Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

794. fundur
30. desember 2016 kl. 13:00 - 16:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 22
Málsnúmer 1612008F
Farið yfir fundargerð.
Fundargerð samþykkt.
2.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 27
Málsnúmer 1611013F
Farið yfir fundargerð.
Ragnhildur upplýsti að ungmennaráð hefur verið að velta fyrir sér ungmennahúsi eða aðstöðu til að koma saman og ræða málin, taka í spil og horfa á mynd. Upp hafa komið hugmyndir um nokkra staði. Greina þarf hvað hvað ungmennahús eigi að bjóða uppá.
Rætt um samræmd próf og framkvæmd þeirra. Nú voru prófin framkvæmd á rafrænan hátt sem er nýtt. Fræðslustjóri upplýsti að í samræmi við bókun nr.1 í kjarasamngingi Félags grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga er hafin vinna í samræmi við bókunina. Fyrsta skrefið er að trúnaðarmenn safni upplýsingum frá kennurum.
Bæjarráð þakkar leikskólastjórunum Margréti Ingólfsdóttur og Snæfríði Hlín Svavarsdóttur sem láta af störfum nú um áramótin fyrir farsælt samstarf og vel unnin störf í þágu leikskólamála í sveitarfélaginu.
Fundargerð samþykkt.
3.
Menntastefna sveitarfélagsins 2015-2030
Málsnúmer 201507038
Fræðslustjóri kynnti.
Bæjarráð samþykkir að vísa menntastefu til afgreiðslu í bæjarstjórn.
4.
Reglur um styrkveitingar fræðslu- og tómstundanefndar
Málsnúmer 201612015
Farið yfir reglur um styrkveitingar og komið með ábendingar varðandi lið 4. Fræðslustjóra falið að ganga frá reglunum í samráði við fulltrúa fræðslu- og tómstundarnefndar.
Málið tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
5.
Gjaldskrá sundlaugar 2017
Málsnúmer 201612045
Farið yfir gjaldskrá sundlaugar.
Bæjarráð leggur til að elli- og örorkulífeyrisþegar með lögheimili utan sveitarfélagsins greiði 500 krónur fyrir stakan miða í sund.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrá sundlaugar 2017.
6.
Reglur um þátttöku í farsímakostnaði
Málsnúmer 201612077
Bæjarstjóri kynnti hugmynd að þátttöku sveitarfélagsins í farsímakostnaði starfsmanna sem starfa sinna vegna þurfa farsíma.
Bæjarráð samþykkir framlögð drög að reglum og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
7.
Sjúkraflutningar frá Hornafirði
Málsnúmer 201612087
Farið yfir atburðarrás sjúkraflugs 28. desember 2016 en þá var ekki hægt að flytja alvarlega veikan sjúkling til Reykjavíkur á Landsspítala háskólasjúkrahús. Hornafjörður er afskekkt og ekki óalgengt að hringvegurinn lokist annað hvort til austurs eða vesturs, eða jafnvel í báðar áttir, vegna veðurs. Langt er í næstu aðstoð, þegar þörf er á liðsauka. Næsta sjúkrahús er Norðfjörður 360 km eða Selfoss 400 km, sem er langur akstur með alvarlega veikt fólk.
Bæjarráð krefst að NA-SV braut 06/24 Reykjavíkurflugvallar verði opin í neyðartilfellum á meðan aðrar lausnir eru ekki tiltækar. Það er grundvallaratriði að á hverjum tíma séu tryggðar samgöngur af landbyggðinni við Landsspítala Háskólasjúkrahús sem er hefur þá skildu að sinna neyðarþjónustu við alla landsmenn.
8.
Athugasemdir vegna umfjöllunar erinda
Málsnúmer 201612066
Farið yfir athugasemdir við stjórnsýslu sveitarfélagsins.
Öll erindi hafa verið skráð í málakerfi sveitarfélagsins eins og venjar er með slík erindi. Fjallað hefur verið efnislega um erindin í nefndum og/eða bæjarráði og bæjarstjórn.
Bæjarráð hafnar þeim ávirðingum að um lélega stjórnsýslu sé að ræða.
Erindum til sveitarfélagsins ber að skila í gegnum íbúagátt. Íslendingar búsettir erlendis geta sótt um Íslykil í gegnum www.island.is
9.
Endurskoðun á ferðaþjónustukafla Aðalskipulags Hornafjarðar 2012-2030
Málsnúmer 201612007
Farið yfir minnisblað skipulagsstjóra.
bæjarráð felur skipulagsnefnd að skoða málið og koma með tillögu til bæjarstjórnar.
10.
Umsögn um útgáfu leyfa endurnýjun Jöklasýn ehf
Málsnúmer 201612020
Erindi frá Sýslumanni dags. 8. desember þar sem óskað er eftir umsögn um endurnýjun rekstarleyfis fyrir gististað í flokki II íbúðir Júllatúni 15.
Sótt er um rekstur á gististað í flokki II. Rekstur í flokki II á þessum stað samræmist ekki aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030. Á þeim grunni gefur bæjarráð neikvæða umsögn um útgáfu leyfisins.
11.
Umsögn um útgáfu tækifærisleyfis Skátamót ehf
Málsnúmer 201610073
Erindi frá Sýslumanni dags. 21. október þar sem óskað er eftir umsögn um tækifærisleyfi í Skaftafelli.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
12.
Umsögn um útgáfu leyfa endurnýjun og breyting Dyngja ehf
Málsnúmer 201612061
Erindi frá Sýslumanni dags. 20. desember þar sem óskað er eftir umsögn um endurnýjun og breytingu á rekstrarleyfis Gistiheimilið Dyngja ehf. að Hafnarbraut 1. Gististaður, gistiheimili í flokki II.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
13.
Umsögn um útgáfu leyfa nýtt rekstrarleyfi Ólöf Gísladóttir
Málsnúmer 201612060
Erindi frá Sýslumanni dags. 20. desember þar sem óskað er eftir umsögn um nýtt rekstrarleyfi fyrir heimagistingu að Hrísbraut 2. Gististaður í flokki I.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
Samkvæmt aðalskipulagi sveitarfélagsins er ekki heimilt að selja gistingu í flokki 1, gistirými í heimagistingu í íbúðarbyggð á Höfn, í meira en fjórum herbergjum í íbúð. Bæjarráð bendir jafnframt á að, ávallt skal í það minnsta einn af heimilismönnum búa á heimilinu og gegna hlutverki næturvarðar skv. 10. gr. reglugerðar um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr.585/2007.
14.
Umsögn um breytingu á leyfi Heiðveig M Jónsdóttir
Málsnúmer 201612057
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi dags. 16. desember 2016 þar sem óskað er eftir umsögn um breytingu á rekstrarleyfi fyrir heimagistingu að Hæðagarði 17. Gististaður í flokki I.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
Samkvæmt aðalskipulagi sveitarfélagsins er ekki heimilt að selja gistingu í flokki 1, gistirými í heimagistingu í íbúðarbyggð á Höfn, í meira en fjórum herbergjum í íbúð. Bæjarráð bendir jafnframt á að, ávallt skal í það minnsta einn af heimilismönnum búa á heimilinu og gegna hlutverki næturvarðar skv. 10. gr. reglugerðar um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr.585/2007.
15.
Umsögn um útgáfu leyfa endurnýjun og breyting á rekstarleyfi Bjarni Hákonarson
Málsnúmer 201612037
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi dags. 13. desember 2016 þar sem óskað er eftir umsögn um endurnýjun og breytingu á rekstrarleyfi fyrir gistiheimilið Dilksnesi. Gististaður í flokki III.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
16.
Umsögn um útgáfu leyfa endurnýjun Ásta Á Halldórsdóttir
Málsnúmer 201612041
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi dags. 14. desember 2016 þar sem óskað er eftir umsögn um endurnýjun rekstrarleyfi fyrir heimagistingu að Hlíðartúni 1. Gististaður í flokki I.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
Samkvæmt aðalskipulagi sveitarfélagsins er ekki heimilt að selja gistingu í flokki 1, gistirými í heimagistingu í íbúðarbyggð á Höfn, í meira en fjórum herbergjum í íbúð. Bæjarráð bendir jafnframt á að, ávallt skal í það minnsta einn af heimilismönnum búa á heimilinu og gegna hlutverki næturvarðar skv. 10. gr. reglugerðar um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr.585/2007.
17.
Fundargerðir SASS 2016
Málsnúmer 201602042
Fundargerð 515
Lögð fram til kynningar.
Sæmundur fór yfir liði 2,3, 5, 7,