Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

826. fundur
18. september 2017 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson 1. varamaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 286
Málsnúmer 1709003F
Jón fór yfir fundargerðina.
Fundargerð samþykkt.
2.
Umhverfisnefnd - 32
Málsnúmer 1708012F
Bryndís fór yfir fundargerðina.
4. 201701077 - Umferðaröryggisáætlun 2017
Umræður um umferðaröryggi í þéttbýli.
5. 201706048 - Grenndarstöðvar í dreifbýli
Rætt um mögulega staðsetningu grenndarstöðva í dreifbýli.
6. 201709019 - Dagur íslenskrar Náttúru
Bæjarráð vill koma á framfæri þökkum til skipuleggjenda og þátttakenda í strandhreinsunardeginum síðastliðinn laugardag.
10. 201601090 - Gjaldskrá sorphirðu - og sorpeyðingu
Rætt um útfærslu nýrrar gjaldskrár vegna hirðu og eyðingar.
Fundargerð samþykkt.
3.
Meðferð mála Ice Lagoon ehf
Málsnúmer 201709513
Lagt fram erindi frá Lögmönnum Laugardal fyrir hönd Ice Lagoon ehf.
Bæjarráð óskar eftir lögfræðiáliti frá Cato lögmönnum vegna erindisins.
4.
Jökulsárlón afrit af bréfi til Vatnajökulsþjóðgarðs
Málsnúmer 201709512
Lagt fram afrit af erindi frá Lögmönnum Laugardal fyrir hönd Ice Lagoon ehf. til Vatnajökulsþjóðgarðs.
Bréf lagt fram til kynningar.
Bæjarráð hefur þær væntingar að uppbygging hefjist nú þegar við Jökulsárlón og að fjölbreytt atvinnustarfsemi geti blómstrað á svæðinu.
5.
Landamerki: Dilksnes - Hafnarnes
Málsnúmer 201709499
Bæjarráð felur skipulagsfulltrúa að vinna að málinu með málsaðilum.
6.
Útboð ljósleiðaralagningar Mýrum, Nesjum
Málsnúmer 201709511
Lögð fram útboðsgögn vegna lagningu ljósleiðara á Mýrum og í Nesjum
Bæjarráð samþykkir að bjóða út lagningu ljósleiðara í lokuðu útboði. Tilboðsfrestur er til 5. október 2017.
7.
Undirbúningur byggingar nýs hjúkrunarheimilis
Málsnúmer 201709466
Björn Ingi fór yfir stöðu mála.
8.
Líkamsrækt: Endurnýjun á tækjum
Málsnúmer 201709507
Endurnýjun á líkamsræktartækjum í eigu sveitarfélagsins
Bæjarráð samþykkir endurnýjun tækja í samræmi við framlagt erindi allt að upphæð 700 þ.kr. sem tekið verður af óráðstöfuðu. Ennfremur óskar bæjarráð eftir að gerður verði eignarlisti yfir líkamsræktartæki í eigu sveitarfélagsins.
9.
Ærslabelgur - kaup og uppsetning
Málsnúmer 201709444
Bæjarstjóri leggur til að sveitarfélagið kaupi tvo ærslabelgi í viðbót við þann sem búið er að kaupa og setja niður við sundlaugina. Annar ærslabelgurinn yrði settur upp við Nesjahverfi og hinn við grunnskólann í Hofgarði. Kostnaður vegna kaupa og uppsetningar á tveim ærslabelgjum er um 5 milljónir króna.
Bæjarráð samþykkir kaup á tveimur ærslabelgjum að fjárhæð 5 m.kr. sem tekið verður af fjárheimild opinna svæða.
10.
Fundargerðir SASS 2017
Málsnúmer 201709051
Fundargerð nr. 523 lögð fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.