Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

793. fundur
19. desember 2016 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 278
Málsnúmer 1612003F
Fundargerð samþykkt.
2.
Sérstakar húsnæðisbætur
Málsnúmer 201612011
Félagsmálastjóri fór yfir drög að reglum um sérstakan húsnæðisstuðning. Bæjarráð samþykkir framlagðar reglur.
3.
Samningur við Hólabrekku
Málsnúmer 201605018
Farið yfir stöðu mála og niðurstöðu meirihluta sáttanefndar ásamt sératkvæði lögmanns sveitarfélagsins. Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
4.
Staða sveitarsjóðs 2016
Málsnúmer 201604057
Fjármálastjóri fór yfir stöðu sveitarsjóðs. Staðan er í samræmi við áætlanir.
5.
Gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald
Málsnúmer 201612053
Ákveðið að fara í endurskoðun á gjaldskrá. Starfsmönnum falið að koma með drög að endurskoðaðri gjaldskrá.
6.
Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2017
Málsnúmer 201612051
Umræður um fjárlagafrumvarp 2017.
Bæjarráð leggur mikla áherslu á að fjármunir verði tryggði í fjárlögum ríkisins 2017 til að standa við áætlanir og samninga sem gerðir hafa verið. Má þar nefna samgönguáætlun og nauðsynlega uppbyggingu í innviðum vegna fjölgunar ferðamanna.
7.
Tölvu og fjarskiptamál sveitarfélagsins
Málsnúmer 201601097
Umræður voru um fyrirkomulag tölvu- og fjarskiptamála hjá sveitarfélaginu.
Bæjarráð telur að fara þurfi í heildarendurskoðun á fyrirkomulagi þjónustusamninga vegna málaflokksins af þar til bærum aðilum. Í ákvörðuninni felst meðal annars heimild til uppsagna samninga.
Bæjarráð felur starfsmönnum að upplýsa þjónustuaðila um þessa ákvörðun og koma með tillögu að úttektaraðila á upplýsingatæknimálum hjá sveitarfélaginu í heild.
8.
Umsögn um útgáfu leyfa breyting Pálmi Freyr
Málsnúmer 201611096
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi dags. 16. desember 2016 þar sem óskað er eftir umsögn um breytingu á rekstrarleyfi fyrir heimagistingu að Bugðuleiru 6. Gististaður í flokki I.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
Samkvæmt aðalskipulagi sveitarfélagsins er ekki heimilt að selja gistingu í flokki 1, gistirými í heimagistingu í íbúðarbyggð á Höfn, í meira en fjórum herbergjum í íbúð. Bæjarráð bendir jafnframt á að, ávallt skal í það minnsta einn af heimilismönnum búa á heimilinu og gegna hlutverki næturvarðar skv. 10. gr. reglugerðar um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr.585/2007.
9.
Fundargerðir HAUST 2016
Málsnúmer 201602043
Fundargerð 132 lögð fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.