Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

785. fundur
24. október 2016 kl. 09:00 - 17:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Kristján Sigurður Guðnason 1. varamaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2017
Málsnúmer 201609012
Forstöðumenn fóru yfir rammaáætlun og stofnbúnaðaróskir.
Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun til áframhaldandi vinnu hjá fjármálaskrifstofu.
2.
Undirbúningur samnings um rekstur heilbrigðis- og öldrunarþjónustu 2016
Málsnúmer 201603032
Drög að þjónustusamning 2017-2019 dags.21 10 2016 lögð fram.
Bæjarráð fagnar nýjum samningi um rekstur heilsugæslu- og sjúkrasviðs. Í samningi kemur fram að sjúkrarýmum fjölgar um eitt og verða því fjögur. Nýr samningur gildir út árið 2019 og bæjarráð tekur undir bókun heilbrigðis- og öldrunarnefndar að sett verði inn í samninginn framlengingarákvæði. Bæjarstjóra falið að undirrita samning.
3.
Umsókn um lóð, Bugðuleira 5
Málsnúmer 201610067
Umsókn Íbúðafélags Hornafjarðar hses um lóð að Bugðuleiru 5 lögð fram.
Bæjarráð mælir með að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
4.
Veglagning um Hornafjörð
Málsnúmer 201610053
Erindi frá stjórn Hollvina Hornafjarðar dags.17. október 2016
Bæjarráð áréttar ástæður þess að bæjarstjórn Hornafjarðar afturkallaði samþykki sitt frá 8. september sl. fyrir framkvæmdaleyfi til lagningar á nýjum Hringvegi um Hornafjörð. Ástæðurnar koma skýrt fram í bókun bæjarstjórnar, dags. 13. október sl.:
"Í ljósi þess að framkvæmdaleyfi fyrir nýjan hringveg á milli Hólms og Hafnarvegar hefur ekki verið gefið út, skv. 11. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012, og umfjöllunar um ný náttúruverndarlög nr. 60/2013, í úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála nr. 46/2016 Kröflulína 4, Skútustaðahreppur, frá 10. október sl., [leggur bæjarstjóri] til að bæjarstjórn afturkalli ákvörðun sína frá 8. september sl. um samþykki á útgáfu framkvæmdaleyfis til Vegagerðarinnar með vísan til 1. tl. 1. mgr. 25. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. [Leggur bæjarstjóri] jafnframt til að umsókn Vegagerðarinnar, frá 21. júní sl. um framkvæmdaleyfi verði vísað aftur til nefnda sveitarfélagsins til nánari skoðunar í ljósi umfjöllunar um ný náttúruverndarlög í umræddum úrskurði nr. 46/2016.
Af framangreindu má ljóst vera að umsókn Vegagerðarinnar frá 21. júní sl. fer aftur til umfjöllunar í nefndum sveitarfélagsins." Þetta samþykkti bæjarstjórn á fundi 13. október sl. og ósk um framkvæmdaleyfi því í ferli samkvæmt bókun bæjarstjórnar.