Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

771. fundur
20. júní 2016 kl. 13:00 - 17:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 22
Málsnúmer 1605018F
2.
Mönnun Lönguhóla, haust 2016
Málsnúmer 201605094
Farið yfir stöðu mála vegna manneklu á Lönguhólum og möguleika á fleiri aðgerðum til að laða að starfsfólk. Bæjarráð felur starfsmönnun að draga fram og kynna betur þau kjör sem leikskólastarfsmönnum bjóðast ásamt því skemmtilega starfi sem þar fer fram.
3.
opið bréf til bæjarráðs vegna Leiksskólamála
Málsnúmer 201606033
Bréf lagt fram til kynningar. Bæjarráð vísar í afgreiðslu máls um mönnun Lönguhóla haust 2016 hér að ofan og í bréf/fylgiskjal með málinu.
4.
Umhverfisviðurkenning - reglur
Málsnúmer 201604004
Umhverfisnefnd hefur yfirfarið reglur vegna umhverfisviðurkenningar og gert á þeim breytingar. Helstu breytingar snúa að því að afhending umhverfisviðurkenning fari fram samhliða öðrum afhendingu menningarverðlauna og styrkjum sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir reglur um umhverfisviðurkenningu.
5.
Umferðaröryggisáætlun sveitarfélaga
Málsnúmer 201409077
Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála frá síðasta fundi bæjarráðs. Beðið er eftir verði í hraðamælingaskilti (broskalla) til að setja upp innanbæjar.
Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála.
6.
Endurbætur eignasjóðs íbúðum Silfurbraut og Bjarnarhól
Málsnúmer 201606059
Farið yfir ástand nokkurra leiguíbúða og hugmyndir að viðhaldi þeirra.
Bæjarráð samþykkir endurbætur á íbúðum í samræmi við minnisblað frá umsjónarmanni fasteigna.
7.
Ósk um styrk til kaupa á sjúkrakallkerfi fyrir Skjólgarð
Málsnúmer 201606041
Óskað er eftir að fá að nýta hluta fjárheimildar sem hugsuð var í viðbyggingu á sólstofu í endurbætur á sjúkrakallkerfi. Ljóst er að ekki verður að fyrirhugaðri viðbyggingu sólstofu þar sem hún hefði kallað á umtalsvert meiri framkvæmdir en höfðu verið fyrirhugaðar.
Bæjarráð samþykkir að greiða hlut stofnunarinnar í sjúkrakallkerfi.
8.
Samrekinn leik- og grunnskóli í Hofgarði
Málsnúmer 201604058
Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála. Ungt par hefur sýnt áhuga á að flytja í Öræfin og vinna við Grunnskólann í Hofgarði. Húsnæði í Öræfunum er að skornum skammti líkt og annars staðar í sveitarfélaginu. Bæjarstjóri leggur til að sveitarfélagið sæki um eina lóð við Borgartún og kanni möguleika á samfloti við aðra verktaka á svæðinu um byggingu íbúðarhúsnæðis.
Bæjarráð heimilar bæjarstjóra að leggja inn umsókn um lóð við Borgartún í Öræfum.
9.
Skólaganga utan lögheimilissveitarfélags
Málsnúmer 201606040
Björn Ingi gerði grein fyrir málinu. Bæjarráð felur bæjarstjóra að klára málið.
10.
Staða sveitarsjóðs 2016
Málsnúmer 201604057
Ólöf I. fjármálastjóri fór yfir stöðu sveitarsjóð.
Staðan er í samræmi við áætlanir.
11.
Lok sambýlisins Hólabrekku
Málsnúmer 201606030
Jón Kr.Félagsmálastjóri fór yfir framvindu og stöðu mála (í síma).
Gert er ráð fyrir að sambýlið að Hólabrekku loki 31. október og er það í samræmi við sex mánaða uppsagnarfrest á samningi milli sveitarfélagsins og rekstraraðila Hólabrekku. Sveitarfélagið hefur boðist til að halda óbreyttum greiðslum til Hólabrekku út uppsagnarfrestinn sem er samkvæmt tilboði frá 24. maí s.l. Bæjarráð hafnar kröfum um húsnæðis og sanngirnisbætur sem og að áframhaldandi leiga á Klettatúni tengist uppgjörið samningaðila.
Bæjarráð telur sig með þessu móti standa við ákvæði samnings milli aðila.
12.
Kauptilboð Hagatún 1
Málsnúmer 201606052
Bæjarstjóri fór yfir kauptilboð í Hagatún 1. tilgangur kaupanna er að bregðast við þörf fyrir aukna þjónustu við fatlað fólk.
Bæjarráð samþykkir framlagt kauptilboð. Vegna fjármögnunar er vísað í viðauka II við fjárhagsáætlun sem er næsti liður í dagskrá bæjarráðs.
13.
Viðauki II við fjárhagsáætlun 2016
Málsnúmer 201606055
Björn Ingi gerði grein fyrir viðauka II við fjárhagsáætlun 2016 þar sem lögð er til hækkun á fjarfestingaáætlun um 33 m.kr., sbr. greinargerð. Útgjaldaaukningu verði mætt með lækkun á handbæru fé í lok árs úr 111.337 þús.kr. í 78.337 þús.kr. Bæjarráð samþykkir viðauka II við fjárhagsáætlun 2016.

Er þetta gert með vísan í fund bæjarstjórnar nr.227 þar sem bæjarráði er veitt fullt umboð til að afgreiða mál þar til bæjarstjórn kemur aftur til starfa í ágúst.
14.
Smáhúsahverfi Tiny house
Málsnúmer 201606058
Bæjarstjóri fór yfir hugmyndafræði smáíbúaðhverfa (tiny house).Farið yfir kynningarefni frá Birni Jóhannssyni landslagsarkitekt.
Bæjarráði lýst vel á hugmyndir um smáíbúðahverfi og samþykkir að hafin verði endurskoðun á deiliskipulagi Leirusvæðis.
15.
Bráðabirgða bílastæða lausn við Miðbæ 2016
Málsnúmer 201606026
Gunnlaugur Róbertsson skipulagsstjóri fór yfir hugmyndir tæknisviðs um rútustæði í miðbænum.
Bæjarráð tekur vel í hugmyndir um rútustæði og hvetur til þess að þeim verði hrint í framkvæmd hið fyrsta.
16.
Opið bréf til bæjarstjórnar vegna Þjóðvegs 1
Málsnúmer 201606029
Aðdragandi að nýjum veg yfir Hornafjarðarfljót hefur verið umtalsverður og hefur lína á þessum slóðum verið á aðalskipulagi sveitarfélagsins frá 1998. Þessi vegstytting var eitt af þeim málum sem rætt var um við sameiningu gömlu hreppanna í Austur-Skaftafellssýslu árið 1996 en þá var fyrst byrjað að tala um nýjan veg og brú yfir Hornafjarðarfljót. Síðan hefur verið mikil barátta um að tryggja fé í framkvæmdina og hún verið að mestu fjármögnuð í tvígang en ytri aðstæður síðan orðið til þess að ekki var hafist handa við verkið. Það hefur verið afstaða flestra sem setið hafa í bæjarstjórn frá 1998 að nýr vegur um Hornafjarðarfljót eigi að liggja á þeim slóðum sem aðalskipulag sveitarfélagsins segir til um.
Árið 2009 var nákvæm lega vegarins sett inn á aðalskipulag sveitarfélagsins leið 3b. Eftir að unnin hafði verið frummatsskýrsla vegna framkvæmdarinnar og hún send Skipulagsstofnun til umsagnar. Þar segir: ?það er niðurstaða sveitarstjórnar að leið 3b þjóni hagsmunum samfélagsins best, hún styttir þjóðveg nr.1 umtalsvert, meiri stytting verður á vegalengdum innan sveitarfélagsins samanborið við aðrar leiðir sem skoðaðar voru, stórbætt aðgengi íbúa að þjónustukjarna sveitarfélagsins, aukið umferðaröryggi og greiðfærari?. Þetta ferli hefur allt verið opið og samkvæmt þeim reglum sem um slíkar framkvæmdir gilda. Vegagerðin hefur unnið að því frá 2009 að hanna og útfæra veglínuna á þeim stað sem aðalskipulag sveitarfélagsins segir til um. Nokkuð ljóst er einnig að breyting á veglínu frá gildandi skipulagi myndi hafa í för með sér mikla seinkunn á framkvæmdum við nýjan veg um Hornafjarðarfljót.
17.
Ósk um aðalskipulagsbreytingu Krókur, Lækjarhús og Byrgið
Málsnúmer 201606056
Erindi frá landeigendum Króki,Lækjarhús og Byrginu dagsett 9. júní þar sem óskað er eftir að gera aðalskipulagsbreytingu með það að markmiði að byggja upp verslun og þjónustu með gistingu á svæðinu.
Bæjarráð óskar eftir frekari upplýsingum um staðsetningu á jörð og áform um uppbyggingu.
18.
Hæð fjölbýlishúsa við Bugðuleiru og Álaleiru
Málsnúmer 201606044
Óskað er eftir breytingu á deiliskipulagi á svæði B á Leirunni. Nánar tiltekið vegna bygginga Bugðuleiru 1,5 og 7 og Álaleiru 9 og 11 .Frávikin snúa að hámarks hæð bygginga en skilmálar deiliskipulags eru ekki í samræmi við nýja byggingarreglurgerð. Jafnframt er óskað eftir heimild til að steypa efri loftaplötu og að hvert hús standi sér á lóð en ekki saman tvö og tvö á einni lóð. Þá er einnig lagt til að þakform verði rýmkað í að valmaþak verði leyfilegt. Þessar breytingar eru í samræmi við þegar byggt hús á svæðinu Bugðuleira 3.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og að málsmeðferð verði skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Er þetta gert með vísan í fund bæjarstjórnar nr.227 þar sem bæjarráði er veitt fullt umboð til að afgreiða mál þar til bæjarstjórn kemur aftur til starfa í ágúst.
19.
Deiliskipulag Hólabrekka
Málsnúmer 201606051
Erindi frá Ólafi Páli Vignissyni og Þorbjörgu Ingu Þorsteinsdóttur dagsett 15. júní ósk um að hefja gerð deiliskipulags á Hólabrekku.
Bæjarráð samþykkir að umsækjandi hefji deiliskipulagsvinnu skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga.
Bæjarráð bendir umsækjendum á að jákvæð umsögn um rekstrarleyfi er meðal annars háð samræmi við gildandi aðal- og deiliskipulag.

Er þetta gert með vísan í fund bæjarstjórnar nr.227 þar sem bæjarráði er veitt fullt umboð til að afgreiða mál þar til bæjarstjórn kemur aftur til starfa í ágúst.
20.
Umsókn um byggingarleyfi, byggingarleyfi fyrir bílskúr Sunnubraut 8
Málsnúmer 201605016
Bæjarráð vísar málinu í grenndarkynningu þar sem ekki liggur fyrir deiliskipulag fyrir umrædda lóð. Starfsmanni falið að grenndarkynna skv. 44. gr. skipulagslaga.
21.
Umsókn um byggingarleyfi, gistiheimili að Borgarhöfn 1. Vagnstöðum.
Málsnúmer 201606050
Erindi frá eigendum Vagnstaða í Suðursveit um byggingu 15 herbergja gistihús.
Samkvæmt aðalskipulagi sveitarfélagisins er skilgreindur reitur fyrir ferðaþjónustu, gistingu og greiðasölu á Vagnstöðum VÞ 21. Uppbygging vegna hennar skal heimil, skv. deiliskipulagi. Allt að 30 gistirými.
Bæjarráð telur að deiliskipuleggja þurfi umrætt svæði til að uppbygging geti farið fram og bendir umsækjanda á að sækja um heimild til deiliskipulagsgerðar.

Er þetta gert með vísan í fund bæjarstjórnar nr.227 þar sem bæjarráði er veitt fullt umboð til að afgreiða mál þar til bæjarstjórn kemur aftur til starfa í ágúst.
22.
Fyrirspurn um skipulag Hraunhóll 5
Málsnúmer 201606053
Erindi barst 15. júní frá Snævarri Guðmundssyni um áform um að reisa stjörnuskoðunar aðstöðu í bakgarði á Hraunhól 5
Bæjarráð vísar málinu í grenndarkynningu þar sem ekki liggur fyrir deiliskipulag fyrir umrædda lóð. Starfsmanni falið að grenndarkynna skv. 44. gr. skipulagslaga.

Er þetta gert með vísan í fund bæjarstjórnar nr.227 þar sem bæjarráði er veitt fullt umboð til að afgreiða mál þar til bæjarstjórn kemur aftur til starfa í ágúst.
23.
Umsögn um útgáfu leyfa Sigurður Bjarnason
Málsnúmer 201606005
Erindi frá Sýslumanni dags. 2. júní þar sem óskað er eftir umsögn um nýtt rekstrarleyfi fyrir gististað að Dýhól í flokki II.
Sótt er um rekstur á gististað í flokki II. Rekstur í flokki II á þessum stað samræmist ekki aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030. Á þeim grunni veitir bæjarráð neikvæða umsögn um útgáfu leyfisins.
24.
Umsögn um útgáfu leyfa Aðalheiður Fanney Björnsdóttir
Málsnúmer 201605096
Erindi frá Sýslumanni dags. 27. maí þar sem óskað er eftir umsögn um nýtt rekstarleyfi fyrir gistiskála eða gistiheimili í Sauðanesi flokki II.
Sótt er um rekstur á gististað í flokki II. Rekstur í flokki II á þessum stað samræmist ekki aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030. Á þeim grunni gefur bæjarráð neikvæða umsögn um útgáfu leyfisins.
25.
Umsögn um útgáfu leyfa Birkifell ehf
Málsnúmer 201605104
Erindi frá Sýslumanni dags. 27. maí þar sem óskað er eftir umsögn um endurnýjun/breytingu nýr rekstraraðili fyrir heimagistingu í flokki I.
Bæjarráð gefur neikvæða umsögn um rekstrarleyfi til lögaðila.
Bæjarráð bendir á reglugerð nr. 585/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald þar sem segir í 1. mgr. 10. gr.
Heimagisting er gisting á einkaheimili leigusala og skal ávallt í það minnsta einn af heimilismönnum búa á heimilinu og gegna hlutverki næturvarðar.
26.
Umsögn um útgáfu leyfa Sigurbjörg Helgadóttir
Málsnúmer 201606001
Erindi frá Sýslumanni dags. 30. maí þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi fyrir heimagistingu í flokki I.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
27.
Umsögn um útgáfu leyfa Norræna ferðaskrifstofan
Málsnúmer 201606021
Erindi frá Sýslumanni dags. 6. júní þar sem óskað er eftir umsögn um nýtt rekstrarleyfi fyrir Norrænu Ferðaskrifstofuna gististaður í flokki II.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins. Bæjarráð vill engu að síður benda umsækjanda á að um frístundarbyggð er að ræða og aðeins heimilt að leigja bústað/lóð út sem eina heild.
28.
Umsögn um útgáfu leyfa Norræna ferðaskrifstofan
Málsnúmer 201606022
Erindi frá Sýslumanni dags. 6. júní þar sem óskað er eftir umsögn um nýtt rekstrarleyfi fyrir Norrænu Ferðaskrifstofuna gististaður í flokki II.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins. Bæjarráð vill engu að síður benda umsækjanda á að um frístundarbyggð er að ræða og aðeins heimilt að leigja bústað/lóð út sem eina heild.
29.
Umsögn um útgáfu leyfa Þjóðarkvöld Kvennakórsins
Málsnúmer 201606028
Erindi frá Sýslumanni dags. 7. júní þar sem óskað er eftir umsögn um tækifærisleyfi, tímabundið áfengisleyfi í Sindrabæ frá Kvennakór Hornafjarðar.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
30.
Umsögn um útgáfu leyfa veitingarsala N1 Nesjum
Málsnúmer 201606031
Erindi frá Sýslumanni dags. 8. júní þar sem óskað er eftir umsögn um nýtt rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki I.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdi við útgáfu leyfisins.
31.
Umsögn um útgáfu leyfa Sævar Örn Kristjánsson
Málsnúmer 201606036
Erindi frá Sýslumanni dags. 13. júní þar sem óskað er eftir umsögn um nýtt rekstrarleyfi heimagisting í Sauðanesi gisting í flokki I.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
32.
Umsögn um útgáfu leyfa tímabundið áfengisleyfi
Málsnúmer 201606042
Erindi frá Sýslumanni dags. 13. júní þar sem óskað er eftir umsögn um tækifærisleyfi tímabundið áfengisleyfi frá KND Sindra.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
33.
Umsögn um útgáfu leyfa tækifærisleyfi Humarhátíð 2016
Málsnúmer 201606043
Erindi frá Sýslumanni dags. 13. júní þar sem óskað er eftir umsögn um tækifærisleyfi fyrir Humarhátíð á Höfn.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
34.
Umsögn um útgáfu leyfa veitingastað Matarvagn
Málsnúmer 201606046
Erindi frá Sýslumanni dags. 13. júní þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi vegna veitingastaðar í flokki I.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfis.
35.
Sala á Þinganesi ÁR-25 2040
Málsnúmer 201606049
Erindi frá Skinney Þinganesi hf. vegna sölu á Þinganesi til SÞ Þorlákshöfn ehf.
Bæjarráð hyggst ekki nýta sér forkaupsrétt sinn að kaupum á Þinganesi ÁR-25 en skipið er boðið til sölu án aflaheimilda.
36.
Greiðslur til sveitarfélaga v/ forsetakostninga 2016
37.
Vatnajökulsþjóðgarður á heimsminjaskrá UNESCO
Málsnúmer 201606047
Bæjarráð er jákvætt fyrir tilnefningu Vatnajökulsþjóðgarðs á heimsminjaskrá UNESCO og reiðubúið til þátttöku í samráði á meðan á vinnslu tillögunnar stendur.
38.
Aðalfundur Háskólafélagsins 2016
Málsnúmer 201606045
Lagt fram til kynningar. Bæjarráð telur jákvætt að áfram verði skoðaðir möguleikar á sameiningu Fræðslunets Suðurlands og Háskólafélags Suðurlands.
39.
Fundargerðir SASS 2016
Málsnúmer 201602042
Lagt fram til kynningar.