Bæjarráð Hornafjarðar
792. fundur
12. desember 2016
kl.
16:00
-
16:50
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason
formaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri og staðgengill bæjarstjóra
Dagskrá
1.
Ó-öryggi ferðamanna, fjárveitingar
Erindi frá Lögreglustjóraembætti Suðurlands þar sem greint er frá að auka fjármagn sem kom frá Stjórnstöð ferðamála á þessu ári hafi ekki verið sett inn í fjárlög á næsta ári svo embættið geti skipulagt eftirlitið og fastráðið lögreglumenn. Lögreglustjóraembættið hefur óskað eftir að fjármagnið fari á föst fjárlög svo öryggi íbúa og ferðamanna verði tryggt.
Bæjarráð harmar að í fyrstu drögum fjárlaga sé fjárveiting sem veitt hafi verið í fyrra í gegnum Stjórnstöð ferðamála felld út. Bæjarráð tekur undir áhyggjur lögreglustjóraembættisins, þar sem ferðamannastraumur hefur aukist á Suðurlandi. Fjármagnið frá Stjórnstöð ferðamála var nýtt í aukið eftirlit í Öræfum, hálendinu og uppsveitum Árnessýslu. Ljóst er að öryggi ferðamanna og íbúa er ógnað ef ekki fást fjármunir til að halda uppi löggæslu á svæðunum.
Bæjarráð skorar á Alþingi að setja aukið fjármagn til Lögreglustjóraembættisins á Suðurlandi og samþykki að bæta því á föst fjárlög.
Bæjarráð skorar á Alþingi að setja aukið fjármagn til Lögreglustjóraembættisins á Suðurlandi og samþykki að bæta því á föst fjárlög.
2.
Erindi um tæki í Sporthöllina
Erindi frá rekstaraðilum Sporthallarinnar um viðhald á tækjakosti líkamsræktarinnar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og fjármálastjóra að skoða málið nánar og mögulega útfærslu samnings.
3.
Rafhleðslustöð - gjöf frá Orkusölunni ehf.
Finna þarf stað fyrir hleðslustöðina.
Orkusalan afhenti sveitarfélaginu hleðslustöð fyrir rafbíla, með þessu vill fyrirtækið auðvelda rafbílaeigendum að komast leiðar sinnar í nærsamfélaginu. Hleðslutækin sem Orkusalan valdi eru sterkbyggð nettengjanleg 22 kW EVLINK tæki.
Bæjarráð leggur til að hleðslustöðin verði sett upp á bílastæði við sundlaugina.
Bæjarráð leggur til að hleðslustöðin verði sett upp á bílastæði við sundlaugina.
4.
Bekkir á gönguleið fyrir eldri borgara
Sjúkraþjálfarar á Hornafirði, Heilbrigðisstofnunin ásamt Félagi eldri Hornfirðinga, leita nú eftir samstarfi við Sveitarfélagið Hornafjörð um átak til að fjölga bekkjum í bænum. Hugmyndin er að kortleggja 1 km gönguleið, sem hentar eldri borgurum og öðrum sem lakir eru til gangs. Tryggt verði að ekki verði meira en 250 m á milli bekkja, sem er forsenda þess að fjölmargir treysti sér til að ganga úti.
Bæjarráð tekur jákvætt í samstarf við hlutaðeigandi aðila. Málinu vísað til áframhaldandi vinnu.
5.
Landskipti við Bjarnarneskirkju
Erindi frá Ríkiseignum dags. 6. október 2016 þar sem óskað er eftir samþykki bæjarstjórnar vegna fyrirhugaðra landskipta á 14275 fm. spildu með landnúmeri 159464 undir Bjarnarneskirkju.
Bæjarráð vísar málinu til staðfestingar í bæjarstjórn.
6.
Áramótabrenna 2016
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfis vegna áramótabrennu Björgunarfélagsins.
7.
Umsókn um lóð að Hagaleiru 10 a
Umsókn Brimdísar Klöru Runólfsdóttur um lóð að Halaleiru 10 a lögð fram.
Bæjarráð frestar umfjöllun og felur starfsmanni að hafa samband við umsækjanda vegna fyrirhugaðs framkvæmdatíma.
8.
Umsögn um útgáfu leyfa tímabundið áfengisleyfi Þorrablót suðursveitar/mýra 2017
Erindi frá Sýslumanninum á suðurlandi dags. 2. desember 2016 um tímabundið áfengisleyfi lagt fram.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
9.
Umsögn um útgáfu leyfa Stefanía Sigurjónsdóttir
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi dags. 8. desember 2016 þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi fyrir heimagistingu að Bogaslóð 6. Gististaður í flokki I.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
Samkvæmt aðalskipulagi sveitarfélagsins er ekki heimilt að selja gistingu í flokki 1, gistirými í heimagistingu í íbúðarbyggð á Höfn, í meira en fjórum herbergjum í íbúð. Bæjarráð bendir jafnframt á að, ávallt skal í það minnsta einn af heimilismönnum búa á heimilinu og gegna hlutverki næturvarðar skv. 10. gr. reglugerðar um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr.585/2007.
Samkvæmt aðalskipulagi sveitarfélagsins er ekki heimilt að selja gistingu í flokki 1, gistirými í heimagistingu í íbúðarbyggð á Höfn, í meira en fjórum herbergjum í íbúð. Bæjarráð bendir jafnframt á að, ávallt skal í það minnsta einn af heimilismönnum búa á heimilinu og gegna hlutverki næturvarðar skv. 10. gr. reglugerðar um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr.585/2007.