Bæjarráð Hornafjarðar
790. fundur
28. nóvember 2016
kl.
16:00
-
19:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason
formaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Bygging leikskóla undir Fiskhól undirskriftir
Bæjarráð hitti hluta starfsmanna beggja leikskólanna í sal Krakkakots og ræddi við þá ákvörðun um viðbyggingu við Lönguhóla. Fundurinn var í samræmi við ákvörðun bæjarráðs frá síðasta fundi. Fram komu sjónarmið um aðra forgangsröðun og aðra verktilhögun en meirihluti bæjarstjórnar hefur ákveðið og voru þau mál rædd.
2.
Undirskriftalisti vegna hringvegar um Hornafjörð
Fulltrúar undirskriftalista til stuðnings leiðar 3b yfir Hornafjarðarfljót mættu á fund bæjarráðs og afhentu 224 undirskriftir.
3.
Atvinnumálanefnd - 22
Umræður um stefnumótandi stjórnunaráætlun fyrir ferðaþjónustu í hverjum landshluta og samstarf í ferðamálum á Suðurlandi.
Framtíðarsýn Miklagarðs rædd.
Fundargerð samþykkt.
Framtíðarsýn Miklagarðs rædd.
Fundargerð samþykkt.
4.
Menningarmálanefnd - 22
Umræður um umsóknir menningarstyrkja. Bæjarráð lagði til að umsóknarfrestur verði framlengdur.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
5.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 21
Umræður um drög að teikningum að nýju hjúkrunarheimili.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
6.
Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2016/2017
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi kynnti hugmynd að úthlutn byggðakvóta. Bæjarráð felur starfsmanni að senda inn ósk um sérreglur vegna fullvinnslu til neytenda á heimamarkaði.
7.
Tjaldsvæði á Höfn - Útboð 2016
Árdís kynnti drög að auglýsingu vegna reksturs tjaldsvæðis á Höfn.
Bæjarráð samþykkir að auglýsa rekstur tjaldsvæðis á Höfn. Leigusamningur verði gerður frá 1. janúar 2017 til 1. janúar 2032.
Bæjarráð samþykkir að auglýsa rekstur tjaldsvæðis á Höfn. Leigusamningur verði gerður frá 1. janúar 2017 til 1. janúar 2032.
8.
Menningarstefna Hornafjarðar
Bryndís kynnti menningarstefnu Hornafjarðar sem búin er að vera í vinnslu hjá Menningarmálanefnd undanfarna mánuði.
Bæjarráð vísar menningarstefnu Hornafjarðar til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Bæjarráð vísar menningarstefnu Hornafjarðar til afgreiðslu í bæjarstjórn.
9.
Samningur við Rannsóknir og greiningu
Bæjarráð samþykkir að gerður verði samningur við Rannsóknir og greiningu næstu tvö árin.
10.
Staða leikskóla- og dagvistarmála
Fræðslustjóri kynnti drög að reglum vegna foreldragreiðslna. Málinu vísað til áframhaldandi vinnu. Fræðslustjóra falið að auglýsa aftur eftir dagforeldrum og starfsmönnum á leikskóla.
11.
Áskorun frá Kennurum Grunnskóla Hornafjarðar
Áskorun kennara við Grunnskóla Hornafjarðar lögð fram.
Bæjarráð Hornafjarðar hefur þungar áhyggjur af þeirri grafalvarlegu stöðu sem er að skapast í kjarabaráttu grunnskóla- og tónlistarkennara. Bæjarráð skorar á samninganefndir FG,FT og SNS að leita allra leiða til að ná samningum hið fyrsta.
Bæjarráð Hornafjarðar hefur þungar áhyggjur af þeirri grafalvarlegu stöðu sem er að skapast í kjarabaráttu grunnskóla- og tónlistarkennara. Bæjarráð skorar á samninganefndir FG,FT og SNS að leita allra leiða til að ná samningum hið fyrsta.
12.
Álagningareglur 2017
Fjármálastjóri fór yfir álagningarreglur og upplýsti að engar breytingar hafa verið gerðar á álagningarrelgum frá fyrri umræðu í bæjarstjórn.
13.
Fjárhagsáætlun 2017
Fjármálastjóri fór yfir fjárhagsáætlun og upplýsti að engar breytingar hafa verið gerðar á fjárhagsáætlun frá fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.
14.
Þriggja ára áætlun 2018-2020
Fjármálastjóri fór yfir þriggja ára áætlun og upplýsti að engar breytingar hafa verið gerðar frá fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.
15.
Skipurit fyrir sveitarfélagið
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að skipuriti sveitarfélagsins og vísar til afgreiðslu í bæjarstjórn.
16.
Tölvu og fjarskiptamál sveitarfélagsins
Umræður voru um fyrirkomulag tölvu- og fjarskiptamála hjá sveitarfélaginu og undirstofnunum þess. Um er að ræða viðamikinn málaflokk sem tekur breytingum á milli ára. Miklir möguleikar eru á þróun í notkun tölvubúnaðar í skólum sveitarfélagsins. Mikilvægt er að skoða fyrirkomulag og uppbyggingu málaflokksins hjá sveitarfélaginu.
Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um alla samninga sem sveitarfélagið og undirstofnanir eru með vegna tölvu- og fjarskiptamála.
Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um alla samninga sem sveitarfélagið og undirstofnanir eru með vegna tölvu- og fjarskiptamála.
17.
Umsókn um lóð Vesturbraut 6
Umsókn Arnarsýnar ehf um lóð að Vesturbraut 6 lögð fram.
Bæjarráð mælir með að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
18.
Beiðni um styrk vegna samstarfsverkefnisins Bændur græða landið 2016
Bæjarráð samþykkir að veita styrk að fjárhæð 54.000 kr. til verkefnisins.
19.
Aðalfundur HAUST 2016
Fundargerð aðalfundar HAUST 2016
Lagt fram til kynningar.