Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

769. fundur
6. júní 2016 kl. 15:00 - 17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Sæmundur Helgason 1. varamaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Umhverfisnefnd - 17
Málsnúmer 1605005F
Farið yfir fundargerð.
1. 201605054 - Átak í að fjarlægja ónýtar girðingar.
Bæjarráð er jákvætt fyrir þátttöku í verkefninu. Felur starfsmönnum að skipuleggja verkið í samstarfi við Búnaðarsambandið.
4. 201409077 - Umferðaröryggisáætlun sveitarfélaga
Umræður um umferðaröryggisáætlunina og næstu skref í þeim efnum. Starfsmönnum falið að afla upplýsinga um kostnað við mögulegar aðgerðir.
Fundargerð samþykkt.
2.
Skipulagsnefnd - 17
Málsnúmer 1605015F
Skipulagsstjóri fór yfir fundargerði.
Gunnlaugur fór yfir fundargerðina.
Fundargerð samþykkt.
3.
Aðgerðir til að manna leikskólana
Málsnúmer 201606012
Ragnhildur fór yfir stöðu mála og kynnti drög að reglum um afslátt leikskólagjalda til starfsmanna. Bæjarráð samþykkir framlagðar reglur og að endurskoðun þeirra fari fram vorið 2019.
4.
Sindrabær Endurbætur 2016
Málsnúmer 201604059
Ásgerður vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir framlagt tilboð og felur starfsmönnum að ganga til samninga við tilboðsgjafa. Bæjarráð leggur mikla áherslu á að tímamörk verksins standist.
5.
Endurbætur í Vöruhúsi
Málsnúmer 201505034
Bæjarráð hafnar tilboði í endurbætur á Vöruhúsi. Tímamörk eru ekki innan þess ramma sem óskað var eftir og ekki er mögulegt að færa verktíma til vegna starfsemi í húsinu og eðli verksins. Starfsmanni falið að skoða möguleika á utanhússviðgerðum í sumar. Bæjarráð stefnir að því að bjóða verkið út að nýju um næstu áramót.
6.
Uppsögn forstöðumanns Hornafjarðarsafna
Málsnúmer 201606013
Bæjarstjóri greindi frá uppsögn forstöðumanns Hornafjarðarsafna og öðrum fyrirliggjandi starfsmannabreytingum. Bæjarráð leggur til að farið verði í heildstæða skoðun á mönnunarþörf Hornafjarðarsafna.
7.
Innkomuvöktun - Glögg mynd af gestum bæjarins
Málsnúmer 201605032
Bæjarstjóri gerði grein fyrir búnaði til innkomuvöktunar í bæinn. Nokkur sveitarfélög hafa sett upp slíkan búnað við innkomu inn í þéttbýliskjarna sína. Búnaðurinn tekur mynd af bílnúmerum bíla sem fara framhjá líkt og hraðamyndavél.
Til kynningar. Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
8.
Fjarskiptaþjónusta fyrir sveitarfélagið
Málsnúmer 201606015
Bæjarstjóri kynnir niðurstöður á skoðun kostnaðar vegna síma og gagnanotkunnar.
Bæjarstjóri kynnti verðkönnun vegna síma og gagnanotkunar fyrir sveitarfélagið. Bæjarráð samþykkir að endurnýja samning við Símann á grundvelli fyrirliggjandi gagna.
9.
Ósk um aðganga að ljósleiðaraþræði vegna farsímasendis að Víkurbraut 31
Málsnúmer 201606016
Bæjarráð heimilar bæjarstjóra að ganga til samninga við Símann um aðgang að ljósleiðaraþræði svo fremi sem það rýri ekki notkunarmöguleika sveitarfélagsins á ljósleiðarastrengnum.
10.
Umsögn um útgáfu leyfa Kistugil ehf
Málsnúmer 201606003
Erindi frá Sýslumanni dags. 1. júní þar sem óskað er eftir umsögn um endurnýjun og breytingu á rekstarleyfi í flokki V Kistugil ehf.Skálafelli.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
11.
Umsögn um útgáfu leyfa nýtt rekstrarleyfi FIskhóll 11 Sveinbjörn Imsland
Málsnúmer 201604096
Erindi frá Sýslumanni dags. 28. apríl þar sem óskað er eftir umsögn um nýtt rekstrarleyfi í flokki I heimagisting.
Bæjarráð leggst gegn útgáfu leyfisins þar sem umsækjandi uppfyllir ekki skilyrði 8. gr. laga nr. 85/2007.
12.
Umsögn um útgáfu leyfa Fiskhóll 11 Ragnhildur Magnúsdóttir
Málsnúmer 201604097
Erindi frá Sýslumanni dags. 28. apríl þar sem óskað er eftir umsögn um nýtt rekstrarleyfi í flokki I heimagisting.
Bæjarráð leggst gegn útgáfu leyfisins þar sem umsækjandi uppfyllir ekki skilyrði 8. gr. laga nr. 85/2007.
13.
Umsögn um útgáfu leyfis Fiskhól 11 Þórdís Imsland
Málsnúmer 201604102
Erindi frá Sýslumanni dags. 28. apríl þar sem óskað er eftir umsögn um nýtt rekstrarleyfi í flokki I heimagisting.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
Samkvæmt aðalskipulagi sveitarfélagsins er ekki heimilt að selja gistingu í flokki 1, gistirými í heimagistingu í íbúðarbyggð á Höfn, í meira en fjórum herbergjum í íbúð. Bæjarráð bendir jafnframt á að, ávallt skal í það minnsta einn af heimilismönnum búa á heimilinu og gegna hlutverki næturvarðar skv. 10. gr. reglugerðar um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr.585/2007.
14.
Breyting á deiliskipulagi við Skaftafell
Málsnúmer 201506007
Markmið deiliskipulagsbreytingunni er að bregðast við aukinni aðsókn akandi ferðamanna með því að fjölga bílastæðum á svæðinu og auka umferðarstýringu. Aðlaga staðsetningu byggingarreita að breyttri staðsetningu bílastæða. Einnig að aðgreina tjaldsvæðisumferð frá annarri umferð á svæðinu.
Bæjarráð samþykkir svar skipulagsnefndar og fyrirliggjandi deiliskipulagtillögu við Skaftafell skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
15.
Deiliskipulag fyrir flugvöll í Skaftafelli
Málsnúmer 201412027
Lýsing á deiliskipulagi var í kynningu frá 11. til 29. mars. Athugasemdir voru gerðar við lýsinguna og var tekið tillit til þeirra við gerð deiliskipulagstillögunar. Markmið deiliskipulagstillögunar er bygging flugvallar og mannvirki tengd rekstri hans.Kynningarfundur var haldinn 2. júní kl. 12:00.
Bæjarráð samþykkir svör skipulagsnefndar og fyrirliggjandi deiliskipulagtillögu fyrir flugvöll í Skaftafelli skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
16.
Deiliskipulag Moto-cross braut
Málsnúmer 201602032
Skipulagsnefnd hefur farið yfir málið og leggur til að farið verði í gerð deiliskipulags.
Bæjarráð samþykkir að fara í gerð deiliskipulags við Moto-cross braut.