Bæjarráð Hornafjarðar
843. fundur
22. janúar 2018
kl.
16:00
-
17:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Atvinnumálanefnd - 36
Árdís fór yfir fundargerðina.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 41
Bæjarráð tekur undir bókun Ungmennaráðs Hornafjarðar vegna umfjöllunar þess um frumvarp til laga um kosningaaldur þar sem ráðið lýsir ánægju sinni á frumvarpi þessu og vonast til að þetta verði að veruleika. Bæjarráð er fylgjandi því að ungt fólk fái aukið hlutverk og ábyrgð í samræmi við þá vakningu sem átt hefur sér stað í sveitarfélaginu og á landsvísu undanfarin misseri, t.d. með stofnun Ungmennráða, þátttöku sem áheyrnarfulltúar í nefndum sveitarfélagsins og góða þátttöku í skuggakosningum. Ef ungu fólki er fengin ábyrgð þá taka þau ábyrgð. Komi til þessara breytinga mun það hafa áhrif á önnur lög s.s. kjörgengi og fjárræði.
Bæjarráð fagnar umræðu um aukið aðgengi ungmenna að sálfræðiþjónustu og leggur áherslu á að þjónustan verði kynnt fyrir ungmennum utan skólasamfélagsins.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð fagnar umræðu um aukið aðgengi ungmenna að sálfræðiþjónustu og leggur áherslu á að þjónustan verði kynnt fyrir ungmennum utan skólasamfélagsins.
Fundargerð samþykkt.
3.
Menningarmálanefnd - 36
Fundargerð samþykkt.
4.
Undanþágulisti - verkfallsheimild
Samkvæmt lögum nr.94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna er lagður fram listi yfir þá starfsmenn sveitarfélagsins sem ekki hafa verkfallsheimild.
Lagður fram óbreyttur listi frá fyrra ári. Bæjarráð samþykkir framlagðan lista og vísar málinu í lögformlegt ferli.
5.
Breyting á A deild Brúar lífeyrissjóðs
Í samræmi við bókun bæjarstjórnar á fundi nr. 245. hafa starfsmenn farið yfir fyrirliggjandi gögn lífeyrissjóðsins. Einnig hafa nokkrar útfærslur á uppgreiðslu kröfunnar verið skoðaðar. Lagt er til að tekið verði 5 ára lán til að gera upp við Brú Lífeyrissjóð. Lántaka vegna uppgjörsins yrði þá um 177 milljónir og kostnaður vegna þess áætlaður um 16,2 milljónir.
Farið yfir framvindu málsins frá síðasta fundi bæjarstjórnar ásamt valkostum í fjármögnun.
Bæjarráð samþykkir lán til fimm ára að fjárhæð 177 mkr. til að gera upp við Brú Lífeyrissjóð og felur starfsmönnum að útbúa viðauka við fjárhagsáætlun sem tekin verði fyrir á næsta fundi bæjarstjórnar.

6.
Umsögn um útgáfu leyfa Góuhóf 2018
Erindi frá Sýslumanni dags. 19. janúar. Ósk um umsögn við útgáfu leyfis tímabundið áfengisleyfi Góuhóf í Hofgarði þann 3.3.2018 frá kl 19:00 til 03:00.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn um útgáfu leyfis.
7.
Vatnajökulsþjóðgarður á heimsminjaskrá UNESCO stuðningsyfirlýsing
Ósk um undirskrift stuðningsyfirlýsingar við umsókn ríkisins til UNESCO um að Vatnajökulsþjóðgarðs verði settur á heimsminjaskrá.
Bæjarstjóri fór yfir málið.
Bæjarráð lýsir yfir fyrir hönd Sveitarfélagsins Hornafjarðar stuðningi við umsóknina.
Bæjarráð lýsir yfir fyrir hönd Sveitarfélagsins Hornafjarðar stuðningi við umsóknina.
8.
Orkunýtingarstefna SASS 2017-2030
Orkunýtingarstefna SASS 2017 - 2030 var send til umsagnar í aðildarsveitarfélögum SASS.
Stefnan hefur verið til umsagnar í nefndum sveitarfélagsins. Í umsögnum nefnda sveitarfélagsins kemur fram að Orkunýtingarstefna SASS er mjög metnaðarfull og tekið heilshugar undir markmið, tillögur og aðgerðar hennar. Stefnan samræmist vel markmiðum Sóknaráætlunar Suðurlands og loftslagsverkefninu sem Sveitarfélagið Hornafjörður er aðili að. Einnig er hún vel til þess fallin að efla atvinnulíf á Suðurlandi, sérstaklega með styrkingu dreifikerfis raforku innan starfssvæðis SASS.
Umhverfisnefnd leggur til að bætt verði í orkunýtingarstefnu SASS að rafvæða hafnir á Suðurlandi þannig að öll skip geti nýtt innlendan orkugjafa við hafnir landsins og mengi þar af leiðandi minna.
Bæjarráð tekur undir framkomnar umsagnir nefnda sveitarfélagsins og gerir þær að sínum. Einnig er starfsmönnum falið að koma umsögnum og ábendingum á framfæri við SASS.

9.
Fundargerðir stjórnar Nýheima 2018
Fundargerð stjórnar nr.90
Lögð fram til kynningar.