Bæjarráð Hornafjarðar
796. fundur
16. janúar 2017
kl.
16:00
-
17:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason
formaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Umhverfisnefnd - 24
Fundargerð lögð fram. Umræðu um Álaugareyjakletta og einstakar jarðmenjar. Bæjarráð telur verkefnið áhugavert og fræðandi.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Skipulagsnefnd - 23
Fundargerð lögð fram.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
3.
Endurskoðun á ferðaþjónustukafla Aðalskipulags Hornafjarðar 2012-2030
Skipulagsstjóri fór yfir tilboð sem sem bárust í endurskoðun á ferðaþjónustukafla aðalskipulags sveitarfélagsins 2015-2030.
Bæjarráð leggur til að gengið verði til samninga við Eflu Steinsholt á grunni tilboðs.
Bæjarráð leggur til að gengið verði til samninga við Eflu Steinsholt á grunni tilboðs.
4.
Ósk um skiptingu landspildunnar úr landi Reyðarár. (Stóramýri)
Erindi frá Landslögum dagsett. 27. desember 2016 fyrir hönd Reyðarártinds ehf. Ósk um skiptingu landspildu úr landi Reyðarár "Stóramýri" 13,4 ha.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við landaskiptin og vísar málinu til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við landaskiptin og vísar málinu til afgreiðslu í bæjarstjórn.
5.
Ósk um lausn landspildu úr landbúnaðarnotum . (Stóramýri Reyðará)
Stóramýri er samkvæmt aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar skilgreint sem afþreying (AF1) þar sem gert er ráð fyrir 10 frístundarlóðum með hringtákni 3 ha. Á uppdrætti gildandi deiliskuplags frá 1994 sést að stærð svæðis er umtalsvert stærra en 3 ha. eða um 13,4 ha. Ljóst má vera að um misritun er að ræða við gerð gildandi aðalskipulags.
Bæjarráð felur skipulagsstjóra að gera óverulega breytingu á aðalskipulagi þar sem AF1 verður stækkaður í 13,4 ha. og nafni breytt úr Stóramýri í Aðalból.
Málinu vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Bæjarráð felur skipulagsstjóra að gera óverulega breytingu á aðalskipulagi þar sem AF1 verður stækkaður í 13,4 ha. og nafni breytt úr Stóramýri í Aðalból.
Málinu vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.
6.
Vesturbraut 6: Fyrirspurn um lóðarstærð
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við stækkun lóðar í 37*32 og vísar málinu til áframhaldandi vinnu skipulagsnefndar.
7.
Umsókn um lóð Hagaleira 8
Lóðarhafi að Hagaleiru 8 óskar eftir að skila lóð.
Bæjarráð móttekur erindi um skil á lóð.
8.
Kjarasamningur Félags grunnskólakennara og Sambands Íslenskra Sveitarfélaga
Vegvísir samstarfsnefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara vegna málefna grunnskólans lagt fram.
Fræðslustjóri fór yfir innihald vegvísis.
Bæjarrráð tilnefnir fræðslustjóra sem fulltrúa sveitarfélagsins. Einnig leggur bæjarráð til að fulltrúar kennara verði þrír frá Grunnskóla Hornafjarðar og einn frá Grunnskóla Hofgarði. Málið verður einnig á dagskrá fræðslu- og tómstundarnefndar.

9.
Aðalfundur Búnaðarsambandsins 2016
Erindi barst 6. janúar 2017 frá aðalfundi Búnaðarsambands Austur-Skaftfellinga sem haldinn var 11. apríl 2016.
Bæjarráð harmar skerta póstþjónustu í dreifbýli og tekur undir þau orð Búnaðarsambands Austur-Skaftfellinga að ákjósanlegra væri að hafa fastar póstsendingar þrisvar í viku fremur en tvisvar eina vikuna og þrisvar hina. Bæjarráð bókaði um málið á fundi nr. 722 26. maí 2015 um málið. Þar sem bent er á að slík skerðing á þjónustu í dreifbýli hafi neikvæð áhrif á fjölbreytt atvinnulíf. Bæjarstjóra falið að koma afstöðu bæjarráðs á framfæri við Íslandspóst.
Varðandi aðra þætti bréfsins: fækkun hrafns, ráðningu veiðimanna í sýslunni og vaxandi ágangs refs er þeim vísað til skoðunar starfsmanna.
Varðandi aðra þætti bréfsins: fækkun hrafns, ráðningu veiðimanna í sýslunni og vaxandi ágangs refs er þeim vísað til skoðunar starfsmanna.