Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

791. fundur
5. desember 2016 kl. 16:00 - 17:50
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Skipulagsnefnd - 22
Málsnúmer 1611008F
Umræður um deiliskipulag HSSA/Júllatún.
Fundargerð samþykkt.
2.
Umhverfisnefnd - 23
Málsnúmer 1611005F
Fundargerð samþykkt.
3.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 191
Málsnúmer 1611016F
Björn Ingi, hafnarstjóri, fór yfir fundargerðina.
Fundargerð samþykkt.
4.
Kjarasamningur Félags grunnskólakennara og Sambands Íslenskra Sveitarfélaga
Málsnúmer 201612006
Farið yfir samning og bókanir í nýjum kjarasamningi við Félag grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Bæjarráð bindur vonir við að samningurinn verði skref í átt að meiri sátt um kjaramál kennara. Bæjarráð fagnar fyrirhugaðri vinnu sem kveðið er á um að skuli vinna samkvæmt bókunum kjarasamningsins.
5.
Hugmyndir og ábendingar um verkefni í framkvæmdir sveitarfélagsins 2017
Málsnúmer 201611003
Starfsmönnum falið að vinna frekar úr svörum og vísa málefnum til umfjöllunar í nefndum.
6.
Umsókn um styrk vegna byggingaframkvæmda við Golfskálann
Málsnúmer 201611104
Sæmundur vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarstjóra falið að boða forsvarsmenn klúbbsins til fundar.
7.
Umsókn um lóð Vesturbraut 6 Ferjuklettar
Málsnúmer 201611103
Lóðin er ekki laus til umsóknar þar sem henni hefur þegar verið úthlutað.
8.
Fundargerðir SASS 2016
Málsnúmer 201602042
Fundargerðir aðalfundar SASS,stjórnar SASS nr.514 lagðar fram.
Bæjarráð lýsir yfir óánægju með tillögur að gjaldskrárbreytingum á almenningssamgöngum (Strætó) og telur hækkunina sem lögð er til bitna helst á börnum, ungmennum, öldruðum og öryrkjum sem er stór notendahópur almenningssamgangna í sveitarfélaginu. Hugmyndir um frístundakort eiga ekki við sökum eðli ferða.