Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

788. fundur
14. nóvember 2016 kl. 16:00 - 18:50
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 277
Málsnúmer 1611003F
Umræður um húsnæðismál og húsmæðisáætlun sveitarfélagsins.
Umræður um breytingar í málefnum fatlaðs fólks m.a. þar sem Hólabrekka hefur hætt starfsemi.
Fundargerð samþykkt.
2.
Atvinnumálanefnd - 21
Málsnúmer 1610008F
Umræður um fyrirkomulag jólahátíðar í ár.
Umræður um framtíðarsýn Jöklaleiðarinnar. Árdís greindi frá stöðu og verkefnisins og að sótt hefur verið um styrk til skipulagsvinnu.
Umræður um atvinnuástand.
Fundargerð samþykkt.
3.
Drög að nýrri reglugerð um heimagistingu og fl. til umsagnar
Málsnúmer 201611012
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi fór yfir minnisblað með athugasemdum við drög að reglugerð.
Bæjarráð Hornafjarðar tekur undir bókun frá 21. fundi atvinnumálanefndar varðandi drög að nýrri reglugerð um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Ljóst er að nái breyting á reglugerð óbreytt fram að ganga muni það hafa víðtæk neikvæð áhrif á sveitarfélögin og íbúa þeirra, m.a. með auknum álögum vegna umsagna á sama tíma og sveitarfélögin verða fyrir tekjumissi vegna breytingu á skráningum heimagistingar. Þar að auki skerðir reglugerðin möguleika íbúa til reksturs heimagistingar, en á þriðja tug heimila hafa tekjur af slíkum rekstri í Sveitarfélaginu Hornafirði. Harmar bæjarráð einnig skertar öryggiskröfur vegna gistingar og niðurfellingu á kröfum um bílastæði gesta.

Leggst bæjarráð Hornafjarðar því harðlega gegn því að að ný reglugerð um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald verði samþykkt án breytinga. Er atvinnu- og ferðamálafulltrúa falið að senda athugasemdir til Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna umsagnar um reglugerðina.
4.
Fráveita á Höfn - hreinsivirki
Málsnúmer 201601013
Skipulagsstjóri fór yfir breytingar frá síðustu umræðu um hreinsivirki
Húsnæðið hefur verið minnkað talsvert og dælur settar í blautrými sem gefur möguleika á meiri minnkun húsnæðis. Áfram er gert ráð fyrir steinsteyptu húsi, tveim síum til að minnka niðurtíma stöðvarinnar.
Hönnunar vinna mun að mestu leiti klárast á þessu ári og endanlega í byrjun árs 2017. Lagt er til að hreinsibúnaður verði keyptur núna vegna góðrar stöðu krónunnar og endanleg hönnun fer eftir hvaða búnaður keyptur er í stöðina.
Bæjarráð samþykkir að fara í endanlega hönnun og kaupa búnað.
5.
Samrekinn leik- og grunnskóli í Hofgarði
Málsnúmer 201604058
Ragnhildur Jónsdóttir fór yfir rekstur leik- og grunnskóla í Hofgarði ásamt húsnæðismálum starfsfólks. Bæjarstjóra og fræðslustjóra falið að vinna að lausn málsins í samvinnu við starfsfólk.
6.
Hugmyndir og ábendingar um verkefni í framkvæmdir sveitarfélagsins 2017
Málsnúmer 201611003
Niðurstöður úr spurningu október mánaðar kynntar
Frestað til næsta fundar.
7.
Humarhátíð 2016
Málsnúmer 201605011
Fulltrúi Humarhátíðar fór yfir uppgjör hátíðarinnar 2016
Gunnar Ingi fór yfir uppgjör Humarhátíðar 2016.
Umræður um framtíðarfyrirkomulag hátíðarinnar. Fyrirhugað er að hafa hátíðina með svipuðu sniði 2017 og var í ár.
8.
Fjárhagsáætlun 2017
Málsnúmer 201609012
Umsjónarmaður kynnir forgangsröðun í viðhaldi 2017.
Usmjónarmaður fasteigna fór yfir viðhaldsáætlun 2017.
Bæjarráð samþykkir framlagða viðhaldsáætlun.
9.
Skipurit fyrir sveitarfélagið
Málsnúmer 201611026
Bæjarstjóri fór yfir tillögu að nýju skipuriti sveitarfélagsins. Frá síðustu umræðu hefur Heilbrigðisstofnun HSU Hornafirði verið bætt inn á skipuritið. Kominn er samningur við sveitarfélagið um rekstur stofnunarinnar til næstu þriggja ára.
10.
Umsögn um útgáfu leyfa rekstrarleyfi fyrir Nýheima veitingarstað
Málsnúmer 201611041
Erindi frá Sýslumanni dags. 9. nóvember þar sem óskað er eftir umsögn um nýtt rekstrarleyfi Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu að Litlubrú 2 fyrir veitingastað í flokki I
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfis.
11.
Umsögn um útgáfu leyfa Rakel Þóra Einarsdóttir
Málsnúmer 201611042
Erindi frá Sýslumanni dags. 8. nóvember þar sem óskað er eftir umsögn um rekstarleyfi fyrir heimagistingu að Bogaslóð 4. Gististaður í flokki I
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
Samkvæmt aðalskipulagi sveitarfélagsins er ekki heimilt að selja gistingu í flokki 1, gistirými í heimagistingu í íbúðarbyggð á Höfn, í meira en fjórum herbergjum í íbúð. Bæjarráð bendir jafnframt á að, ávallt skal í það minnsta einn af heimilismönnum búa á heimilinu og gegna hlutverki næturvarðar skv. 10. gr. reglugerðar um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr.585/2007.
12.
Umsögn um útgáfu leyfa Elín Ýr Sigurbjörnsdóttir
Málsnúmer 201611049
Erindi frá Sýslumanni dags. 10. nóvember þar sem óskað er eftir umsögn um rekstarleyfi fyrir heimagistingu að Hraunhól 7. Gististaður í flokki I
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
Samkvæmt aðalskipulagi sveitarfélagsins er ekki heimilt að selja gistingu í flokki 1, gistirými í heimagistingu í íbúðarbyggð á Höfn, í meira en fjórum herbergjum í íbúð. Bæjarráð bendir jafnframt á að, ávallt skal í það minnsta einn af heimilismönnum búa á heimilinu og gegna hlutverki næturvarðar skv. 10. gr. reglugerðar um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr.585/2007.
13.
Málþing um söfn og ferðaþjónustu 18. nóvember
Málsnúmer 201611050
Samband Íslenskra Sveitarfélaga í samráði við Safnaráð og Íslandsstofu standa að málþingi um söfn og ferðaþjónustu þar sem rætt verður um hlutverk og stöðu safna og tengdrar starfsemi.
Málþinginu verður streymt og hvetur bæjarráð áhugasama að fylgjast með útsendingunni.
14.
Veglagning um Hornafjörð
Málsnúmer 201610053
Bæjarstjóri lagði fram drög að svari við erindi Hollvina Hornafjarðar frá fundi 31. október sl.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfinu.