Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

766. fundur
17. maí 2016 kl. 13:00 - 14:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 272
Málsnúmer 1605004F
Félagsmálastjóri fór yfir fundargerð.
Fundargerð samþykkt.
2.
Skólaakstur 2016-2021 - Útboð
Málsnúmer 201604056
Drög að útboðsgögnum 2016 til 2021 lögð fram.
Bæjarstjóri fór yfir gögn vegna útboðs á skólaakstri um er að ræða akstur frá hausti 2016 fram á vor 2021.
Bæjarráð samþykkir að bjóða út skólaakstur og felur fræðslustjóra að auglýsa útboðið.
3.
Vinnuskóli 2016, laun
Málsnúmer 201605031
Tillaga að launum vinnuskóla lögð fram.
Bæjarráð samþykkir að festa laun vinnuskóla við launaflokk 115 skv. kjarasamningi sveitarfélaga við Afl. 14 ára fá 40% af umræddum launaflokki, 15 ára fá 50% og 16 ára 60%.
4.
Sameining sveitarfélaga
Málsnúmer 201604109
Bréf til Skaftárhrepps og Djúpavogshrepps lögð fram.
Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála.

Bæjarráð tilnefnir eftirtalda aðila í samráðsnefnd;
Björn Inga Jónsson, Sæmund Helgason og Ásgerði K. Gylfadóttur.
5.
Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 201603072
Drög að umhverfisstefnu lögð fram til kynningar og umræðu.
Farið yfir drög að umhverfisstefnu sveitarfélagsins og athugasemdum verður komið á framfæri við starfsmann umhverfisnefndar.
6.
Umsögn um útgáfu leyfa Snæbjörg Guðmundsdóttir
Málsnúmer 201605046
Erindi frá Sýslumanni dags. 11. maí þar sem óskað er eftir umsögn um rekstarleyfi fyrir heimagistingu að Lækjarhúsum Suðursveit.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfis.
7.
Umsögn um útgáfu fyrir nýtt rekstarleyfi
Málsnúmer 201605041
Erindi frá Sýslumanni dags. 2. maí þar sem óskað er eftir umsögn um rekstarleyfi fyrir heimagistingu að Sauðanesi Nesjum.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfis.
8.
Umsögn um útgáfu tækifærisleyfis fyrir sjómannadagsráð
Málsnúmer 201605036
Erindi frá Sýslumanni dags. 9. maí þar sem óskað er eftir umsögn um tækifærisleyfi fyrir sjómannadagsráð vegna skemmtunnar að kvöldi sjómannadags.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfis.
9.
Fundargerðir SASS 2016
Málsnúmer 201602042
Fundargerðir Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga nr. 507 og 508 lagðar fram til kynningar.
Bæjarráð tekur undir áhyggjur SASS um alvarlega fjárhagsstöðu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU). Með síauknum fjölda ferðamanna hefur álagið á heilbrigðiskerfið stóraukist. Ljóst er að endurskoða þarf fjárframlög til heilbrigðisþjónustu í ljósi rekstrarerfiðleika og aukinna verkefna.