Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

795. fundur
9. janúar 2017 kl. 16:00 - 18:12
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Menningarmálanefnd - 23
Málsnúmer 1612006F
Farið yfir fundargerð. Rætt um fyrirhugað málþing og hvort dagsetning á því gengur upp.
Fundargerð samþykkt.
2.
Atvinnumálanefnd - 23
Málsnúmer 1612005F
Farið yfir fundargerð.
Fundargerð samþykkt.
3.
Menningarstefna Hornafjarðar
Málsnúmer 201504037
Menningarstefna lögð fram eftir yfirferð menningarmálanefndar.
Bæjarráð samþykkir Menningarstefnu Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2016-2026 og vísar henni til afgreiðslu í bæjarstjórn.
4.
Reglur um styrkveitingar fræðslu- og tómstundanefndar
Málsnúmer 201612015
Reglur um styrkveitingar og fræðslu- og tómstundarnefnd lagðar fram.
Bæjarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarstjórn.
5.
Fjárhagsáætlun 2017
Málsnúmer 201609012
Farið yfir tillögu að stofnbúnaðarúthlutun
Farið yfir drög að úthlutun stofnbúnaðar.
Bæjarráð vísar tillögunni til áframhaldandi vinnu.
6.
Ísland ljóstengt 2017 - Umsókn
Málsnúmer 201701017
tillaga að umsókn
Bæjarstjóri fór yfir vinnu vegna umsóknar í verkefnið Ísland ljóstengt 2017.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu og senda inn umsókn.
7.
Kerfisáætlun Landsnet 2016-2025
Málsnúmer 201701026
Formaður bæjarráðs upplýsti um fund sem hann ásamt bæjarstjóra fóru á vegna kynningar á kerfisáætlun Landsnets 2016-2025.
Bæjarráð tekur undir umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi kerfisáætlun.
8.
Samningur við Hólabrekku
Málsnúmer 201605018
Farið yfir stöðu mála. Bæjarráð felur bæjarstjóra að upplýsa málsaðila um afstöðu sveitarfélagsins í málinu.
9.
Ósk um áframhaldandi leigu á Hrollaugsstöðum
Málsnúmer 201612085
Afgreiðslu frestað til næsta fundar. Bæjarstjóra falið að afla frekari upplýsinga.
10.
Húsnæðismál á Suðurlandi - Niðurstöður könnunar
11.
Umsögn um útgáfu leyfa Hammer 300 ehf
Málsnúmer 201612078
Erindi frá Sýslumanni dags. 27. desember þar sem óskað er eftir umsögn um nýtt rekstrarleyfi að Hvannabraut 3-5 gististaður í flokki II.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
12.
Umsögn um útgáfu leyfa tímabundið áfengisleyfi Bautinn ehf
Málsnúmer 201701018
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
13.
Umsögn um útgáfu leyfa Þorrablót Hornafjarðar
Málsnúmer 201701021
Erindi frá Sýslumanni dags. 5. janúar þar sem óskað er eftir umsögn um tækifærisleyfi Þorrablótsnefnd Hornafjarðar.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
14.
Umsögn um útgáfu leyfa tímabundið áfengisleyfi þorrablót Nesja
Málsnúmer 201701022
Erindi frá Sýslumanni dags. 5. janúar þar sem óskað er eftir umsögn um tækifærisleyfi Þorrablótsnefnd Nesja- Lónmanna.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
15.
Fundargerðir viðbragðaðila Austur-Skafrafellssýslu 2017
Málsnúmer 201701005
Fundargerðir frá því í maí og desember 2016 lagðar fram til kynningar
Bæjarráð tekur undir mikilvægi þess að Öræfaeftirlit sem Lögreglan á Suðurlandi stóð fyrir sumar og haust 2016 verði framhaldið og markaðir varanlegir fjármunir til verkefnisins.
Samkvæmt fundargerð hafði eftirlitið mikil og jákvæð áhrif á svæðinu. Eftirlitið styrkti viðbragðsaðila á Kirkjubæjarklaustri, Höfn og í Öræfum. Lögreglumaður í Öræfum hefur mikil áhrif gagnvart forvörnum og skapar ákveðið öryggi fyrir íbúa sem og ferðamenn.
Bæjarráð tekur undir mikilvægi þess að koma upp aðstöðu á svæðinu fyrir eftirlits- og viðbragðsaðila. Bæjarstjóra falið að ræða möguleika við hlutaðeigandi aðila.