistingu í flokki II að Reynivöllum II.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.

14.
umsókn un nýtt rekstrarleyfi Vesturhús ehf
Málsnúmer 201604033
Erindi frá Sýslumanni dags. 7. apríl þar sem óskað er eftir umsögn um rekstarleyfi fyrir gistiskála í Gistihúsinu Vesturhús.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.