Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

825. fundur
11. september 2017 kl. 15:30 - 17:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Kristján Sigurður Guðnason 1. varamaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Hugmyndir um uppbyggingu í ferðaþjónustu á Höfn
Málsnúmer 201709394
Gísli, Þórdís og Bjarni kynntu hugmyndir um byggingu hótels við vesturenda hafnarinnar. Samkvæmt aðalskipulagi er ekki gert ráð fyrir byggingu á þessu svæði og því um nýja hugmynd að ræða í nágrenni hafnarinnar. Bæjarráð er jákvætt fyrir að kanna möguleika á gerð lóðar undir fyrirhugaðar framkvæmdir á umræddu svæði. Ef hugmyndirnar verða samþykktar í skipulagsferli mælir bæjarráð með að úthluta lóðinni til höfunda hugmyndarinnar. Skipulagsferlinu er vísað til meðferðar hjá skipulagsnefnd, umhverfisnefnd, menningarmálanefnd, atvinnumálanefnd og hafnarstjórn.
2.
Skipulagsnefnd - 31
Málsnúmer 1709001F
Farið yfir fundargerð.
Fundargerð samþykkt.
3.
Viðauki I við fjárhagsáætlun 2017
Málsnúmer 201709485
Fjármálastjóri gerði grein fyrir viðauka I við fjárhagsáætlun 2017. Málinu vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.
4.
Reglur fyrir leikskóla Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 201709061
Ragnhildur gerði grein fyrir reglunum. Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu í bæjarstjórn.
5.
Endurbætur á girðingu kirkjugarði að Brunnhól
Málsnúmer 201709216
Lagt fram erindi sóknarnefndar vegna endurbóta á girðingu kirkjugarðs við Brunnhól. Bæjarráð samþykkir kostnaðarþátttöku samkvæmt erindi að fjárhæð 400 þ.kr. og verður tekið af ramma opinna svæða.
6.
Gjaldskrá sorphirðu - og sorpeyðingu
Málsnúmer 201709450
Bæjarstjóri kynnti vinnu vegna gjaldskrár sorphirðu og urðunar.
7.
Endurbætur á girðingu kirkjugarði í Stafafelli
Málsnúmer 201709217
Lagt fram erindi sóknarnefndar vegna endurbóta á girðingu kirkjugarðs í Stafafelli. Bæjarráð samþykkir kostnaðarþátttöku samkvæmt erindi að fjárhæð 1,5 m.kr. og verður tekið af ramma opinna svæða.
8.
Undirbúningur byggingar nýs hjúkrunarheimilis
Málsnúmer 201709466
Bæjarstjóri upplýsti að hann hefur óskað eftir fundi með heilbrigðisráðherra.
9.
Fundargerðir - Vatnajökulsþjóðgarður