Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

848. fundur
24. febrúar 2018 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 42
Málsnúmer 1802010F
Farið yfir fundargerð.
Mikil umræða um lið 3. Bæjarráð bendir á að í sveitarfélaginu er stuðnigur við starfsmenn sem vilja sækja sér menntun á leik- og grunnskólastigi. Bæjarráð hvetur einnig samningsaðila SNS og FG í kjaraviðræðum kennara að nálgast verkefnið með framtíðarlausn í huga.
2.
Bygging íbúða: Borgartúni Hofi Öræfum
Málsnúmer 201802048
Bæjarstjóri fór yfir stöðu málsins og undirbúning sem unnið er að.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.
3.
Krafa um skaðabætur: Athafnir sveitarfélagsins 2010 til 2017
Málsnúmer 201802020
Farið yfir drög að svari vegna erindis Lögmanna Laugardal fyrir hönd Ice Lagoon ehf.
Bæjarráð samþykkir að framlögð drög verði kláruð og send til Lögmanna Laugardal.
4.
Stefna: Landvernd Hollvinir Hornafjarðar framkvæmdarleyfi hringvegar
Málsnúmer 201802088
Stefna Landverndar og Hollvina Hornafjarðar á hendur Vegagerðarinnar og sveitarfélagsins vegna útgáfu framkvæmdarleyfis fyrir framkvæmdinni Hringvegur 1 milli Hólm og Dynjanda.
Farið yfir málið og bæjarráð óskar eftir að Árni Helgason hjá JÁS lögmönnum taki að sér málið.
5.
Innkaupareglur: endurskoðun og viðmiðunarfjárhæðir
Málsnúmer 201802084
Innkaupareglursveitarfélagsins eru frá 2. júní 2016. Frá þeim tíma hafa verið sett ný lög um opinber innkaup nr. 120/2016 sem tekið hafa gildi gagnvart sveitarfélögum, að öðru leyti en því að 1. mgr. 23. gr. laganna um lágmarksfjárhæðir öðlast gildi gagnvart sveitarfélögum 31. maí 2019. Innkaupareglur sveitarfélagsins hafa ekki verið endurskoðaðar með hliðsjón af nýjum lögum.
Bæjarráð felur starfmönnum fara yfir innkaupareglur sveitarfélagsins bera saman við ný lög um opinber innkaup. Niðurstaða þeirrar vinnu verði síðan lögð fyrir bæjarráð.
6.
Umsögn um útgáfu rekstarleyfi Íshúsið Bistró
Málsnúmer 201802079
Erindi Sýslumannsins á Suðurlandi dagsett 22. febrúar, vegna umsagnar um rekstrarleyfi Íshús Veitingar ehf veitingaleyfir í flokki II.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn um útgáfu leyfis.
7.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis Hafnarbraut 21
Málsnúmer 201802051
Erindi Sýslumannsins á Suðurlandi dagsett 16. febrúar, vegna umsagnar um rekstrarleyfi Höfn Guesthouse ehf. Gistiheimili í flokki II að Hafnarbraut 21.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn um útgáfu leyfis.
8.
Lóðarskil: Fákaleira 5
Málsnúmer 1802013
Erindi frá lóðarhafa Jóni Inga Gylfasyni um að skila inn úthlutaðri lóð.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við skil á lóð.
9.
Umsókn um lóð Fákaleira 11
Málsnúmer 201709439
Erindi frá lóðarhafa Höllu Sigurðardóttur um að skila inn úthlutaðri lóð.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við skil á lóð.
10.
Efnistökunámur: Almannaskarð
Málsnúmer 201802089
Fyrirspurn vegna efnistöku í Almannaskarði.
Bæjarráð felur skipulagsstjóra að fara yfir málið út frá þeim ábendingum sem fram koma í erindinu.