Bæjarráð Hornafjarðar
828. fundur
2. október 2017
kl.
16:00
-
18:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Kristján Sigurður Guðnason
1. varamaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 198
Vignir fór yfir fundargerðina. Gerði grein fyrir ferð til Þýskalands vegna samstarfsverkefnis um þróun mælingabúnaðar í tengslum við dýpi á Grynnslum.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 30
Matthildur fór yfir fundargerðina.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
3.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 36
Ragnhildur fór yfir fundargerðina.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
4.
Norrænt samstarfsverkefni um sjálfbæra bæi.
Sveitarfélagið Hornafjörður var samþykkt í norrænt samstarfsverkefni um sjálfbæra bæi sem er undir forystu Norrænu Ráðherranefndarinnar. Árdís Erna Halldórsdóttir atvinnu- og ferðamálafulltrúi og Hugrún Harpa Reynisdóttir forstöðumaður Nýheima Þekkingaseturs sóttu fyrsta vinnufund verkefnisins sem haldinn var í Osló dagana 14.-15. september sl.
Bæjarráð samþykkir kostnaðaráætlun allt að 6 m.kr. vegna þátttöku í verkefninu og vísar til fjárhagsáætlunargerðar 2018-2019.
5.
Meðferð mála Ice Lagoon ehf
Bæjarráð hefur farið yfir erindi frá Lögmönnum Laugardal fyrir hönd Ice Lagoon ehf. dagsett 14. september. Bæjarráð mótmælir að þær ásakanir sem fram koma í bréfinu eigi við rök að styðjast. Bæjarráð mótmælir því að ákvarðanir sveitarfélagsins séu í andstöðu við lög.
Bæjarráð mótmælir því sérstaklega sem haldið er fram að jafnræðis hafi ekki verið gætt við ákvörðunartöku og þannig að það halli á Ice Lagoon ehf og að komið hafi verið fram með valdníðslu. Því er einnig mótmælt að uppgangur og afkoma Jökulsárlóns ferðaþjónustu ehf. hafi verið tryggður á kostnað Ice Lagoon ehf.
Að lokum er því mótmælt að athafnir og/eða athafnaleysi sveitarfélagsins hafi bakað því og eftir atvikum bæjarfulltrúum eða bæjarstjóra bótaskyldu.
Bæjarráð telur að hvorki hafi komið fram gögn sem styðja meinta bótaskyldu né meint tjón.
Bæjarráð mótmælir því sérstaklega sem haldið er fram að jafnræðis hafi ekki verið gætt við ákvörðunartöku og þannig að það halli á Ice Lagoon ehf og að komið hafi verið fram með valdníðslu. Því er einnig mótmælt að uppgangur og afkoma Jökulsárlóns ferðaþjónustu ehf. hafi verið tryggður á kostnað Ice Lagoon ehf.
Að lokum er því mótmælt að athafnir og/eða athafnaleysi sveitarfélagsins hafi bakað því og eftir atvikum bæjarfulltrúum eða bæjarstjóra bótaskyldu.
Bæjarráð telur að hvorki hafi komið fram gögn sem styðja meinta bótaskyldu né meint tjón.
6.
Sorphirða og sorpeyðing: gjaldskrá
Bryndís fór yfir mögulegar útfærslur gjaldskrár. Starfsmönnum falið að vinna áfram að gjaldskrá. Stefnt verði að því að koma með drög á næsta fund bæjarráðs.
7.
Samningur um tölvuþjónustu
Björn Ingi fór yfir stöðu verkefnisins og lagði fram tillögu um endurnýjun á netskiptum og netþjónum sveitarfélagsins að fjárhæð 3 m.kr. sem tekið verður af óráðstöfuðu.
8.
Fjárhagsáætlun 2018
Umræður um gjaldskrár, álagningarreglur og afslátt fasteignagjalda. Bæjarráð óskar eftir tillögu að breytingum á reglum um afslátt fasteignagjalda sem ríma við reglur annarra sveitarfélaga.
9.
Staða sveitarsjóðs 2017
Fjármálastjóri fór yfir stöðu sveitarsjóðs. Staðan er í samræmi við áætlanir.
10.
Ársfundur Jöfnunarsjóðs 4.okt
Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verður haldinn 4. október.
Lagt fram til kynningar.
11.
Styrkveiting Neytendasamtökin
Erindi Neytendasamtakanna dagsett 14. september þar sem óskað er eftir stuðningi sveitarfélagsins við samtökin. Neytendaamtökin voru stofnuð 1953 og hafa sinnt hagsmunagæslu fyrir neytendur í 64 ár. Rekstur samtakanna er þröngur og því leyta samtökin til sveitarfélaga um stuðning.
Bæjarráð hafnar erindinu.
12.
Matís og matarsmiðjan
Bæjarráð telur ákvörðun Matís að loka matarsmiðjunni á Höfn á grunni fjárlagafrumvarps 2018 vera ótímabæra í ljósi þess að ríkisstjórnin sem lagði frumvarpið fram er fallin og boðað hefur verið til alþingiskosninga. Bæjarstjóra falið að ræða við Matís um áframhaldandi rekstur matarsmiðjunnar á Höfn.