Bæjarráð Hornafjarðar
816. fundur
6. júní 2017
kl.
16:00
-
18:37
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir
1. varamaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 27
Farið yfir fundargerð.
Ársreikningur HSU Hornafirði 2016 var lagður fram og samþykktur á þessum fundi. Afkoma ársins 2016 var jákvæð um 3,7 milljónir króna.
Bæjarráð vísar til umfjöllunar í bæjarstjórn.
Fundargerð samþykkt.
Ársreikningur HSU Hornafirði 2016 var lagður fram og samþykktur á þessum fundi. Afkoma ársins 2016 var jákvæð um 3,7 milljónir króna.
Bæjarráð vísar til umfjöllunar í bæjarstjórn.
Fundargerð samþykkt.
2.
Uppbygging á grunni deiliskipulags útbæ Höfn - Viljayfirlýsing
Rætt við áhugasama aðilia um uppbyggingu á grunni deiliskipulags útbæ Höfn. Heilsuvernd í samstarfi við fagfjárfesta óskar eftir viljayfirlýsingu vegna uppbyggingar á svæðinu á byggingarreitum C,G,H,J í gildandi deiliskipulagi. Fyrihuguð uppbygging inniheldur meðal annars Jökulheima, ásamt hótel- og veitingarekstri.
Bæjarráð samþykkir að skrifað verði undir viljayfirlýsingu í samræmi við erndið sem gildir til 1.10.2017.
Bæjarráð samþykkir að skrifað verði undir viljayfirlýsingu í samræmi við erndið sem gildir til 1.10.2017.
3.
Forvarna- og ungmennastarf
Fræðslustjóri fór yfir tillögu að breyttum áherslum í forvarna- og ungmennastarfi hjá sveitarfélaginu. Tillagan felur í sér að verkefnastjóri á skólaskrifstofu sinni forvörnum og tómstundaverkefnum. Auglýst verði staða forstöðumanns félagsmiðstöðvar og starf aðstoðarmanns í félagsmiðstöð.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu fræðslustjóra.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu fræðslustjóra.
4.
Samningur um sálfræðiþjónustu 2017-2019
Fræðslustjóri fór yfir samning um sálfræðiþjónustu. Samningurinn er við Sensus og nær til lögbundinnar þjónustu leik- og grunnskólabarna auk barna á aldrinum 16 til 18 ára.
Þjónustusamningur við Birgi Þór Guðmundsson um sálfræðiþjónustu við íbúa sveitarfélagsins rennur út í júní. Birgir gefur ekki kost á að samningur við hann verði framlengdur, hann hefur veitt sálfræðiþjónustu til sveitarfélagsins síðustu 15 ár. Bæjarráð þakkar Birgi Þór Guðmundssyni kærlega fyrir störf hans í þágu samfélagsins og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.
Bæjarráð samþykkir framlögð drög að samningi við Sensus.

5.
Lok sambýlisins Hólabrekku
Bæjarstjóri fór yfir stöðuna.
6.
Úttekt á tölvu og fjarskiptamálum
Tilboð í rekstur og hýsingu upplýsingakerfa sveitarfélagsins Hafnar, voru opnuð þann 31.maí sl. Alls bárust átta tilboð í kerfið frá sjö bjóðendum. Kostnaðaráætlun verkkaupa var 26.040.000. Tilboðin innifela stofnkosnað við uppsetningu lausnarinnar hjá verksala og þriggja ára rekstur í samræmi við lýsingar örútboðsgagna. Þrjú tilboð voru undir kostnaðaráætlun.
Unnið er að greiningu tilboðanna.
Unnið er að greiningu tilboðanna.
7.
Útboð á sorphirðingu- og urðun
Farið yfir viðræður við Íslenska gámafélagið ehf. Lagt er til að samið verði við Íslenska gámafélagið á grunni leiðar A í útboðsgögnum
Bæjarráð kom með ábendingar við samningsdrög starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.
Bæjarráð kom með ábendingar við samningsdrög starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.
8.
Útboð fráveituframkvæmdir Nesjahverfi
Farið yfir útboðsgögn vegna 2. áfanga fráveitu í Nesjahverfi.
Bæjarráð heimilar að verkið verði boðið út.
Bæjarráð heimilar að verkið verði boðið út.
9.
Hafnarvík Heppa Uppsteypta húsið Netaloft
Eitt erindi barst vegna auglýsingar sveitarfélagsins það er frá Bjarna Ólafi Stefánssyni og Evu Birgisdóttur.
Bæjarráð felur starfsmönnum að ræða við umsækjendur á grunni greinagerðar.
Bæjarráð felur starfsmönnum að ræða við umsækjendur á grunni greinagerðar.
10.
Endurnýjun samninga slægju og beitilanda á Höfn
Skipulagsstjóri fór yfir tillögu að úthlutun. Bæjarráð leggur til að reynt verði að úthluta svæðum sem jafnast á milli aðila og fyrri notendur hafi ákveðinn forgang í sömu svæði.
11.
Umsögn um útgáfu leyfa tímabundið áfengisleyfi Bautinn
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfis.
12.
Umsögn um útgáfu leyfa breyting á rekstrarleyfi Nýpugarðar ehf
Unnið er að breytingu á Aðalskipulagi Hornafjarðar 2012-2030 þar sem starfsemi sem fram kemur í umsókn er leyfð. Vinna við aðalskipulagsbreytingu er komin það langt í ferli að sjá á fyrir endann vinnunni.
Bæjarráð ekki athugasemd við útgáfu leyfis.
Bæjarráð ekki athugasemd við útgáfu leyfis.
13.
Umsögn um útgáfu leyfa Veitingarstað Nýpugarðar
Unnið er að breytingu á Aðalskipulagi Hornafjarðar 2012-2030 þar sem starfsemi sem fram kemur í umsókn er leyfð. Vinna við aðalskipulagsbreytingu er komin það langt í ferli að sjá á fyrir endann vinnunni.
Bæjarráð ekki athugasemd við útgáfu leyfis.
Bæjarráð ekki athugasemd við útgáfu leyfis.
14.
Umsögn um útgáfu leyfa rekstrarleyfi Birkifell ehf
Unnið er að breytingu á Aðalskipulagi Hornafjarðar 2012-2030 þar sem starfsemi sem fram kemur í umsókn er leyfð. Vinna við aðalskipulagsbreytingu er komin það langt í ferli að sjá á fyrir endann vinnunni.
Bæjarráð ekki athugasemd við útgáfu leyfis.
Bæjarráð ekki athugasemd við útgáfu leyfis.
15.
Umsögn um útgáfu leyfa Adventure Hotels ehf
Farið yfir umsagnir vegna leyfis.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfis.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfis.
16.
Fyrirspurn um skipulag Jökulsárlón: Bílastæði til bráðabirgða og endurskoðun gildandi deiliskipulags
Upplýst um framkvæmdir vegna bílastæða sem farið hafa fram við Jökulsárlón. Svæðum sem eru merkileg útfrá náttuverndarlegum gildum verður hlíft.
17.
Umsókn um lóð Fákaleira 7
Umsókn Róslínar Ölmu Valdemarsdóttur um lóð að Fákaleiru 7 lögð fram.
Bæjarráð mælir með að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
18.
Umsókn um lóð Hagaleira 10 (nú Hagaleira 14)
Umsókn Sædísar Aspar Valdemarsdóttur um lóð að Hagaleiru 14 lögð fram.
Bæjarráð mælir með að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðaúthlutanir. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
19.
Fundargerðir HAUST 2017
Lögð fram til kynningar.
20.
Aukaársfundur Stapa lífeyissjóðs
Lagt fram til kynningar.