Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

780. fundur
19. september 2016 kl. 06:30 - 08:50
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Bryndís Hólmarsdóttir 1. varamaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Fráveita á Höfn fyrsti áfangi
Málsnúmer 201602063
Lagt fram minnisblað um stöðu mála, frávik í magni, kostnaði og breytingar á dagsetningum í framkvæmdinni.
Bæjarráð þakkar fyrir framlagt minnisblað. Ljóst er að framkvæmdin hefur breyst á framkvæmdatíma og hefur því þurft að endurskoða framkvæmdaráætlun um fráveitumál í því ljósi.
2.
Húsnæðissjálfseignarstofnun um leiguíbúðir
Málsnúmer 201609039
Gögn vegna stofnunar húsnæðissjálfseignarfélagsins Íbúðafélag Hornafjarðar hses. lögð fram.
Bæjarráð samþykkir framlögð stofngögn húsnæðissjálfseignarstofnunarinnar Íbúðafélag Hornafjarðar hses.
Í stjórn stofnunarinnar sitja til bráðbirgða þar til unnt verður að kjósa stjórn til samræmis við samþykktir stofnunarinnar:
Ólöf Ingunn Björnsdóttir, Sigurður Mar Halldórsson, Gunnhildur Imsland, til vara Páll Róbert Matthíasson og Björn Ingi Jónsson sem framkvæmdarstjóri.
3.
Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2016/2017
Málsnúmer 201609047
Lagt fram erindi frá Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu. Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiárið 2016/2017.
Bæjarstjóra falið að senda inn umsókn.
4.
Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 201603072
Drög að endurskoðaðri umhverfisstefnu sveitarfélagsins lögð fram. Stefnan hefur fengið umfjöllun og samþykki í umhverfisnefnd og vísað þaðan til bæjarráðs.
Bæjarráð fór yfir umhverfisstefnu engar efnislegar athugasemdi og vísar henni til bæjarstjórnar.
5.
Námsferð til Svíþjóðar vegna íbúalýðræðis á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 201603071
Sæmundur fór yfir ferð til Svíþjóðar. Þann 29. ágúst - 1. sept fóru Björn Ingi, Kristján Guðnason, Jón Kristján og Sæmundur í 4 daga námsferð til Svíþjóðar og kynntu sér hvernig Svíar vinna með íbúalýðræði. Ferðin var skipulögð af Sambandi íslenskra sveitafélaga. Þrjú sænsk sveitarfélög voru sótt heim, einnig Samband sænskra sveitarfélaga. Yfirgripsmiklar kynningar voru á fjölbreyttum verkefnum sem snúa að íbúalýðræði. Þátttakendur kynntust mörgum aðferðum og leiðum hvernig á að viðhalda íbúalýðralýðræði. Í því sambandi var hugtakið ?félagsleg sjálfbærni? rætt í ýmsum myndum. Unnið verður úr efni ferðarinnar sveitarfélaginu til hagsbóta.
6.
Ferðamannastaðurinn Jökulsárlón
Málsnúmer 201609041
Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála við Jökulsárlón. Hægt gengur að koma eignarhaldsmálum á hreint vegna jarðarinnar Fells sem er á austur bakka lónsins og á meðan fer engin uppbygging á svæðinu í gang.
Bæjarráð harmar stöðu mála en það hefur verið vilji sveitarfélagsins Hornafjarðar að uppbygging geti hafist við Jökulsárlón. Þessi mikla náttúruperla líður fyrir skort á uppbyggingu og aðstöðusköpun. Miðað við tölur Ferðamálastofu er áætlað að í kringum 500 þúsund ferðamenn heimsæki svæðið á hverju ári. Bæjarráð telur því að við þessar aðstæður verði ekki unað öllu lengur. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við Forsætisráðuneytið, eiganda þjóðlendu á vestur bakka Jökulsárlóns, hvort hefja eigi deiliskipulagsvinnu með það að markmiði að skapa aðstöðu fyrir þennan mikla fjölda ferðamanna sem á svæðinu er.
7.
Samningur við sálfræðing
Málsnúmer 201609021
Ragnhildur kynnti að samningur verið framlengdur um eitt ár við sálfræðing sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir samninginn.
8.
Stofnkostnaður samrekins leik- og grunnskóla við Hofgarð - kostnaðaráætlun
Málsnúmer 201609056
Lagt fram minnisblað fræðslustjóra um þann búnað sem fjárfesta þarf í til að samrekinn leik- og grunnskóli í Hofgarði hefji starfssemi.
Ragnhildur fór yfir kostnaðaráætlun vegna samrekstrar leik- og grunnskóla í Hofgarði. Áætlaður kostnaður er 7 milljónir í lóð, leiktæki og búnað. Bæjarráð samþykkir áætlunina og rúmast kostnaður innan framkvæmdaáætlunar sveitarfélagsins.
9.
Reglur um úthlutun kennslustundamagns
Málsnúmer 201609050
Ragnhildur fór yfir málið. Sveitarfélög hafa í auknum mæli sett reglur um úthlutun kennslustunda í grunnskólum. Reglur þessar eru til leiðbeiningar skólastjórnendum, starfsfólki í stjórnsýslunni og fulltrúum í fræðslunefndum. Út frá reglunum hafa síðan verið sett fram reiknilíkön til að reikna út kennslustundamagn fyrir hvern skóla út frá opinberum viðmiðunum og viðmiðunum til viðbótar sem sveitarfélög hafa ákveðið.
Bæjarráð felur fræðslustjóra vinna tillögur til umræðu í fræðslu- og tómstundanefnd.
10.
Lok sambýlisins Hólabrekku
Málsnúmer 201606030
Bréf Láru V. Júlíusdóttur, lögmanns Hólabrekku ehf., dags. 16. september sl. lagt fram ásamt minnisblaði frá félagsmálastjóra Hornafjarðar, dags. sama dag. Jafnframt voru samningur og önnur gögn málsins lögð fram.
Bæjarráð fór yfir öll gögn málsins. Það liggur fyrir ágreiningur á milli aðila um túlkun og framkvæmd samnings á milli Hólabrekku ehf. og Sveitarfélagsins frá 11. mars 2015. Aðilar hafa um nokkurt skeið reynt að jafna ágreininginn, eða allt frá því að forsvarsmenn Hólabrekku ehf. tilkynntu sveitarfélaginu, á fundi þann 14. apríl sl., að fjárhagslegar forsendur til áframhaldandi reksturs Hólabrekku væru ekki lengur fyrir hendi. Enginn ágreiningur er hins vegar á milli aðila um að rekstri Hólabrekku verði hætt þann 31. október nk., enda er það í samræmi við 12. gr. samningsins. Bæjarráð telur í ljósi síðustu samskipta aðila að fullreynt sé að jafna ágreininginn. Bæjarráð harmar þá niðurstöðu. Samkvæmt samningi aðila skal vísa ágreiningi um túlkun og framkvæmd samningsins til sáttanefndar, sbr. 11. gr. samningsins. Bæjarráð telur því réttast í ljósi stöðunnar að málið hljóti málsmeðferð í samræmi við 11. gr. samningsins. Í því sambandi tilnefnir bæjarráð Auðun Helgason hdl. í sáttanefndina.
Félagsmálastjóra falið að tilkynna málsaðilum niðustöðu fundar.
11.
Umsögn um útgáfu leyfa Heiðveig M Jónsdóttir
Málsnúmer 201609025
Erindi frá Sýslumanni dags. 6. september þar sem óskað er eftir umsögn um rekstarleyfi fyrir heimagistingu að Hæðargarði 17.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
Samkvæmt aðalskipulagi sveitarfélagsins er ekki heimilt að selja gistingu í flokki 1, gistirými í heimagistingu í íbúðarbyggð á Höfn, í meira en fjórum herbergjum í íbúð. Bæjarráð bendir jafnframt á að, ávallt skal í það minnsta einn af heimilismönnum búa á heimilinu og gegna hlutverki næturvarðar skv. 10. gr. reglugerðar um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr.585/2007.
12.
Umsókn um lóð Fákaleira 5a
Málsnúmer 201609058
Umsókn Kristjáns V Björgvinssonar um lóð að Fákaleiru 5a lögð fram.
Bæjarráð mælir með að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
13.
Tjaldsvæði Hafnar, rekstur
Málsnúmer 201609067
Bæjarráð fór yfir samning við núverandi rekstraaðila að tjaldsvæði Höfn.
Samningur rennur út í lok september 2016. Rætt um framtíðar rekstrarform tjaldsvæðis leiga/sala. Bæjarstjóra falið að afla frekari gagna.