Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

773. fundur
18. júlí 2016 kl. 13:00 - 14:12
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Skipulag menningar- og safnamála
Málsnúmer 201607027
Lögð fram hugmynd að skipulagi menningar- og safnamála sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir framlagða skipulagstillögu um menningar- og safnamál í sveitarfélaginu. Bæjarráð óskar eftir að lausar stöður verði auglýstar hið fyrsta.
2.
Ósk um borð í verkmenntastofur - Vöruhúsi
Málsnúmer 201606075
Erindi frá skólastjóra Grunnskóla Hornafjarðar um heimild til kaupa á upphækkanlegum borðum í verkmenntastofur.
Bæjarráð samþykkir að óskum aukafjárveitingu til kaupa á rafborðum. Bæjarráð leggur áherslur á að leitað verði eftir verðum í búnað frá fleiri en einum aðila og að hagstæðasta tilboðinu með tilliti til verðs og gæða verði tekið.
Fjármunir verði teknir af óráðstöfuðu.
3.
Ósk um framkvæmdaleyfi, stækkun bílastæðis í Skaftafelli
Málsnúmer 201607007
Erindi frá Vatnajökulsþjóðgarði um heimild til að útbúa bílastæði í Skaftafelli
Bæjarráð samþykkir ósk um framkvæmdaleyfi.
Er þetta gert með vísan í fund bæjarstjórnar nr.227 þar sem bæjarráði er veitt fullt umboð til að afgreiða mál þar til bæjarstjórn kemur aftur til starfa í ágúst.
4.
Deiliskipulag fyrir Hof í Öræfum
Málsnúmer 201010059
Deiliskipulagstillagan var samþykkt í bæjarstórn þann 14. janúar og að nýju eftir breytingar á tillögunni skv. athugasemdum Skipulagstofnunar þann 14. apríl. Skipulagstofnun gerði að nýju athugasemdir við skipulagið sem lúta ma. að lóðum á svæði A sem stofnunin telur að gefi ekki næginlega skýra mynd af framtíðarþróun svæðisins.
Lagt er til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á deiliskipulaginu;
Svæði A:
Fækka lóðum á svæði A ,6 lóðir sem eru næst þjóðvegi 1 verða teknar út af deiliskipulagstillögunni, eftir standa lóðir við Nónhamar.
Svæði B:
Íbúðalóðir á svæði B, verði skipt til helminga í samræmi við lóðir sem eru nær Hofgarði.
Fráveita/ fráveitumannvirki eru færð yfir lóðarmörk Hofgarðs nær núverandi gatnamótum Þjóðvegar 1, sem gefur möguleika á að byggð ofan þjóðvegar geti tengst fráveitunni. Að ákvæði um að allur atvinnurekstur á svæði B verði óheimill, þ.m.t. hvers konar skammtímaútleiga húsnæðis. Breyting er gerð á nafni götu sem er nefnd Hoftún í uppdrætti verður Borgartún.
Bæjarráð samþykkir ofangreindar breytingar á deiliskipulagstillögunni og vísar henni í lögformlegt ferli skv.42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Er þetta gert með vísan í fund bæjarstjórnar nr.227 þar sem bæjarráði er veitt fullt umboð til að afgreiða mál þar til bæjarstjórn kemur aftur til starfa í ágúst.
5.
Varðandi kjörfund vegna forsetakostninga 25.júní 2016
Málsnúmer 201607021
Bréf frá íbúum í Lóni dagsett 27. júní 2016. þar er mótmælt fyrirkomulagi við forsetakosningar 25. júní s.l. Í forsetakosningunum var kjördeild í Lóni sameinuð við kjördeild í Nesjum.
Við ákvörðun um lokun kjördeildar í Lóni var horft til hversu erfiðlega gengið hefur að manna kjörfund og vegna fækkunar íbúa á kjörskrá. Í ljósi breyttra tíma og betri samgangna taldi bæjarstjórn þetta skynsamlega ákvörðun. Bæjarráð hefur til skoðunar frekari fækkun kjördeilda í sveitarfélaginu út frá sömu sjónarmiðum.
6.
úttekt á launum fulltrúa í sveitarstjórnum haust 2015. Viðmiðunarlaunatöflur
Málsnúmer 201606084
Við samanburð á viðmunartöflum og launum bæjarfulltrúa í Sveitarfélaginu Hornafirði kemur í ljós að laun bæjarfulltrúa eru undir meðaltali. Bæjarráð leggur til að kjör bæjarfulltrúa verði skoðuð við næstu fjárhagsáætlunargerð.
7.
Samningur um afnotarétt á tölvutækum myndkortum
Málsnúmer 201606082
Kynnt tillaga að samningi við Loftmyndir. Um er að ræða afnotasamning að rafrænum myndagrunni til nota í skipulagsvinnu og upplýsingaveitu í sveitarfélaginu.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna að samningi við Loftmyndir ehf.
8.
Umsögn um útgáfu leyfa fyrir veitingarstað Þorbjörg Gunnarsdóttir
Málsnúmer 201607004
Erindi frá Sýslumanni dags. 1. júlí þar sem óskað er eftir umsögn um nýtt rekstrarleyfi Funaborg ehf að Víkurbraut 2 veitingastaðar í flokki II.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfis.
9.
Umsögn um útgáfu leyfa Humarhöfnin ehf
Málsnúmer 201607014
Erindi frá Sýslumanni dags. 6. júlí þar sem óskað er eftir umsögn um endurnýjun rekstrarleyfis Humarhöfnin ehf að Hafnarbraut 4 veitingastaðar í flokki II.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfis.
10.
Umsögn um útgáfu leyfa Rakel Ósk Elvarsdóttir
Málsnúmer 201607012
Erindi frá Sýslumanni dags. 5. júlí þar sem óskað er eftir umsögn um nýtt rekstrarleyfi Rakel Ósk Elvarsdóttir Rauðabergi 2 heimagisting gististaður í flokki I.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfis.