Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

775. fundur
15. ágúst 2016 kl. 16:00 - 17:25
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Páll Róbert Matthíasson varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Mönnun Lönguhóla, haust 2016
Málsnúmer 201605094
Ragnhildur fór yfir stöðu mála. Enn á eftir að manna fjögur stöðugildi. Ekki þarf að skerða skólatíma barna sem nú þegar eru með pláss en ljóst er að eins og staðan er í dag er ekki hægt að taka inn fleiri börn. Bæjarráð hvetur áhugasama að leita sér upplýsinga um áhugaverð störf á góðum vinnustað.
2.
Fráveita á Höfn - hreinsivirki
Málsnúmer 201601013
Hugmyndir að útliti hreinsivirkis kynntar.
Bæjarráði líst vel á framkomnar hugmyndir um útlit hreinsivirkis og samþykkir að unnið verði áfram út frá þeim. Ásgerður óskar eftir samantekt á þróun framkvæmdarinnar frá upphafi, þ.e. breytingar og kostnaðartölur.
3.
Land Sveitarfélagsins undir hringveg um Hornafjarðarfljót
Málsnúmer 201607031
Vegagerðin óskar eftir 53.216 fm af landi sveitarfélagsins endurgjaldslaust undir hringveg um Hornafjarðarfljót ásamt efnistöku úr námum 5 og 6. Bæjarráð samþykkir ósk Vegagerðarinnar og felur bæjarstjóra að svara erindinu.
4.
Þátttaka í spurningarkeppninni "Útsvar"
Málsnúmer 201608015
Erindi frá RÚV um þátttöku í spurningarþættinum Útsvar
Bæjarráð er jákvætt fyrir þátttöku sveitarfélagsins í Útsvari og vísar málinu til menningarmálanefndar.
5.
Umsókn um lóð, Álaleiru 19
Málsnúmer 201608016
Umsókn Hólmars Halls Unnsteinssonar um lóð að Álaleiru 19 lögð fram.
Bæjarráð mælir með að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
6.
Umsókn um lóð, Silfurbraut 41
Málsnúmer 201608004
Umsókn Sindra Ragnarssonar um lóð að Silfurbraut 41 lögð fram.
Bæjarráð getur ekki orðið við ósk umsækjanda þar sem skipulögð lóð er ekki á umræddum stað.
7.
Umferðaröryggi í sveitarfélaginu
Málsnúmer 201608014
Á fundir bæjarráðs nr.769 var óskað eftir upplýsingum um kostnað við hraðavaraskilti.
Bæjarráð samþykkir að kaupa þrjú til fjögur hraðavaraskilti. Hraðavaraskiltin geyma upplýsingar um fjölda bíla og hraða þeirra á hverjum tíma með þessum skiltum verða því til upplýsingar um umferðarmenningu. Bæjarráð felur umhverfisnefnd útfærslu og staðsetningu.
8.
Fundargerðir SASS 2016
Málsnúmer 201602042
Fundargerð Samtaka sunnlenskar sveitarfélaga nr. 510 lögð fram til kynningar.
Sæmundur fór yfir fundargerðina.