Bæjarráð Hornafjarðar
778. fundur
5. september 2016
kl.
16:00
-
17:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason
formaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Kristján Sigurður Guðnason
1. varamaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Skýrsla vinnuskólans 2016
Bæjarráð þakkar fyrir greinagóða skýrslu um vinnuskólann. Fræðslustjóra falið að vinna áfram með hugmyndir að þróun vinnuskólans fyrir næsta sumar með það að markmiði að efla hann.
2.
ósk um samstarf vegna mats og kortlagningar viðkomustaða ferðafólks
Bæjarstjóri fór yfir forsögu málsins og leggur til að Atvinnu- og ferðamálafulltrúi verði tengiliður sveitarfélagsins við verkefnið.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu um tengilið.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu um tengilið.
3.
Ósk um aukafjárveitingu vegna ljósritunarvélar Heppuskóla
Bæjarstjóri fór yfir stöðuna og ósk um aukafjárveitingu.
Bæjarráð samþykkir aukafjárveitingu til kaupa á sambærilegri vél og er í ráðhúsi, fjárheimild verði tekin af óráðstöfuðu.
Bæjarráð samþykkir aukafjárveitingu til kaupa á sambærilegri vél og er í ráðhúsi, fjárheimild verði tekin af óráðstöfuðu.
4.
Staða sveitarsjóðs 2016
Fjármálastjóri fór yfir stöðu sveitarsjóðs. Staðan er í samræmi við áætlun.
5.
Fjárhagsáætlun 2017
Drög að dagskrá við vinnu fjárhagsáætlunar 2017 lögð fram.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við framlögð drög.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við framlögð drög.
6.
Unglingalandsmót 2019
Á unglingalandsmóti UMFÍ í Borgarnesi var tilkynnta að Sveitarfélagið Hornafjörður hefðir orðið fyrir valinu til að halda Unglingalandsmót 2019.
Bæjarstjóri fór yfir málið.
Bæjarstjóra falið að funda með formanni USÚ, framkvæmdastjóra Sindra og forstöðumanni íþróttamannvirkja. Tilgangur fundar er að hefja undirbúning að landsmóti 2019, hvaða svæði landsmótið þarf og hvernig undirbúningur þarf að eiga sér stað fram að landsmóti 2019.

7.
Umsögn um útgáfu leyfa Halldóra Jónsdóttir
Erindi frá Sýslumanni dags. 1. september þar sem óskað er eftir umsögn um rekstarleyfi fyrir heimagistingu að Miðtúni 12.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
Samkvæmt aðalskipulagi sveitarfélagsins er ekki heimilt að selja gistingu í flokki 1, gistirými í heimagistingu í íbúðarbyggð á Höfn, í meira en fjórum herbergjum í íbúð. Bæjarráð bendir jafnframt á að, ávallt skal í það minnsta einn af heimilismönnum búa á heimilinu og gegna hlutverki næturvarðar skv. 10. gr. reglugerðar um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr.585/2007.

8.
Landsfundur um jafnréttismál 2016
Boðsbréf á landsfund um jafnréttismál 2016 í Alþýðuhúsinu Skipagötu 14 Akureyri
Bæjarráð telur mikilvægt að fulltrúar sveitarfélagsins mæti á landsfund. Vísar erindinu til félagsmálastjóra og felur honum að kanna áhuga nefndarmanna í jafnréttisnefnd á að sækja fundinn.