Bæjarráð Hornafjarðar
772. fundur
5. júlí 2016
kl.
13:00
-
16:39
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson
1. varamaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Atvinnumálanefnd - 18
Fundargerð lög fram til staðfestingar.
Umræður sköpuðust um atvinnuástand í Hornafirði og skort á starfskröftum í sveitarfélaginu.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Menningarmálanefnd - 18
Fundargerð lög fram til staðfestingar.
Bryndís fór yfir hugmyndir að opnum fundi um Jökulheima í byrjun september. Tilgangur fundarins er meðal annars að kanna áhuga á aðkomu fjárfesta að verkefninu. Unnið er að auglýsingu á lausum störfum hjá stofnuninni og verður auglýst á næstunni.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
3.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 17
Fundargerð lög fram til staðfestingar.
Farið yfir vinnu vegna nýs þjónustusamnings um heilbrigðis- og öldrunarþjónustu.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
4.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 187
Fundargerð lög fram til staðfestingar.
Farið yfir fundargerð.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
5.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 273
Fundargerð lög fram til staðfestingar.
Farið yfir fundargerð og stöðu mála varðandi lokun Hólabrekku.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
6.
Öldungaráð - 1
Fundargerð lög fram til staðfestingar.
Fundargerð samþykkt.
7.
Umsókn í Framkvæmdasjóð aldraðra 2016
Svar við umsókn um fjármagn í Framkvæmdasjóð aldraðra til byggja við hjúkrunarheimilið.
Umsókninni var hafnað á grunni þess að fjármagn er ekki tryggt af hálfu ríkisins og kostnaðaráætlun er ófullkomin. Sveitarfélgið hefur ekki látið teikna bygginguna þar sem óvissa er með fjármögnun og því ekki hægt að leggja fram fullkomna kostnaðaráætlun. Bæjarráð furðar sig á þeim misvísandi leiðbeiningum sem koma frá framkvæmdasjóði aldraðra og úr velferðarráðuneytinu. Í janúar 2016 var óskað eftir umsókn í framkvæmdasjóðinn um byggingu hjúkrunarheimilis á Hornafirði þannig að framkvæmdasjóður gæti mælt með uppbyggingu á Hornafirði inná framkvæmdalista heilbrigðisráðherra. Það var jafnframt rætt að ekki þyrfti að fara í fullnaðar kostnaðargreiningu heldur mætti notast við þekktar kostnaðarstærðir í því sambandi.
Sveitarfélagið er tilbúið til að fara í framkvæmdina um leið og hlutur ríkisins er tryggður. Bæjarráð ítrekar mikilvægi þess að hefja nú þegar uppbyggngu á hjúkrunarheimilinu á Höfn. Af 24 hjúkrunarrýmum eru aðeins tvö í einbýli. Tvíbýlin á Hornafirði eru einungis 20 fm. og sameiginlegt salerni frami á gangi. Viðmið Velferðarráðuneytis segir til um að einkarými skuli vera 28 fm. því er augljóst að brýnna úrlausna er þörf. Bæjarstjóra falið að ræða við framkvæmdasjóð aldraðar og hefja undirbúining að nýrri umsókn.
Sveitarfélagið er tilbúið til að fara í framkvæmdina um leið og hlutur ríkisins er tryggður. Bæjarráð ítrekar mikilvægi þess að hefja nú þegar uppbyggngu á hjúkrunarheimilinu á Höfn. Af 24 hjúkrunarrýmum eru aðeins tvö í einbýli. Tvíbýlin á Hornafirði eru einungis 20 fm. og sameiginlegt salerni frami á gangi. Viðmið Velferðarráðuneytis segir til um að einkarými skuli vera 28 fm. því er augljóst að brýnna úrlausna er þörf. Bæjarstjóra falið að ræða við framkvæmdasjóð aldraðar og hefja undirbúining að nýrri umsókn.
8.
Ályktun stjórnafundar eldir Hornfirðinga
Stjórn Félags eldri Hornfirðinga ítrekar ályktun sína þar sem skorað er á bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar og heilbrigðisráðherra Kristján Þór Júlíusson að beita sér fyrir því að sem allra fyrst verði hafist handa við viðbyggingu nýs hjúkrunarheimilis.
Bæjarráð tekur undir ályktun félags eldri Hornfirðinga. Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar hefur beitt sér að fullum þunga fyrir viðbyggingu við núverandi hjúkrunarheimili og mun halda því áfram.
9.
Ósk um framkvæmdaleyfi, Hringvegur nr.1 milli Hólms og Dynjanda
Vegagerðin óskar eftir framkvæmdarleyfi vegna hringvegar nr.1 frá Hólmi að Hafnarvegi við Hafnarnes.
Bæjarráð vísar málinu til skipulagsnefndar.
10.
Ósk um að hefja deiliskipulagsvinnu að Vagnstöðum
Erindi frá Landeigendur dagsett 21. júní. Ósk um heimild til að hefja deiliskipulagsgerð að Vagnstöðum reit VÞ21 í samræmi við gildandi aðalskipulag.
Bæjarráð samþykkir að umsækjandi hefji deiliskipulagsvinnu skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga.
Er þetta gert með vísan í fund bæjarstjórnar nr.227 þar sem bæjarráði er veitt fullt umboð til að afgreiða mál þar til bæjarstjórn kemur aftur til starfa í ágúst.
Er þetta gert með vísan í fund bæjarstjórnar nr.227 þar sem bæjarráði er veitt fullt umboð til að afgreiða mál þar til bæjarstjórn kemur aftur til starfa í ágúst.
11.
Óhöpp tengd sauðfé á þjóðvegi 1 Suðurlandi
Samantekt lögreglunnar á óhöppum tengdum ákeyrslu á sauðfé á þjóðvegi nr.1 á Suðurlandi.
Í samantekt lögreglunar kemur fram að ekið er á 117 kindur árið 2015 sem er 25% aukning frá árinu 2013. Sveitarfélagði og Vegagerðin gerðu með sér samning árið 2007 um friðun vegsvæðis fyrir ágangi búfjár á hringvegi nr. 1 frá Almannaskarðsgöngum að Hornafjarðarfljótum og á Hafnarvegi nr.99. Eins og kemur fram í samantek lögreglunnar "Skýrist það að mestu leiti að því að engin afréttur er í sýslunni og sauðfé gengur að mestu leiti í eignarlandi og er stutt milli fjalls og fjöru. Þá eru engar girðingar á um 75% leiðarinnar í gegnum sýsluna en leiðin er um 205 km." Hér er um mikið umferðaröryggismál að ræða og ekki hægt að gera ráð fyrir því að ferðamenn átti sig á hvernig sauðfé hegðar sér við þjóðveginn. Bæjarráð þakkar lögreglunni á Suðurlandi fyrir þessa samantekt.
Bæjarráð tekur undir bókun atvinnumálanefndar þar sem hlutaðeigandi aðilar: bændur, Vegagerðin og sveitarfélagið eru hvattir til að vinna sameiginlega að lausn þessa vanda.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir viðræðum við Vegagerðina um úrbætur og frekari þróun á samningi frá 2007 enn fremur eru bændur hvattir til að huga að sínu fé meðfram þjóðvegi í sýslunni.
Bæjarráð tekur undir bókun atvinnumálanefndar þar sem hlutaðeigandi aðilar: bændur, Vegagerðin og sveitarfélagið eru hvattir til að vinna sameiginlega að lausn þessa vanda.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir viðræðum við Vegagerðina um úrbætur og frekari þróun á samningi frá 2007 enn fremur eru bændur hvattir til að huga að sínu fé meðfram þjóðvegi í sýslunni.
12.
Umsókn um lóð, Borgartún 10
Umsókn Sveitarfélagsins Hornafjarðar um lóð að Borgartúni 10 lögð fram.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir.
Er þetta gert með vísan í fund bæjarstjórnar nr.227 þar sem bæjarráði er veitt fullt umboð til að afgreiða mál þar til bæjarstjórn kemur aftur til starfa í ágúst.
Er þetta gert með vísan í fund bæjarstjórnar nr.227 þar sem bæjarráði er veitt fullt umboð til að afgreiða mál þar til bæjarstjórn kemur aftur til starfa í ágúst.
13.
Styrkumsókn "Hvítur, hvítur dagur"
Hlynur Pálmason óskar eftir samstarfi vegna fyrirhugaðrar töku á myndinni "Hvítur, hvítur dagur" hér á Höfn.
Hlynur kynnti verkefnið "Hvítur, hvítur dagur"
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða mögulegar útfærslur á samstarfi.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða mögulegar útfærslur á samstarfi.
14.
Viljayfirlýsing um uppbygging á Netaloftinu.
Ósk um framlenginu á tíma til að skila framkvæmdaáætlun um uppbyggingu.
Bæjarráð samþykkir ósk um framlengingu á viljayfirlýsingu til 20. ágúst. Eftir þann tíma verður framtíð húsnæðisins tekið til umfjöllunar.
15.
Umsókn um breytt rekstrarleyfi Lambleiksstaðir ehf
Erindi frá Sýslumanni dags. 28. september þar sem óskað er eftir umsögn um breytingu á rekstarleyfi fyrir gististað í flokki II Lambleiksstöðum.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfis.
16.
Skerðing kvóta á strandveiðisvæði D um 200 tonn
Erindi frá smábátafélaginu Hrollaugi vegna skerðingar á strandveiðikvóta á svæði D um 200 tonn þrátt fyrir að heildarkvótinn til strandveiða hafi verið aukinn um 400 tonn milli ára. Milli fiskveiðiára var aukning í kvótaheimildum strandveiða í heild um 4,5% en á sama tíma er skerðing á svæði D um 13%.
Bæjarráð telur undarlegt að á sama tími og heildarkvóti til strandveiða er aukinn um 400 tonn skuli kvótinn á svæði D sem er fyrir Suðurlandi skertur um 200 tonn. Því er aukninga á öðrum svæðum 600 tonn, af þessu má sjá að möguleikar til nýliðunar eru minni á svæði D en öðrum svæðum.
17.
Tilraunaverkefni um rafrænar íbúakosningar
Erindi frá Innanríkisráðuneytinu þar sem vakin er athygli á bráðabirgðaákvæði sveitarstjórnarlaga nr.138/2011 um tilraunaverkefni um rafrænar íbúakosningar.
Lagt fram til kynningar.
18.
Uppbygging á innviðum fyrir rafbíla
Orkusjóður auglýsir styrki til uppbyggingar á innviðum fyrir rafbíla. umsóknarfrestur er til 1. október 2016 um er að ræða fjárfestingastyrki.
Bæjarráð telur að hér sé um mjög jákvætt framtak að ræða sem fellur vel að loftslagsverkefni sveitarfélagsins, Landverndar og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Bæjarráð vísar málinu til umhverfisnefndar og skipulagsnefndar.
19.
Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2016
Fundargerðir nr. 837 til 841 lagðar fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.
20.
Fundargerðir HAUST 2016
130 fundargerð HAUST lögð fram til kynningar.
Lögð fram til kynningar.
21.
Ósk um tímabundið leyfi fyrir sturtuhús
Erindi frá Þjónustumiðstöð SKG dagsett 4. júlí. Óskað er eftir heimild til að setja tímabundið niður sturtugám. Núverandi aðstaða annar ekki þeirri miklu fjölgun ferðamanna sem er á svæðinu.
Bæjarráð samþykkir tímabundið leyfi til landnýtingar fyrir sturtuhús vegna sumarsins 2016 að uppfylltum leyfum og skilyrðum.