Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

784. fundur
17. október 2016 kl. 16:00 - 18:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Bryndís Hólmarsdóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 276
Málsnúmer 1610004F
Félagsmálastjóri fór yfir fundargerð.
Fundargerð samþykkt.
2.
Umhverfisnefnd - 21
Málsnúmer 1610002F
Farið yfir fundargerð.
Fundargerð samþykkt.
3.
Launakönnun
Málsnúmer 201609037
Samkvæmt jafnréttisáætlun sveitarfélagsins á að vinna launakönnun á hverju ári samhliða gerð fjárhagsáætlunar. Félagsmálastjóri hefur kannað með hvaða hætti slíkar kannanir hafa verið framkvæmdar hjá öðrum sveitarfélögum.
Lögð fram áætlun PwC um ráðgjafaþjónustu vegna launakönnunar.
Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við PwC á grunni framlagðra gagna.
4.
Kynning á hugmyndum að uppbyggingu Svínhólum Lóni
Málsnúmer 201610047
Áslaug Magnúsdóttir kom á fund bæjarráðs og fór yfir hugmyndir fjárfesta um uppbyggingu. Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir frekari gögnum og í framhaldinu vísar bæjarráð erindinu til skipulagsnefndar og umhverfisnefndar.
5.
Kynnisferð um sorp og endurvinnslu
Málsnúmer 201610025
Farið yfir ferð starfsmanna og kjörinna fulltrúa um austur og norðurland vegna sorpmála. Þau sveitarfélög sem heimsótt voru eiga það öll sameiginlegt að flokka lífrænt frá almennu sorpi og virðist það skila góðum árangri.
6.
Samningar vegna sorphirðu, sorpurðunar og endurvinnsluefna
Málsnúmer 201610048
Samningar vegna sorp-,endurvinnslu- og urðunarmála lagðir fram.
Umræður voru um fyrirkomulag sorps og endurvinnslumála hjá sveitarfélaginu. Ljóst er að um viðamikinn og flókinn málflokk er að ræða.
Bæjarráð felur starfsmönnum að upplýsa þá aðila sem eru með samning við sveitarfélagið um sorpþjónustu að til standi að endurskoða fyrirkomulagið. Starfsmönnum er falið að vinna frekari gögn vegna málsins.


7.
Verkefnastjóri á skólaskrifstofu
Málsnúmer 201610019
Þann 12. október 2015 framlengdi bæjarráð út árið 2016, heimild til þess að ráða verkefnastjóra á skólaskrifstofu í 50% starf. Af og til hefur verið auglýst eftir starfsmanni á skólaskrifstofu það sem af er árinu 2016 án þess að tekist hafi að ráða í starfið.
Fræðslustjóri kynnti tillögu að viðbót um eitt stöðugildi á skólaskrifstofu til frambúðar. Bæjarráð samþykkir framlagða hugmynd og vísar í fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2017.
8.
Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa, breyting á húsnæðisnotkun Bugðuleira 6
Málsnúmer 201610023
Erindi frá Fauska ehf. dags. 22. september vegna breytinga á nýtingu á húsnæði að Bugðuleiru 6.
Erindinu er vísað til skipulagsnefndar.
9.
Umsókn um leyfi til nýtingar í þjóðlendu Breiðamerkursandi
Málsnúmer 201609142
Erindi dags.10. október frá Iceguide ehf til nýtingar á svæði í þjóðlendu í Sveitarfélaginu Hornafirði. Nánar tiltekið er sótt um leyfi fyrir aðstöðu og siglingar frá vesturbakka Jökulsárlóns.
Afstaða bæjarráðs hefur verið sú að atvinnurekstur við Jökulsárlón skuli vera á austurbakka lónsins sbr. fyrri afgreiðslur umsókna um rekstur á vesturbakkanum.

Þann 19. september s.l. fól bæjarráð bæjarstjóra að ræða við Forsætisráðuneytið, eiganda þjóðlendu á vestur bakka Jökulsárlóns, hvort hefja eigi deiliskipulagsvinnu með það að markmiði að skapa aðstöðu fyrir þennan mikla fjölda ferðamanna sem á svæðinu er. Ekki er komin niðurstaða í þetta samtal og á meðan er afstaða bæjarráðs óbreytt til reksturs á vesturbakka lónsins.
10.
Líf og störf á Suðurlandi
Málsnúmer 201610032
Bæjarráð samþykkir að styrkja gerð 12 þátta um líf og störf á Suðurlandi. Fjármagn rúmast innan auglýsinga- og kynningamála.
11.
Umsókn um lóð Hagaleira 4
Málsnúmer 201610034
Umsókn Sigurðar Guðnasonar um lóð að Hagaleiru 4 lögð fram.
Verið er að endurskoða lóðarstærðir á Hagaleiru 2 til 4. Starfsmanni falið að upplýsa lóðarumsækjanda um málið.
Afgreiðslu frestað.
12.
Umsókn um lóð Hagaleira 10a
Málsnúmer 201610036
Umsókn Atla Arnarsonar um lóð að Hagaleiru 10a lögð fram.
Bæjarráð mælir með að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
13.
Umsókn um lóð Hafnarbraut 6
Málsnúmer 201610037
Umsókn Arnarsýnar ehf. um lóð að Hafnarbraut 6 lögð fram.
Bæjarráð mælir með að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
14.
Aðalfundur HAUST 2016
Málsnúmer 201610016
Fulltrúi sveitarfélagsins verði bæjarstjóri og fjármálastjóri til vara.