Bæjarráð Hornafjarðar
768. fundur
30. maí 2016
kl.
16:00
-
18:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Sæmundur Helgason
1. varamaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 186
Fundargerð samþykkt.
2.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 16
Fundargerð samþykkt.
3.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 20
Fundargerð samþykkt.
4.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 21
Fundargerð samþykkt.
5.
Humarhátíð 2016
Gunnar Ingi mætti á fundinn fyrir hönd humarhátíðarnefndar og fór yfir skipulag hátíðarinnar 2016. Umræða skapaðist um hvort ætti að færa tímasetningar hátíðarinnar.
6.
Skólalóð við Hafnarskóla
Lögð fram hugmynd að skipulagi á skólalóð Grunnskóla Hornafjarðar
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að endurbótum á skólalóð Hafnarskóla, nánar tiltekið á litla vellinum sbr. teikningar, að upphæð kr. 5 mkr. Lögð er áhersla á að staðsetning og fallvarnir uppfylli allar öryggisreglur. Jafnframt óskar bæjarráð eftir heildrænni endurskipulagningu á lóð skólans áður en frekari ákvarðanir verða teknar. Fjármálastjóra og bæjarstjóra falið að undirbúa viðauka við fjárhagsáætlun þar sem upphæðin verður tekin af áætluðum rekstrarafgangi.
7.
Beiðni frá fimleikadeild Sindra
Bæjarráð samþykkir áframhaldandi samnýtingu skólaaksturs og fimleikaaksturs sbr. útboð á skólaakstri.
Bæjarráð vísar erindi fimleikadeildar er snýr að húsvörslu til úrvinnslu hjá starfsmönnum.
Bæjarráð vísar erindi fimleikadeildar er snýr að húsvörslu til úrvinnslu hjá starfsmönnum.
8.
Mönnun Lönguhóla, haust 2016
Bæjarráð tekur undir áhyggjur vegna starfmannamála og að vegna manneklu á leikskólum sveitarfélagsins geti reynst nauðsynlegt að skerða þjónustu. Á meðan þessi staða er uppi í starfsmannamálum er bæjarráð tilbúið að veita börnum starfsmanna á leikskólum forgang vegna biðlista og verulegan afslátt af grunngjaldi. Bæjarráð felur fræðslustjóra og bæjarstjóra að útbúa reglur vegna þessa.
9.
Unglingalandsmót 2019
Bæjarráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkir að sækja um að halda unglingalandsmót UMFÍ 2019 í samvinnu við USÚ. Bæjarstjóra falið að fylgja málinu eftir.
10.
Fundir bæjarstjórnar og bæjarráðs sumarið 2016
Bæjarráð samþykkir framlögð drög og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarstjórn.
11.
Umsögn um útgáfu leyfa endurnýjun fyrir veitingastað Ís og ævintýri
Erindi frá Sýslumanni dags. 23. maí þar sem óskað er eftir umsögn um endurnýjun rekstarleyfis veitingastaðar í flokki II.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfis.
12.
Umsókn um endurnýjun og breytingu á rekstarleyfi
Erindi frá Sýslumanni dags. 6. maí þar sem óskað er eftir umsögn um endurnýjun og breytingu á rekstarleyfis í flokki V.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfis.
13.
Umsögn um útgáfu leyfa endurnýjun og breyting Hótel Jökull ehf
Erindi frá Sýslumanni dags. 23. maí þar sem óskað er eftir umsögn um endurnýjun rekstarleyfis í flokki V.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfis.
14.
Umsögn um útgáfu leyfa Brunnhóll ehf
Erindi frá Sýslumanni dags. 15. maí þar sem óskað er eftir umsögn um rekstarleyfis í flokki V.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfis.
15.
Umsögn um útgáfu leyfa Litlahorn ehf
Erindi frá Sýslumanni dags. 26. maí þar sem óskað er eftir umsögn um rekstarleyfis veitingastaðar í flokki I.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfis.
16.
Umsókn um lóð, Kirkjubraut 9
Umsókn Grétars Vilbergssonar um lóð að Kirkjubraut 9 lögð fram.
Bæjarráð mælir með að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
17.
Umsókn um lóð, Borgartún 1
Umsókn Hótels Vatnajökulls ehf um lóð að Borgartúni 1 lögð fram.
Bæjarráð mælir með að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
18.
Umsókn um lóð, Borgartún 2
Umsókn Hótels Vatnajökuls ehf. um lóð að Borgartúni 2 lögð fram.
Bæjarráð mælir með að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
19.
Umsókn um lóð, Borgartún 3
Umsókn Hótels Vatnajökuls ehf. um lóð að Borgartúni 3 lögð fram.
Bæjarráð mælir með að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
20.
Umsókn um lóð, Borgartún 4
Umsókn Hótel Vatnajökuls ehf. um lóð að Borgartúni 4 lögð fram.
Bæjarráð mælir með að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
21.
Umsókn um lóð, Borgartún 12
Umsókn Fjallsárlóns ehf um lóð að Borgartúni 12 lögð fram.
Bæjarráð mælir með að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
22.
Ársskýrsla HAUST 2015
Lagt fram til kynningar.
23.
Ársreikningur NATTSA 2015
Lagt fram til kynningar.
Bæjarráð vísar ársreikningi NATTSA 2015 til kynningar í bæjarstjórn.
Bæjarráð vísar ársreikningi NATTSA 2015 til kynningar í bæjarstjórn.