Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

783. fundur
10. október 2016 kl. 16:00 - 18:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Kristján Sigurður Guðnason 1. varamaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 19
Málsnúmer 1609014F
Fundargerð samþykkt.
2.
Umhverfisnefnd - 20
Málsnúmer 1609012F
Bryndís fór yfir fundargerðina.
Umræður um aðgerðaáætlun umhverfisstefnunnar og hvað liggur fyrir á næstunni. Unnið er að því að fá námskeið í vistakstri fyrir starfsmenn sveitarfélagsins sem og íbúa.
Umræður um umferðarhraða í þéttbýlinu.
Fundargerð samþykkt.
3.
Almannavarnanefnd - 54
Málsnúmer 1609013F
Fundargerð samþykkt.
4.
Skipulagsnefnd - 20
Málsnúmer 1609011F
Gunnlaugur fór yfir fundargerðina.
Umræður um grenndarkynningu Kirkjubraut 47 vegna leikskóla.
Umræður um breytingu á deiliskipulagi á Leirunni.
Fundargerð samþykkt.
5.
Fráveita á Höfn - hreinsivirki
Málsnúmer 201601013
Gunnlaugur fór yfir minnisblað um hönnun og byggingu hreinsivirkis í Óslandi. í upphaflegum áætlunum var gengið út frá að kostnaður við hreinsivirki yrði 46 milljónir króna. Við forhönnun kemur í ljós að kostnaður getur orðið verulega yfir þeirri upphæð.
Bæjarráð leggur til að tvær síur verði í hreinsistöðinni til að minnka niðritíma stöðvarinnar en að öðru leiti verði leitast við að draga úr kostnaði við hreinsivirkið.
6.
Endurnýjun á lóðaleigusamning, Ægissíða 55.
Málsnúmer 201607009
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir.
7.
Umsókn um lóð Hafnarbraut 13
Málsnúmer 201609063
Lóðin er ekki laus til umsóknar.
8.
Umsókn um námsvist utan lögheimilissveitarfélags
Málsnúmer 201609139
Bæjarráð samþykkir umsókn fyrir skólaárið 2016-2017.
9.
Samkomulag á milli Sv.Hornafjarðar og Lögreglustjórans á Suðurlandi um framkvæmd almannavarna
Málsnúmer 201610006
Bæjarráð samþykkir áframhaldandi þátttöku í verkefninu.
10.
Húsnæðisáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 201610013
Vinna þar slíka húsnæðisáætlun
Bæjarráð felur félagsmálastjóra, atvinnu- og ferðamálafulltrúa og skipulagsstjóra að móta drög að húsnæðisáætlun sveitarfélagsins.
11.
Reglur Sveitarfélagsins Hornafjarðar um stofnframlag vegna almennra leiguíbúða
Málsnúmer 201610012
Farið yfir drög að reglum um stofnframlag vegna almennra leiguíbúða. Bæjarráð vísar reglunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
12.
Umsókn Íbúðarfélags Hornafjarðar Hses um stofnframlag vegna almennra leiguíbúða.
Málsnúmer 201610014
Umsókninni vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
13.
Umsókn í Framkvæmdasjóð aldraðra 2017 - Bygging hjúkrunarheimilis
Málsnúmer 201609013
Bæjarráð leggur til að gengið verði til samninga við AVH ehf. vegna frumtillagna að nýbyggingu og breytingu á núverandi húsnæði hjúkrunarheimilis.
14.
Samningar SFV um öldrunarþjónustu
Málsnúmer 201609147
Bæjarráð samþykkir framlögð drög og felur framkvæmdastjóra HSU Hornafirði að ganga frá samningi.