Bæjarráð Hornafjarðar
786. fundur
31. október 2016
kl.
16:00
-
19:35
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason
formaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Veglagning um Hornafjörð
Heimsókn frá stjórn Hollvina Hornafjarðar og fulltrúa landeigenda í Nesjum.
Fulltrúar Hollvinasamtaka Hornafjarðar og landeigenda í Nesjum gerðu grein fyrir skoðun sinni og mati á fyrirhugaðri framkvæmd á veglagningu um Hornafjörð samkvæmt leið 3b. Að þeirra mati hafa forsendur breyst verulega frá því að umhverfismat framkvæmdarinnar fór fram og gera þau kröfu um að málið verði skoðað betur og nýtt umhverfismat framkvæmt. Lögðu þau fram gögn málinu sínu til stuðnings. Greindu þau frá því að þau muni ekki una við leið 3b. Verði gefið út framkvæmdaleyfi þar muni fulltrúar samtakanna og landeigenda leggja fram kæru.
2.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 25
Ragnhildur gerði grein fyrir tillögu að kaupum á þjónustu frá Rannsóknum og greiningu. Málið er enn til skoðunar í fræðslunefnd.
Umræður um fyirkomulagið við skipan Ungmennaráðs. Sagði Ragnhildur að erindisbréf ráðsins væri í endurskoðun.
Fundargerð samþykkt.
Umræður um fyirkomulagið við skipan Ungmennaráðs. Sagði Ragnhildur að erindisbréf ráðsins væri í endurskoðun.
Fundargerð samþykkt.
3.
Menningarmálanefnd - 21
Fundargerð samþykkt.
4.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 20
Bæjarráð fagnar nýjum samningi um rekstur heilbrigðis- og öldrunarþjónustu.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
5.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 190
Fundargerð samþykkt.
6.
Ráðning tómstundafulltrúa
Bæjarráð býður Óskar Braga Stefánsson velkominn til starfa.
7.
Ráðning leikskólastjóra
Fræðslustjóri fór yfir umsókn um starf leikskólastjóra. Ein umsókn barst frá Maríönnu Jónsdóttur leikskólakennara. Bæjarráð óskar Maríönnu velfarnaðar í starfi leikskólastjóra.
8.
Reglur um úthlutun kennslustundamagns
Ragnhildur gerði grein fyrir reglum um úthlutun kennslustundamagns. Byggja þær á reglum Kópavogsbæjar og Fjarðabyggðar sem mörg minni sveitarfélög hafa aðlagað og innleitt. Bæjarráð samþykkir framlagðar reglur.
9.
Gjaldskrá Menningarmiðstöðvar 2016
Gjaldskrá samþykkt.
10.
Fjárhagsáætlun 2017
Fjármálastjóri fór yfir drög að fjárhagsáætlun 2017.
11.
úttekt á launum fulltrúa í sveitarstjórnum haust 2015. Viðmiðunarlaunatöflur
Laun kjörinna fulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar eru undir meðaltali sambærilegra sveitarfélaga samkvæmt úttekt Sambands Íslenskra Sveitarfélaga.
Bæjarstóra falið að kanna með hvaða hætti laun bæjarfulltrúa sambærilegra sveitarfélaga eru ákveðin á hverjum tíma.
Bæjarstóra falið að kanna með hvaða hætti laun bæjarfulltrúa sambærilegra sveitarfélaga eru ákveðin á hverjum tíma.
12.
Styrkumsókn "Hvítur, hvítur dagur"
Bæjarráð er jákvætt fyrir þátttöku í verkefninu Hvítur, hvítur dagur. Bæjarráð samþykkir að veita bæjarstjóra heimild til að ganga frá samningi um afnot af húsnæði sem óskað er eftir.
13.
Umsögn um breytingu á rekstrarleyfi Hali
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfis.
14.
Umsókn um útgáfu leyfa nýtt rekstrarleyfi fyrir Hvamm ehf
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfis.
15.
Umsókn um lóð Álaleira 17
Bæjarráð móttekur erindi um skil á lóð.
16.
Athugasemd vegna úthlutunar lóðar að Hafnarbraut 6
Erindi móttekið og vísað í afgreiðslu í lið nr. 17.
17.
Umsókn um lóð, Hafnarbraut 6
Bæjarráð samþykkti endurúthlutun lóðar að Hafnarbraut 6 á fundi 11. maí 2015. Framkvæmdir eru ekki hafnar á lóðinni innan þess frest sem reglur sveitarfélagsins um úthlutun á byggingarrétti segja til um.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að tilkynna lóðarhafa um afturköllun á lóðarúthlutun í samræmi við 8.gr. reglna sveitarfélagsins um úthlutun á byggingarrétti.
18.
Umsókn um lóð Hafnarbraut 6
Umsókn Arnarsýn ehf. um lóð að Hafnarbraut 6 var lögð fram á fundi 17. október. Á þeim fundi mælti bæjarráð með að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir. Málinu var vísað til bæjarstjórnar. Bæjarstjórn hefur ekki fjallað um málið og lóðinni því ekki verið úthlutað.
Þar sem komið hefur í ljós að lóðinni að Hafnarbraut 6 hefur áður verið úthlutað til Humarhafnarinnar 11. maí 2015 og þeim ekki verið tilkynnt með lögformlegum hætti afturköllun á lóðaúthlutun er lóðin ekki laus til úthlutunar. Bæjarráð er því ekki stætt á öðru en hafna lóðaumsókn Arnarsýnar ehf. frá 11. október 2016.
19.
Umsókn um lóð, Hafnarbraut 38
Bæjarráð samþykkti endurúthlutun lóðar að Hafnarbraut 38 á fundi 23. nóvember 2015. Framkvæmdir eru ekki hafnar á lóðinni innan þess frest sem reglur sveitarfélagsins um úthlutun á byggingarrétti segja til um.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að tilkynna lóðarhafa um aftuköllun á lóðarúthlutun í samræmi við 8.gr. reglna sveitarfélagsins um úthlutun á byggingarrétti.
20.
Umsókn um lóð, Hagatún 16
Bæjarráð samþykkti endurúthlutun lóðar að Hafnarbraut 38 á fundi 8. ágúst 2015. Framkvæmdir eru ekki hafnar á lóðinni innan þess frest sem reglur sveitarfélagsins um úthlutun á byggingarrétti segja til um.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að tilkynna lóðarhafa um aftuköllun á lóðarúthlutun í samræmi við 8.gr. reglna sveitarfélagsins um úthlutun á byggingarrétti.