Bæjarráð Hornafjarðar
820. fundur
24. júlí 2017
kl.
12:00
-
13:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir
1. varamaður
Kristján Sigurður Guðnason
1. varamaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Kaup ungmennafélagsins Sindra á félagshúsnæði
Gísli fór yfir hugmyndir Umf.Sindra um að eignast félagsheimili fyrir starfssemi félagsins. Hugmynd er að fjárfesta í húsnæðinu að Hafnarbraut 15 sem hýst hefur starfssemi Landsbankans fram að þessu. Búið er að gera kauptilboð í húsnæðið og samkomulag komið um verð. Hugmyndin er að sveitarfélagið komið að verkefninu með um helming kaupverðs sem væri um 36 milljónir króna.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna með forsvarsmönnum Sindra að nánari útfærslu á hugmyndinni hún verður síðan lögð fyrir aftur. Einnig verði kannað hvort möguleiki er að fá lengri frest til að vinna málið.

2.
Grenndarstöðvar í dreifbýli
Farið yfir minnisblað vegna grenndarstöðva í dreifbýli. Bæjarráð er þeirrar skoðunar að slíkar stöðvar verið staðsettar í hverri sveit. Lón, Nesjum, Mýrum, Suðursveit og Öræfum. Forsenda slíkra stöðva er að landeigendur á svæðinu séu tilbúnir að láta land undir grenndarstöðvarnar. Bæjarráð óskar eftir að frekari gögnum vegna málsins og vísar málinu til áframhaldandi vinnu í umhverfisnefnd.
3.
Húsnæði Slátufélagsins Búa - Vestur hluti slátuhús
Erindi frá stjórn Sláturfélagsins Búa svf. dagsett 3. júlí 2017.Sláturfélagið Búi svf. vill hér með bjóða Sveitarfélaginu Hornafirði að taka á leigu hluta af sláturhúsinu á Höfn. Nánar tiltekið er um að ræða það rými í vesturenda sláturhússins, sem hýsti Fuglasláturhús á árunum 2004 til 2012 og þar á undan kjötvinnslu Kaupfélags Austur-Skaftfellinga. Um er að ræða rými á aðalhæð hússins um það bil 130 til 150 fermetra og einnig rými á efri hæð um það bil 50 til 60 fermetra.
Bæjarráð fór yfir erindið og vísar því til umræðu í atvinnumálanefnd og menningarmálanefnd sem kanni nýtingarmöguleika húsnæðisins.
4.
Ráðning Byggingarfulltrúa
Bæjarstjóri fór yfir niðurstöður auglýsingar um starf byggingarfulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson hefur látið af störfum sem byggingarfulltrúi sveitarfélagsins. Bæjarráð þakkar Rúnari fyrir vel unnið störf og óskar honum velfarnarðar í framtíðinni.
Niðurstaða auglýsingar á starfi byggingarfulltrúa er að ein umsókn barst í starfið frá Jóni Garðari Jónssyni. Umsækjandi lauk námi sem byggingarfræði BS frá VIA háskólanum í Horsens Danmörku 2016. Umsækjanda vantar tíma til að geta tekið próf til löggildingar sem hönnuður.
Samkvæmt minniblaði er lagt til að Gunnlaugur Róbertsson verði byggingarfulltrúi sveitarfélagsins þar til starfsmaður hefur hlotið fullgild réttindi.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna að ráðningu Jóns Garðars sem verkefnastjóra byggingarmála.
Er þetta gert með vísan í fund bæjarstjórnar nr.239 þar sem bæjarráði er veitt fullt umboð til að afgreiða mál þar til bæjarstjórn kemur aftur til starfa í ágúst.

5.
Umsögn um útgáfu leyfa Nýpugarðar ehf
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfis.
6.
Umsögn um útgáfu leyfa rekstrarleyfi f.h Vatnajökulsþjóðgarðs
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfis.
7.
Umsögn um útgáfu leyfa Fjallsárlón ehf
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfis.
8.
Ósk um umsögn að Aðalból verði að lögbýli
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við stofnun lögbýlis á umræddri jörð og felur bæjarstjóra að svara erindinu.
Er þetta gert með vísan í fund bæjarstjórnar nr.239 þar sem bæjarráði er veitt fullt umboð til að afgreiða mál þar til bæjarstjórn kemur aftur til starfa í ágúst.
Er þetta gert með vísan í fund bæjarstjórnar nr.239 þar sem bæjarráði er veitt fullt umboð til að afgreiða mál þar til bæjarstjórn kemur aftur til starfa í ágúst.
9.
Ósk um umsögn að Hellisholt verði lögbýli

10.
Tilkynning um fasteignarmat 2018
Tilkynning um fasteignamat 2018 lagt fram.
Lagt fram til kynningar.
11.
Lögreglusamþykkt Suðurlands
Lögð fram til síðari umræðu lögreglusamþykkt fyrir Suðurland.
Lögreglusamþykktin samþykkt samhljóða.