Bæjarráð Hornafjarðar
774. fundur
8. ágúst 2016
kl.
13:00
-
13:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Kristján Sigurður Guðnason
1. varamaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Samningur um skólaakstur 2016-2021
Drög að samning um skólaakstur 2016-2021 lögð fram.
Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við Fallastakk ehf. og samþykkir framlögð drög að samningi þar um.
2.
Framkvæmd nýrra laga um almennar íbúðir
Erindi Íbúðarlánasjóðs dagsett 13. júlí 2016 lagt fram. samvkvæmt nýjum lögum um almennar íbúðir hefur Íbúðarlánasjóði verið falið nýtt og veigamikið hlutverk við að veita stofnframlag ríkisins til íbúðarkaupa eða bygginga á almennum íbúðum. Framundan er auglýsingar og kynningar.
Lagt fram til kynningar. Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
3.
Aðalskipulagsbreyting Suðurhús
Lögð fram lýsinga að aðalskipulagsbreytingu frá Steinholt dagsett 4. ágúst 2016
Bæjarráð samþykkir framlagða lýsingu og samþykkir að kynna lýsinguna og vísa henni í lögformlegt ferli skv. 40. gr. skipulagslaga.
Er þetta gert með vísan í fund bæjarstjórnar nr.227 þar sem bæjarráði er veitt fullt umboð til að afgreiða mál þar til bæjarstjórn kemur aftur til starfa í ágúst.
Er þetta gert með vísan í fund bæjarstjórnar nr.227 þar sem bæjarráði er veitt fullt umboð til að afgreiða mál þar til bæjarstjórn kemur aftur til starfa í ágúst.
4.
Ósk um aðalskipulagsbreytingu Krókur, Lækjarhús og Byrgið
Lögð fram ósk um heimild til aðalskipulagsbreytingar.
Bæjarráð telur áform landeiganda ekki samræmast megin markmiðum aðalskipulags sveitarfélagsins. Óskar bæjarráð eftir að landeigandi vinni með skipulagsstjóra sveitarfélagsins að markmvissari áætlunargerð um áformaða uppbyggingu.
5.
Ósk um breytingu á aðalskipulagi Þorgeirsstaðir
Lögð fram ósk um heimild til aðalskipulagsbreytingar.
Óskar bæjarráð eftir að landeigandi vinni með skipulagsstjóra sveitarfélagsins að markmvissari áætlunargerð um áformaða uppbyggingu og vísar erindinu til skipulagsnefndar.
6.
Umsókn um byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsi, Hofsnes - Mói.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við áform umsækjanda með fyrirvara um jákvætt álit Minjastofnunar.
Er þetta gert með vísan í fund bæjarstjórnar nr.227 þar sem bæjarráði er veitt fullt umboð til að afgreiða mál þar til bæjarstjórn kemur aftur til starfa í ágúst.
Er þetta gert með vísan í fund bæjarstjórnar nr.227 þar sem bæjarráði er veitt fullt umboð til að afgreiða mál þar til bæjarstjórn kemur aftur til starfa í ágúst.
7.
Umsögn um útgáfu leyfa Rafn Svan Gautason
Erindi frá Sýslumanni dags. 11. júlí þar sem óskað er eftir umsögn um rekstarleyfi fyrir heimagistingu að Skólabrú 3.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
Samkvæmt aðalskipulagi sveitarfélagsins er ekki heimilt að selja gistingu í flokki 1, gistirými í heimagistingu í íbúðarbyggð á Höfn, í meira en fjórum herbergjum í íbúð. Bæjarráð bendir jafnframt á að, ávallt skal í það minnsta einn af heimilismönnum búa á heimilinu og gegna hlutverki næturvarðar skv. 10. gr. reglugerðar um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr.585/2007.

8.
Umsögn um útgáfu nýtt rekstrarleyfi Humarhöfnin ehf.
Erindi frá Sýslumanni dags. 21. júlí þar sem óskað er eftir umsögn um nýtt rekstrarleyfi frá Humarhöfninni ehf. Veitingastaðar í flokki II að Hafnarbraut 2 Nýhöfn Restaurant.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfis.
9.
Umsögn um nýtt rekstrarleyfi f.gististað Humarhöfnin ehf.
Erindi frá Sýslumanni dags. 21. júlí þar sem óskað er eftir umsögn um nýtt rekstrarleyfi frá Humarhöfninni ehf. Gististað í flokki II að Hafnarbraut 2 Nýhöfn apartment.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfis.