Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

779. fundur
12. september 2016 kl. 16:00 - 19:05
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Atvinnumálanefnd - 19
Málsnúmer 1608004F
Árdís fór yfir fundargerð atvinnumálanefndar.
Fundargerð samþykkt.
2.
Umhverfisnefnd - 19
Málsnúmer 1608013F
Bryndís fór yfir fundargerðina. Umræða um sorpmál og hvaða leiðir eru færar vegna ófullnægjandi flokkunar í endurvinnslutunnu.
Fundargerð samþykkt.
3.
Skipulagsnefnd - 19
Málsnúmer 1608011F
Gunnlaugur fór yfir fundargerðina.
Fundargerð samþykkt.
4.
Fráveita á Höfn fyrsti áfangi
Málsnúmer 201602063
Farið yfir stöðu málsins. Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um frávik frá upphaflegri áætlun og næsta áfanga.
5.
Atlas kortasjá fyrir Suðurland
Málsnúmer 201609014
Á síðasta ári var til skoðunar að vinna svæðisskipulagi fyrir allt Suðurlandi Niðurstaða þeirrar vinnu var að gerður yrði Atlsa kortasjá og er það eitt af áhersluverkefnum í Sóknaráætlun Suðurlands. Atlas eða kortabók sem lýsir sérkennum, auðlindum og grunngerð svæðis og er grunnur að greiningu og stefnumótun.
Bæjarráð samþykkir þátttöku í verkefninu.
6.
Endurskoðun lóðaleigusamninga
Málsnúmer 201609038
Nauðsynlegt er að endurskoða lóðaleigusamninga vegna breytinga á lögum, reglugerðum og skipulagi innan sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir framlögð drög að nýjum lóðaleigusamningum og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
7.
Endurskoðun á reglum um úthlutun lóða í sveitarfélaginu.
Málsnúmer 201609040
Reglur um úthlutun lóða voru samþykktar 2008.
Bæjarráð felur starfsmönnum að yfirfara reglur um úthlutun lóða og leggja fram drög að nýjum reglum.
8.
Lok sambýlisins Hólabrekku
Málsnúmer 201606030
Félagsmálastjóri fór yfir stöðu mála. Bæjarráð felur félagsmálastjóra að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
9.
Verkefni til fjölgunar leiguíbúða
Málsnúmer 201602052
teikningar og verklýsing
Bæjarstjóri fór yfir stöðu verkefnisins. Áætlað að endanleg gögn liggi fyrir í lok vikunnar.
10.
Húsnæðissjálfseignarstofnun um leiguíbúðir
Málsnúmer 201609039
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að vinna að stofnun húsnæðissjálfseignarstofnunar.
11.
Fjárhagsáætlun 2017
Málsnúmer 201609012
Lagt fram til kynningar.
12.
Hafnarvík Heppa Uppsteypta húsið Netaloft
Málsnúmer 201412013
Frestur sem bæjarráð gaf áhugasömum varðandi nýtingu hússins er runninn út. Bæjarráð lítur því þannig á málið að sveitarfélagið er óbundið af viljayfirlýsingu sem gefin var út 8. janúar 2016. Bæjarráð mun í framhaldinu skoða framtíð hússins.
13.
Erindi vegna Holtaréttar
Málsnúmer 201609029
Bæjarstjóra falið að svara erindinu út frá gildandi fjallskilasamþykkt og jafnframt skoða fjallskila- og afréttarmál í sveitarfélaginu.
14.
Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2016
Málsnúmer 201609028
Lagt fram til kynningar.
15.
Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2016 23.sept
Málsnúmer 201609027
Lagt fram til kynningar.
16.
Umsögn um útgáfu leyfa Nemendafélag FAS
Málsnúmer 201609026
Bæjarráð gefur neikvæða umsögn þar sem húsið er ekki hæft til skemmtanahalds.
17.
Fundargerðir SASS 2016
Málsnúmer 201602042
Fundargerð nr.511 lög fram til kynningar
Lagt fram til kynningar. Bæjarráð samþykkir að leggja til fundarstjóra á ársfund SASS í október nk. Huga verður að kynjahlutfalli í skipun fundarstjóra.