Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

845. fundur
5. febrúar 2018 kl. 16:00 - 18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2018: Viðauki I
Málsnúmer 201801120
Lagður fram viðauki I vegna áhrifa af breytingum á lífeyrisskuldbindingum sveitarfélagsins við Brú lífeyrissjóð. Greiðslur sveitarfélagsins vegna þessa nema 177 milljónum króna. Í viðauka er gert ráð fyrir að skrifað verði undir skuldarbréf við Brú lífeyrissjóð til 5 ára til að standa skil á skuldbindingum sveitarfélagsins.
Fjármálastjóri gerði grein fyrir viðauka I við fjárhagsáætlun 2018. Málinu vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.
2.
Breyting á A deild Brúar lífeyrissjóðs
Málsnúmer 201712006
Tölvupóstur frá framkvæmdarstjóra SASS dagsettum 25. janúar 2018 en þar er upplýst hverjar skuldbindingar SASS eru vegna Brúar lífeyrissjóðs sem eru 77,3 milljónir. Hlutur sveitarfélagsins er 2,7 milljónir króna.
Fjármálastjóri fór yfir málið og leggur til að fjármunir til að greiða skuldina við SASS verði teknir af óráðstöfuðu.
Bæjarráð samþykkir að taka upphæðina af óráðstöfuðu og vísar til viðauka I við fjárhagsáætlun 2018.
3.
Rekstur líkamsræktarstöðvar á Hornafirði
Málsnúmer 201709207
Opið bréf Kolbrúnar Þ. Björnsdóttur dagsettu 31. janúar um framtíð og mikilvægi líkamsræktarstöðvar í sveitarfélaginu. Ljóst er að leigusamningur S.S.Sport lýkur 1. Júní 2018 og því framtíð líkamsræktarstöðvar óljós.
Bæjarráð telur að hér sé um mikilvæga starfsemi að ræða sem eykur lífsgæði íbúa sveitarfélagsins. Bæjarráð felur bæjarstjóra og fræðslustjóra að fara yfir málið með núverandi rekstraraðila líkamsræktarstöðvar um möguleika í stöðunni.
4.
Lóðarumsókn: Miðós 6 og 8
Málsnúmer 201801102
Tölvupóstur 2. febrúar frá forsvarsmanni umsækjanda þar sem óskað er eftir útskýringum á bókun bæjarráðs frá síðasta fundi.
Samkvæmt reglum um úthlutun lóða Sveitarfélagsins Hornafjarðar, samþykkt í bæjarráði 25. ágúst 2008, eru umsóknir metnar með tilliti til upplýsinga um fjárhagsstöðu umsækjanda og fyrri byggingarverkefni, sbr. 2. gr. Auk þess skulu lögaðilar leggja fram endurskoðaðan ársreikning síðasta árs.
Á síðasta fundi bæjarráðs lá fyrir ársreikningur fyrir árið 2016. Bæjarráð óskaði eftir frekari upplýsingum frá umsækjanda í ljósi eignarhalds Glacier Guard ehf. Bæjarráð telur að ársreikningurinn gefi ekki fullnægjandi vísbendingar um að hvernig skuli staðið að fjármögnun framkvæmdar á umsóttum lóðum. Jafnframt liggur fyrir samkvæmt fyrirtækjaskrá RSK að 25% hluthafi í umsækjanda, samkvæmt ársreikningi 2016, var úrskurðaður gjaldþrota þann 2. nóvember 2017 í Héraðsdómi Austurlands.
Í ljósi framangreinds óskar bæjarráð eftir ítarlegri upplýsingum um fjárhagsstöðu umsækjanda og hluthafa félagsins. Auk þess óskar bæjarráð eftir upplýsingum um núverandi hluthafa í félaginu og áætlun um hvernig umsækjandi hyggst fjármagna uppbyggingu mannvirkja á umsóttum lóðum.
Þá óskar bæjarráð eftir nánari gögnum frá umsækjanda um fyrirhugaðar framkvæmdir á lóðinni með tilliti til deiliskipulags á svæðinu.
Bæjarráð óskar umsagnar hafnarstjórnar þar sem um er ræða lóðir á hafnarsvæði.


5.
Ósk um yfirlýsingu bæjarstjórnar
Málsnúmer 201801115
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn og felur bæjarstjóra að undirbúa málið fyrir yfirlýsingu bæjarstjórnar.
6.
Stofnun þjóðlendu, hluti Vatnajökuls Suðursveit
Málsnúmer 201801089
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við stofnun landsvæðis innan þjóðlendu. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
7.
Skógrækt við Höfn
Málsnúmer 201801116
Erindi Skógræktarfélags Austur-Skaftafellssýslu dagsett 31. janúar 2018. Tillagan er um að tengja saman skógræktarsvæði innan þéttbýlis Hafnar með því að auka útplöntun trjáplantna og gerð göngustíga milli þeirra.
Bæjarráð felur starfsmönnum að óska frekari upplýsinga um útfærslu verkefnisins og í framhaldinu fari málið í umræðu í umhverfisnefnd og skipulagsnefnd.
8.
Samstarf um rekstur og umsjón
Málsnúmer 201709562
Í framhaldi af kynningu og umræðu í bæjarráði á fundi nr.722 26. maí 2015. Áhugi Isavía um samstarf vegna Hornafjarðarflugvallar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu og ræða við forsvarsmenn Isavia og slökkviliðsstjóra Hornafjarðar.
9.
Eftirlit með vatnsveitu
Málsnúmer 201801097
Skýrsla um eftirlit með vatnsveitu Hafnar árið 2017 lögð fram. Niðurstöður allra reglubundinna neysluvatnssýna sem tekin voru úr vatnsveitunni árið 2017 sýna að allar rannsóknaniðurstöður standast kröfur reglugerða. Einnig kemur fram að vinna þarf fyrir árslok 2018 áætlun um virkt og sýnilegt innra eftirlit með vatnsveitunni.
Skýrslan lögð fram til kynningar. Bæjarráð felur bæjarstjóra að koma vinnu vegna ábendingar um eftirlit með vatnsveitunni í vinnslu.
10.
Umsögn um tillögu til þingsályktunar: þjóðarsátt um bætt kjör kvennastétta, 50. mál
Málsnúmer 201801119
Tillagan leggur til að fela fjármála- og efnahagsráðherra að leiða viðræður við aðila vinnumarkaðarins og Samband íslenskra sveitarfélaga um sérstakt átak, þjóðarsátt, um bætt launakjör kvennastétta. Átakið feli í sér gerð sérstaks kjarasamnings um bætt launakjör þessara stétta.
Bæjarráð fagnar framkominni þingsályktunartillögu sem og öllum aðgerðum til að jafna kynbundin launamun. Einnig er mikilvægt að efla rannsóknir og heimildaröflun um málið svo ekki þurfi að styðjast við um þriggja ára gögn við framsetningu tillögunnar.
11.
Fundargerðir stjórnar SASS 2018
Málsnúmer 201801057
Fundargerð stjórnar nr. 528 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
12.
Vatnajökulsþjóðgarður: fundargerðir -
Málsnúmer 201709486
Fundargerðir stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs nr 111 til 115
Bæjarráð lýsir yfir áhyggjum af fjárhagsstöðu Vatnajökulsþjóðgarðs. Í fundargerðum kemur fram að rekstrarhalli þjóðgarðsins í lok árs 2017 er um 137 milljónir. Þetta er grafalvarleg staða í ljósi fjölda ferðamanna og mikilli þörf á uppbyggingu innviða í þjóðgarðinum, sér í lagi á suðursvæði þar sem langmestur fjöldi gesta heimsækir garðinn.