Bæjarráð Hornafjarðar
787. fundur
7. nóvember 2016
kl.
16:00
-
18:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason
formaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Umhverfisnefnd - 22
Umræður um aðgerðaáætlun í umhverfismálum. Aðgerðaáætlun samþykkt. Umræður um verkefnið plastpokalaus Hornafjörður. Bæjarráð fagnar þeirri vinnu sem komin er af stað.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Skipulagsnefnd - 21
Umræður um deiliskipulag við Júllatún/Víkurbraut.
Umræður um ósk um aðalskipulagsbreytingu að Svínhólum.
Fundargerð samþykkt.
Umræður um ósk um aðalskipulagsbreytingu að Svínhólum.
Fundargerð samþykkt.
3.
Umsókn um lóð Álaleira 17
Umsókn Atla Arnarsonar um lóð að Álaleiru 17 lögð fram. Umsækjandi hefur áður fenigið úthlutað lóða að Hagaleiru 10a sem óskað er eftir að skila inn.
Bæjarráð mælir með að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir. Einnig samþykkt skil á lóð að Hagaleiru 10a. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
4.
Umsókn um lóð að Fákaleiru 6
Umsókn Sigurður Guðnasonar um lóð að Fákaleiru 6 lögð fram.Áður hefur umsækjandi sótt um lóð að Hagaleiru 4 sem fallið er frá með þessari umsókn.
Bæjarráð mælir með að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
5.
Umsókn um lóð Hagaleira 6
Umsókn Óla Kristjáns Benediktssonar um lóð að Hagaleiru 6 lögð fram.
Bæjarráð mælir með að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
6.
Umsókn um lóð Fákaleira 9
Umsókn Guðlaugs J. Vilhjálmssonar um lóð að Fákaleiru 9 lögð fram.
Bæjarráð mælir með að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
7.
Viðauki III við fjárhagsáætlun 2016
Fjármálastjóri og bæjarstjóri fóru yfir breytingar sem viðaukinn fjallar um.
Bæjarráð vísar viðauka III til afgreiðslu í bæjarstjórn.
8.
Álagningarreglur 2017
Tillaga að að álagningarreglum lögð fram
Lögð fram eftirfarandi tillaga að álagningarreglum 2017:
Útsvar 14,52%
Fasteignaskattur á íbúðahúsnæði 0,50% af fm (hám. 0,625%)
Fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði 1,62% af fm (hám. 1,65%)
Lóðaleiga 1% af lóðamati
Holræsagjöld 0,30% af fasteignamati
Vatnsgjöld 0,18% af fasteignamati
Sorpgjöld eru skv. gjaldskrá
Samþykkt að vísa reglunum til bæjarstjórnar.
Útsvar 14,52%
Fasteignaskattur á íbúðahúsnæði 0,50% af fm (hám. 0,625%)
Fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði 1,62% af fm (hám. 1,65%)
Lóðaleiga 1% af lóðamati
Holræsagjöld 0,30% af fasteignamati
Vatnsgjöld 0,18% af fasteignamati
Sorpgjöld eru skv. gjaldskrá
Samþykkt að vísa reglunum til bæjarstjórnar.
9.
Fjárhagsáætlun 2017
Fjármálastjóri og bæjarstjóri fóru yfir fjárhagsáætlun ársins 2017.
Lagðar fram niðurstöður könnunar sem var á vef sveitarfélagsins í október. Þar gátu íbúar komið skoðun sinni varðandi framkvæmdir 2017 á framfæri. Samþykkt að vísa fjárhagsáætlun til fyrri umræðu bæjarstjórnar.
10.
Þriggja ára áætlun 2018-2020
Fjármálastjóri fór yfir áætlunina
Samþykkt að vísa þriggja ára áætlun til fyrri umræðu bæjarstjórnar.
11.
Skipurit fyrir sveitarfélagið
Bæjarstjóri kynnti nýtt skipurit sveitarfélagsins
Skipuriti vísað til afgreiðaslu í bæjarstjórn.
12.
Endurskoðun á rekstrarfyrirkomulagi flugvalla
Bæjarráð ítrekar fyrri bókanir sínar í þessum efnum og mikilvægi þess að Hornafjarðarflugvöllur verði í flokki 1, þannig að hann geti þjónað millilandaflugi.
13.
Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2016/2017
Sótt var um byggðakvóta í samræmi við auglýsingu Atvinnuvega-og nýsköpunarráðuneytis dags.6. september 2016 í hlut sveitarfélagsins koma 30 þorskígildistonn.
Vísað til atvinnumálanefndar til skoðunar hvort óska eigi eftir breytingm á úthlutunarreglum á byggðakvóta.
14.
Frekari gögn vegna samkeppnishamlandi aðgerða sveitarfélagsins.
Erindi frá Samkeppniseftirlitinu vegna kvörtunar Ice Lagoon ehf.
Lagt fram til kynningar.
15.
Uppboð á jörðinni Fell við Jökulsárlón
Sýslumaðurinn á Suðurlamdi hefur tekið tilboði í jörðina Fell og hefur ríkið nú frest til 11. nóvember til að ganga inn í tilboðið. Bæjarráð sér augljósa kosti þess að jörðin verði í eigu opinberra aðila út frá almannahagsmunum og hvetur ríkið til að nýta sér forkaupsréttinn.
16.
Fundargerðir SASS 2016
Fundargerðir stjórnar SASS nr. 512 og 513 lagðar fram.
Lagt fram til kynningar.