Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

767. fundur
23. maí 2016 kl. 16:00 - 17:25
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Sæmundur Helgason 1. varamaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Menningarmálanefnd - 17
Málsnúmer 1605008F
Bryndís fór yfir fundargerð
Fundargerð samþykkt.
2.
Humarhátíð 2016
Málsnúmer 201605011
Umræður um fyrstu drög að dagskrá Humarhátíðar 2016. Bæjarráð óskar eftir að forsvarsmenn Humarhátíðarnefndar komi á næsta bæjarráðsfund.
3.
Sindrabær Endurbætur 2016
Málsnúmer 201604059
Björn Imsland fór yfir tilboð sem bárust.
Eitt tilboð barst í verkið frá H.Christensen ehf.
Bæjarráð felur umsjónarmanni fasteigna að ræða við tilboðsgjafa vegna fráviks í tilboði og verktíma. Afgreiðslu frestað um viku.
4.
Endurbætur í Vöruhúsi
Málsnúmer 201505034
Björn Imsland fór yfir tilboð sem barst.
Eitt tilboð barst í verkið frá Þingvað ehf.
Bæjarráð felur umsjónarmanni fasteigna að ræða við tilboðsgjafa vegna fráviks í tilboði og verktíma. Afgreiðslu frestað um viku.
5.
Kosning í kjördeildir
Málsnúmer 201605027
Kjósa þarf í kjördeildir vegna forsetakosningar í júní.
Sveitarfélagið er fimm kjördeildir og fimm kjörstaðir Lón, Nes, Höfn, Mýrar, Suðursveit og Öræfi.
Umræður um hvort rétt væri að gera sveitarfélagið að einni kjördeild með fjórum kjörstöðum. Erfiðlega hefur gengið að manna kjördeild í Lóni í undanförnum kosningum og einungis eru 26 á kjörskrá þar.
Starfsmönnum falið að fara yfir málið og skoða áhrif þess.
Málinu vísað til næsta fundar bæjarráðs.
6.
Íbúðarlóðir Hofi Öræfum
Málsnúmer 201604081
Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála og næstu skref í málinu. Bæjarráð samþykkir framlögð drög og felur bæjarstjóra að skrifa undir samning.
7.
Ársreikningur Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs
Málsnúmer 201605048
Ársreikningar lagðir fram
Vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.
8.
Umsögn um útgáfu leyfa Mjólkurstöðin ehf
Málsnúmer 201605061
Erindi frá Sýslumanni dags. 1. maí þar sem óskað er eftir umsögn um rekstarleyfi fyrir gististað í flokki II að Dalbraut 2.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfis.
9.
Umsögn um útgáfu leyfa tímabundið áfengisleyfi Sjómannadagur 2016
Málsnúmer 201605045
Erindi frá Sýslumanni dags. 11. maí þar sem óskað er eftir umsögn um tímabundið áfengisleyfi vegna sjómannadansleiks í íþróttarhús Höfn.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfis.
10.
Umsögn um útgáfu leyfa Local Langoustine ehf
Málsnúmer 201605062
Erindi frá Sýslumanni dags. 18. maí þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi vegna veitingastaðar í flokki I.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfis.
11.
Endurskoðun á samningi Umhverfisstofnunar og sveitarfélaga um refaveiðar 2014-2016
Málsnúmer 201605060
í 9. gr samnings milli Umhverfisstofnunar og sveitarfélagsins kemur fram að enduskoða eigi samninginn árlega m.t.t. samningsfjárhæðar fyrir árin 2015 og 2016 og birta sem viðauka við samninginn.Umhverfisstofnun hefur ákveðið 5% tímabundna hækkun á endurgreiðsluhlutfalli hvers sveitarfélags árið 2016
Lagt fram til kynningar.