Bæjarráð Hornafjarðar
781. fundur
26. september 2016
kl.
16:00
-
18:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason
formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Bryndís Hólmarsdóttir
1. varamaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Menningarmálanefnd - 20
Fundargerð samþykkt.
2.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 275
Félagsmálastjóra falið að afla upplýsinga varðandi gjaldfrjálsar greiningar barna á aldrinum 16-18 ára samhliða fjárhagsáætlunargerð.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
3.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 24
Rætt um ástand og viðhald íþróttamannvirkja. Ragnhildur gerði grein fyrir að búið væri að manna ungmennaráð sem er á leið á ráðstefnu ungmenna á Suðurlandi sem haldin verður á Selfossi. Starfsmannamál rædd.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
4.
Jökulheimar - staða
Fulltrúar menningarmálanefndar mæta á fundinn
Kristín fór yfir stöðu verkefnisins og þær hugmyndir sem unnið er að. Til stendur að halda opinn fund/ráðstefnu fyrir lok nóvember nk. um verkefnið með það að markmiði að móta það til framtíðar og finna áhugasama samstarfsaðila/fjárfesta. Umræður um mögulega staðsetningu og húsnæði fyrir starfsemina.
5.
Tjaldsvæði Hafnar, rekstur
Frestað til næsta fundar þar sem umbeðin gögn bárust ekki.
6.
Umsókn um lóð Álaleira 17
Umsókn Gunnlaugs Róbertssonar um lóð að Álaleiru 17 lögð fram.
Bæjarráð mælir með að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
7.
Umsókn um lóð Hagaleira 8a
Umsókn Guðrúnar Ásdísar Sturlaugsdóttur um lóð að Hagaleiru 8a lögð fram.
Bæjarráð mælir með að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
8.
Umsókn um lóð Hagaleira 8
Umsókn Bryndísar Bjarnarson um lóð að Hagaleiru 8 lögð fram.
Bæjarráð mælir með að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir. Málinu vísað til bæjarstjórnar.