Bæjarráð Hornafjarðar
824. fundur
4. september 2017
kl.
16:00
-
18:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Umsókn um lóð D við Óslandsveg
Einar Kristjánsson kom á fundinn og kynnti hugmyndir sínar um framkvæmdir á lóðum í Óslandi.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að útbúa tímabundna viljayfirlýsingu vegna lóða D, E og F í Óslandi. Einnig er skipulagsnefnd falið að fara yfir svæði innan Hafnar miðað við framkvæmdahugmyndir.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að útbúa tímabundna viljayfirlýsingu vegna lóða D, E og F í Óslandi. Einnig er skipulagsnefnd falið að fara yfir svæði innan Hafnar miðað við framkvæmdahugmyndir.
2.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 35
Fundargerð samþykkt.
3.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 29
Farið yfir fundargerð. Umræður sköpuðust um stöðu mála vegna byggingar nýs hjúkrunarheimilis. Send hefur verið inn umsókn í Framkvæmdasjóð aldraðra en svar hefur ekki borist. Bæjarráð lýsir enn og aftur yfir miklum áhyggjum af stöðu mála og hversu erfiðlega gengur að fá svör.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
4.
Atvinnumálanefnd - 31
Farið yfir fundargerð.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
5.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 197
Farið yfir fundargerð. Vignir gerði grein fyrir samstarfs- og þróunarverkefni á mælingabúnaði fyrir Grynnslin.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
6.
Málþing um ferðamál haust 2017
Bæjarráð tekur jákvætt í þátttöku í málþingi um ferðamál og felur atvinnu- og ferðamálafulltrúa að vinna með forsvarsmönnum Ríki Vatnajökuls að framgangi málsins og leggja það fyrir bæjarráð þegar heildstæðari mynd er komin á það.
7.
Malbikun við Hafnarskóla
Bæjarráð kallar eftir heildarskipulagi lóðar við Hafnarskóla en samþykkir malbikun á fótbolta- og körfuboltavelli vestan við skólann. Einnig verði sett lag yfir hjólabrettasvæðið við körfuboltavöllinn.
8.
Samningur um tölvuþjónustu
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu upplýsinga- og tæknimála hjá sveitarfélaginu og yfirfærslu rekstrar tölvubúnaðar til nýs rekstraraðila, Þekkingar hf. Lögð fram drög að þjónustusamningi. Næsta skref er að kynna fyrirkomulag tölvumála fyrir forstöðumönnum.
9.
Stytting vinnuvikunnar - tilraunaverkefni BSRB
Bæjarstjóri gerði grein fyrir erindi BSRB og upplýsti að framkvæmdastjóri BSRB er systir hans. Gerði grein fyrir verkefninu og boði BSRB um þátttöku sveitarfélagsins. Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um hvaða starfsstéttir sveitarfélagsins tilheyra aðildarfélögum BSRB.
10.
Umsókn um lóð Víkurbraut 10
Umsækjandi óskar eftir að skila lóð við Víkurbraut 10. Bæjarráð samþykkir skil á lóðinni.
Bæjarráð leggur til að skipulag á svæðinu verði endurskoðað og því verður lóðum við Víkurbraut 6, 8, og 10 ekki úthlutað á meðan sú endurskoðun fer fram.
Bæjarráð leggur til að skipulag á svæðinu verði endurskoðað og því verður lóðum við Víkurbraut 6, 8, og 10 ekki úthlutað á meðan sú endurskoðun fer fram.
11.
Ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og kjörbréf
Fundarboð og kjörbréf lögð fram. Bæjarráð samþykkir að Lovísa Rósa Bjarnadóttir, Ragnheiður Hrafnkelsdóttir, Ásgerður K. Gylfadóttir, Kristján Guðnason og Gunnhildur Imsland verði aðalmenn. Varamenn verða Björn Ingi Jónsson, Ottó Marwin Gunnarsson, Ásgrímur Ingólfsson, Arna Ósk Harðardóttir og Páll Róbert Matthíasson.
12.
Fundargerðir SASS 2017
Lagt fram til kynningar.