Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

827. fundur
25. september 2017 kl. 16:00 - 17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Menningarmálanefnd - 31
Málsnúmer 1708010F
Eyrún fór yfir fundargerð menningarmálanefndar.
Fundargerð samþykkt.
2.
Akurey
Málsnúmer 201709447
Ástand skipsins er mjög slæmt. Skapast hefur talsverð slysahætta í og við skipið af þeim sökum.
Bæjarráð tekur undir áhyggjur af ástandi Akureyjar SF. Bæjarráð felur starfsmönnum menningarmiðstöðvar, Hornafjarðarhafnar og tæknisviðs að bregðast strax við og loka opum og svæðum þar sem hætta getur skapast. Jafnframt óskar bæjarráð eftir úttekt sömu aðila um ástand skipsins og skila greinagerð til bæjarráðs um hvað mögulegt er að gera.
3.
Fyrirspurn um byggðarkvóta 2016-2017
Málsnúmer 201709445
Erindi Smábátfélagsins Hrollaugs á Hornafirði dagsett 26. ágúst. Gerð er fyrirspurn um hver byggðakvóti fyrir fiskveiðiárið 2016-2017 væri og hvernig honum hafi verið úthlutað.
Lögð fram greinargerð atvinnu- og ferðamálafulltrúa. Sveitarfélagið Hornafjörður sendi inn umsókn um úthlutun á byggðakvóta til Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins þann 1. október 2016. Umsóknin var byggð á samdrætti í aflaheimildum undanfarin ár og mikilvægi sjávarútvegs sem atvinnugreinar
fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð. Þann 3. nóvember 2016 barst Sveitarfélaginu Hornafirði svarbréf frá Atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytinu. Þar kom fram að sveitarfélagið fengi úthlutað 30 þorskígildistonnum í byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2016/2017. Fiskistofa auglýsir byggðakvóta til umsóknar. Það varð hinsvegar misbrestur á því fyrir fiskveiðiárið 2016/2017 og hefur verið staðfest af ráðuneyti og Fiskistofu að sá kvóti mun flytjast yfir á næsta fiskveiðiár.
Bæjarráð felur starfsmanni að svara erindinu.
4.
Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2017-2018
Málsnúmer 201709520
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið með erindi dagsett 11.september 2017. Auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2017/2018. Umsóknarfrestur er til 15. október 2017.
Bæjarráð felur starfsmönnum að sækja um byggðakvóta fyrir hönd sveitarfélagsins.
5.
Sorpstöð Hornafjarðar reglubundið eftirlit
Málsnúmer 201709506
Skýrsla vegna reglubundins eftirlits urðunarstað Mel í landi Fjarðar í Lóni.
Umhverfis- og upplýsingafulltrúi fór yfir stöðuna og aðgerðir sem gripið hefur verið til frá því úttekt fór fram. Málaflokkurinn er í endurskoðun í kjölfar útboðs sorpmála.
Bæjarráð felur starfsmanni að svara erindi.
6.
Fjárhagsáætlun 2018
Málsnúmer 201709544
Drög að dagskrá vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar lögð fram.
Bæjarráð óskar eftir ítarlegri greinargerð á stöðu framkvæmda fyrir fundinn 2. október nk.
7.
Fjármálaráðstefna 5.október 2017
Málsnúmer 201709519
Árleg fjármálaráðstefna sveitarfélaga verður haldin fimmtudaginn 5. október og föstudaginn 6. október á Hilton Nordica hótelinu við Suðurlandsbraut í Reykjavík.
Bæjarfulltrúar og fjármálastjóri fara á ráðstefnuna.
8.
Náttúrustofa Suðausturlands: Samningur
Málsnúmer 201709543
Erindi Náttúrustofu Suðausturlands dagsett 22. september. Samningur um rekstur Náttúrustofu Suðausturlands rennur úr gildi í árslok 2017. Samningurinn er á milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar, Skaftárhrepps og Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.
Sæmundur Helgason vék af fundi undir þessum lið og Ragnheiður Hrafnkelsdóttir tók sæti í síma. Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir viðræðum við samningsaðila um endurnýjun samnings.
9.
Fundargerðir stjórnar Nýheima 2017
Málsnúmer 201709222
Lagt fram til kynningar.
10.
Vatnajökulsþjóðgarður: fundargerðir -
Málsnúmer 201709486
Fundargerð stjórnar nr.110 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.