Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

847. fundur
19. febrúar 2018 kl. 16:00 - 17:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Kristján Sigurður Guðnason 1. varamaður
Páll Róbert Matthíasson 1. varamaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Uppbygging útbæ Höfn - Lóðir D E F viljayfirlýsing
Málsnúmer 201802044
Erindi Marina Travel ehf dagsett 14. febrúar. Farið yfir stöðuna í framhaldi af viljayfirlýsingu sem bæjarráð gaf 16. október 2017.
Einar fór yfir framvindu verkefnisins frá síðasta fundi með bæjarráði. Næsta skref er að málið verður tekið fyrir í skipulagsnefnd og að MT skili inn frekari gögnum fyrir það ferli að gera skipulagsbreytingu sem meðal annars felur í sér að sameina þrjár lóðir í eina. Bæjarstjóra falið að afla frekari upplýsinga hjá MT um útfærslu verkefnisins.
2.
Landsáætlun og verkefnaáætlun um innviði - samráðsferli
Málsnúmer 201802029
Bæjarráð felur atvinnu- og ferðamálafulltrúa að senda inn umsögn. Í áætluninni er aðeins talað um tvo staði í Austur-Skaftafellssýslu sem gert er ráð fyrir framkvæmdum á 2018-2020, Sandfell og Jökulsárlón. Mikilvægt væri að koma inn á framkvæmdaáætlun vegum að vinsælum ferðamannastöðum t.d. vegur að Heinabergssvæði, Hoffells-, Fláa- og Svínafellsjökli. Bæjárráð hvetur hagsmunaaðila að koma með umsagnir inn á https://samradsgatt.island.is/ fyrir 26. febrúar nk.
3.
Bygging íbúða: Borgartúni Hofi Öræfum
Málsnúmer 201802048
Í samræmi við fjárhagsáætlun sveitarfélagsins er hafin undirbúningur byggingar íbúðarhúsnæðis að Hofi Öræfum.
Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála. Lauslega hefur verið rætt við hönnuði og verktaka um verkið. Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu og leggja fram tillögu fyrir bæjarráð.
4.
Stjórn: Auglýsing eftir framboðum í stjórn
Málsnúmer 201802049
Lagt fram til kynningar.
5.
Íbúasamráð í sveitarfélögum og þátttaka íbúa
Málsnúmer 201802050
Samkvæmt stefnumörkun sambandsins fyrir þetta kjörtímabil skal sambandið styðja sveitarfélögin við að ná tökum á
þátttökulýðræði og öðrum nýmælum í lýðræðisátt.
Í samræmi við þetta markmið stóð sambandið fyrir námsferð fyrir sveitarstjórnarmenn til Svíþjóðar haustið 2016 til
að kynna sér hvernig sænsk sveitarfélög vinna að íbúasamráði og haustið 2017 stóð það fyrir málþingi til að kynna
fyrirmyndarverkefni sveitarfélaga á þessu sviði.
Nú liggur fyrir handbók fyrir sveitarfélög um íbúasamráð og þátttöku íbúa.
6.
Fundargerðir HAUST 2018
Málsnúmer 201802043
Fundargerð Heilbrigðisnefndar nr. 193.
Fundargerð lögð fram til kynningar.