Bæjarráð Hornafjarðar
782. fundur
3. október 2016
kl.
16:00
-
18:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason
formaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Atvinnumálanefnd - 20
Árdís fór yfir fundargerðina.
Bæjarráð tekur undir bókun atvinnumálanefndar varðandi erindi frá Smábátafélaginu Hrollaugi.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð tekur undir bókun atvinnumálanefndar varðandi erindi frá Smábátafélaginu Hrollaugi.
Fundargerð samþykkt.
2.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 189
Vignir fór yfir fundargerð. Umræður sköpuðust um Grynnslin og kynningu á rannsókn Vegagerðarinnar.
Bæjarráð hvetur Vegagerðina á grunni framkominna gagna að ráðast í gerð sjóvarnargarðs (sandfang) frá núverandi garði á Suðurfjörum út í Einholtskletta. Með slíku sandfangi er talið að hefta megi sandburð úr vestri inn á Grynnslin.

3.
Erindi frá Úrskurðarnefnd umhverfis og auðlindamála kæra nr.2/2015
Lagt fram til kynningar.
4.
Kæra v. byggingaframkvæmdir á lóð í Stafafellsfjöllum
Byggingafulltrúi upplýsti bæjarráð um stöðu mála.
5.
Tjaldsvæði Hafnar, rekstur
Umræður um framtíðarfyrirkomulag tjaldsvæðisins. Bæjarráð er sammála um áframhaldandi leigu á tjaldsvæðinu. Við útleigu þarf að huga að uppbyggingu og viðhaldi aðstöðu, þjónustu yfir vetrartímann, á bæjarhátíðum og landsmótum. Starfsmönnum falið að undirbúa útboðsgögn og móta skilyrði sem leigutaki þarf að uppfylla.
6.
Áframhaldandi leiga á tjaldsvæðinu á Höfn
Með vísan í afgreiðslu máls nr. 5 er starfsmönnum falið að upplýsa núverandi leigutaka um framtíðar fyrirkomulag tjaldsvæðisins.
7.
Umsókn um leyfi til nýtingar í þjóðlendu Breiðamerkursandi
Lagt fram til kynningar.
8.
Kjörskrá vegna alþingiskosninga 29. október 2016
Kjörskrárstofn vegna alþingiskosninga lagður fram. Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
9.
Fjárhagsáætlun 2017
Fjármálastjóri fór yfir drög að forsendum fjárhagsáætlunar 2017, tekjuáætlun og rekstrarreikning. Talsverð óvissa er um vissa þætti sem liggja til grundvallar fjárhagsáætlunar.
Ásgerður lagði til að íbúum verði gefið tækifæri til að koma með hugmyndir og ábendingar um verkefni í framkvæmdir sveitarfélagsins 2017. Þetta verði gert í gegnum ábendingagátt á nýrri heimasíðu sveitarfélagsins. Bæjarráð samþykkir tilöguna og felur starfsmönnum að koma henni í framkvæmd.
Bæjarráð samþykkir að vísa römmum til vinnslu hjá forstöðumönnum.

10.
Umsókn um lóð Hafnarbraut 13
Bæjarráð óskar eftir upplýsingum frá skipulagsstjóra um skipulag á svæðinu. Málinu frestað.
11.
Umsókn um lóð Víkurbraut 10
Umsókn Birgis Fannars Reynissonar um lóð að Víkurbraut 10 lögð fram.
Bæjarráð mælir með að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
12.
Ágóðahlutagreiðsla Brunabót 2016
Lagt fram til kynningar. Hlutdeild Hornafjarðar í sameignarsjóði EBÍ er 1,608% og greiðsla ársins þann 14. október n.k. verður þá hlutfall af kr. 50 milljónum eða kr. 804.000.
13.
Fundargerðir HAUST 2016
Lagt fram til kynningar.