Bæjarráð Hornafjarðar
844. fundur
26. janúar 2018
kl.
16:00
-
18:05
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 35
Farið yfir fundargerð.
3. 201709466 - Undirbúningur byggingar nýs hjúkrunarheimilis
Bæjarráð leggur á það áherslu að gengið verði frá samningi um byggingu nýs hjúkrunarheimilis hið fyrsta svo hægt sé að hefja hönnunarvinnu.
Fundargerð samþykkt.
3. 201709466 - Undirbúningur byggingar nýs hjúkrunarheimilis
Bæjarráð leggur á það áherslu að gengið verði frá samningi um byggingu nýs hjúkrunarheimilis hið fyrsta svo hægt sé að hefja hönnunarvinnu.
Fundargerð samþykkt.
2.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 203
Farið yfir fundargerð.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
3.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 293
Félagsmálastjóri hefur látið af störfum. Bæjarráð þakkar honum fyrir vel unnin störf og óskar honum og fjölskyldu hans velfarnaðar á nýjum vettvangi.
Farið yfir fundargerð.
Fundargerð samþykkt.
Farið yfir fundargerð.
Fundargerð samþykkt.
4.
Atvinnumálanefnd - 37
Farið yfir fundargerð. Bæjarstjóri greindi frá vinnu við nýja fjallskilasamþykkt og að stefnt er að því að henni ljúki í apríl.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
5.
Ungmennahús 2018
Herdís gerði grein fyrir hugmyndum um fyrirkomulag á rekstri og umsjón ungmennahúss. Bæjarráð óskar eftir að starfsmenn útfæri hugmyndina nánar og leggi hana fyrir bæjarráð.
6.
Staða sorpmála
Farið yfir stöðu sorpmála og næstu skref. Unnið er að breytingu á sorphirðu þannig að óendurvinnanlegt og lífrænt sorp verði losað á þriggja vikna fresti í stað mánaðarlega. Sorphirðudagatalið mun þar af leiðandi breytast og verður uppfært á heimasíðu sveitarfélagsins.
Bæjarráð bendir jafnframt á að í þéttbýlinu er í boði að fá 140 l tunnu í stað 37 l hólfs fyrir lífrænt efni án aukakostnaðar. Beiðni um slíka breytingu þarf að berast afgreiðslu ráðhússins.
Bæjarráð bendir jafnframt á að í þéttbýlinu er í boði að fá 140 l tunnu í stað 37 l hólfs fyrir lífrænt efni án aukakostnaðar. Beiðni um slíka breytingu þarf að berast afgreiðslu ráðhússins.
7.
Lóðarumsókn: Miðós 6 og 8
Umsókn Glacier Guard ehf um lóð að Miðós 6 og 8 lögð fram.
Í ljósi eignarhalds sem fram kemur í ársreikningi félagsins óskar bæjarráð eftir frekari upplýsingum frá lóðarumsækjanda.
8.
Ráðning félagsmálastjóra
Bæjarstjóri upplýsti að fjórar umsóknir bárust í starfið en umsagnarfrestur var út 27. janúar. Unnið er í að fara yfir umsóknir og munu viðtöl fara fram á næstunni.
9.
Ráðning byggingarfulltrúa
Bæjarstjóri upplýsti að ein umsókn barst í starfið en umsagnarfrestur var út 27. janúar. Unnið er í að fara yfir umsóknir og mun viðtal fara fram á næstunni.
10.
Eftirlit stjórnsýslu sveitarfélaga
Erindi Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis dagsett 25. janúar. Óskað er eftir upplýsingum um alla samninga sveitarfélaga um samstarf þeirra á milli. Hér er m.a. átt við samninga sem styðjast við 96. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Ekki eru í gildi neinir samninga í þá átt sem erindið vísar til. Starfsmönnum falið að fara yfir málið og svara erindinu.
11.
Vatnajökulsþjóðgarður á heimsminjaskrá UNESCO stuðningsyfirlýsing
Bæjarráð fagnar undirritun umsóknar íslenska ríkisins um að Vatnajökulsþjóðgarður verði settur á heimsminjaskrá UNESCO. Bæjarráð væntir þess að umsóknin hafi jákvæð áhrif á fjárheimildir til þjóðgarðsins sem muni tryggja betur uppbyggingu á þjónustu, verndun náttúrunnar og jákvæða upplifun gesta.