Bæjarráð Hornafjarðar
822. fundur
21. ágúst 2017
kl.
16:00
-
17:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri og staðgengill bæjarstjóra
Dagskrá
1.
Umhverfisnefnd - 31
Fundargerð samþykkt.
2.
Menningarmálanefnd - 30
Farið yfir fundargerð. Húsnæðismál safna rædd og endurbótaþörf á Skreiðarskemmu. Umræður um vefsíðu Menningarmiðstöðvar og mögulegar útfærslur. Menningarmálanefnd vinnur áfram að málinu.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
3.
Skipulagsnefnd - 30
Farið yfir fundargerð. Umræður um framtíðarskipulag og lóðaframboð á íbúðar- og atvinnusvæði í landi sveitarfélagsins. Umræður um ferðaþjónustuhluta í gildandi aðalskipulagi.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
4.
Ábending um aukna umferð á leirusvæði
Bæjarráð þakkar ábendinguna og vísar erindinu í vinnu umhverfisnefndar að umferðaröryggisáætlun sveitarfélagsins. Bæjarráð hvetur vegfarendur að sýna aðgát við akstur í íbúagötum.
5.
Útsvar - boð um þátttöku
Bæjarráð þakkar boðið og samþykkir þátttöku í Útsvari. Bæjarráð felur menningarmálanefnd að finna keppendur.
6.
Tilboð í skólaakstur í Öræfum
Ragnhildur gerði grein fyrir tilboðinu. Bæjarráð felur fræðslustjóra að semja við tilboðsgjafa um tímabundinn samning til tveggja ára með framlengingarákvæði.
7.
Kostnaðarþátttaka sveitarfélaga vegna kjarmálavinnu sambandsins
Bæjarráð vísar málinu til fjárhagsáætlunargerðar 2018.
8.
Ósk um tímabundið afnot af lóð undir efni og malbikunarstöð
Bæjarráð heimilar tímabundin afnot af lóð við Ófeigstanga 11 og 13 undir efni og malbikunarstöð.
9.
Áskorun frá Búnaðarsambandi A-skaft um að sýna sauðfjárbændum stuðning
Bæjarráð Hornafjarðar lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu sauðfjárræktar í landinu. Þær miklu afurðaverðslækkanir sem boðaðar hafa verið í haust auk seinkana á greiðslum munu valda bændum verulegum vanda á næstu mánuðum. Ljóst er að sauðfjárbændur munu eiga í erfiðleikum með að standa við skuldbindingar sínar.
Boðuð lækkun á afurðaverði til sauðfjárbænda í haust þýðir 1.800 milljóna króna launalækkun fyrir stéttina í heild, sem bætist við 600 milljóna launalækkun sem þeir urðu fyrir í fyrra.
Bæjarráð Hornafjarðar skorar á afurðarstöðvar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Ríkisstjórn Íslands að bregðast við þeim mikla vanda sem fyrirsjáanlegur er.
Boðuð lækkun á afurðaverði til sauðfjárbænda í haust þýðir 1.800 milljóna króna launalækkun fyrir stéttina í heild, sem bætist við 600 milljóna launalækkun sem þeir urðu fyrir í fyrra.
Bæjarráð Hornafjarðar skorar á afurðarstöðvar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Ríkisstjórn Íslands að bregðast við þeim mikla vanda sem fyrirsjáanlegur er.