Bæjarráð Hornafjarðar
849. fundur
5. mars 2018
kl.
16:00
-
19:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Lóðarumsókn: Miðós 6 og 8
Á fundi nr. 845 óskaði bæjarráð eftir frekari gögnum og umsögn frá hafnarstjórn.
Forsvarsmaður Glacier Guard ehf. gerði grein fyrir hugmyndum sínum um framkvæmdir við Miðós 6 og 8. Um er að ræða gagnaver og fjórar spennistöðvar inni í 1250 fm límtréshúsi.
Bæjarráð telur fýsilegra að starfsemin verði staðsett í Fjárhusavík frekar en í Óslandi. Svo það megi verða þarf að taka aftur upp skipulagsvinnu fyrir umrædda starfsemi úti í Fjárhúsavík frá því árið 2014. Deiliskipulagsvinnu væri hægt að vinna samhliða undirbúningi framkvæmda þar sem umrætt svæði er iðnaðarsvæði á aðalskipulagi. Skipulagsstjóra falið að ræða við umsækjendur.

2.
Atvinnumálanefnd - 38
1. 201709281 - Fjallskilasamþykkt
Árdís fór yfir stöðuna á vinnu við gerð nýrrar fjallskilasamþykktar. Stefnt er að því að ný fjallskilasamþykkt verði lögð fram til fyrri umræðu bæjarstjórnar í apríl.
4. 201711037
Umræður um könnun á þörfinni fyrir almenningssamgöngur í dreifbýli. Starfsmönnum falið að vinna að málinu áfram.
Fundargerð samþykkt.

3.
Skipulagsnefnd - 39
1. 201710081 - Aðalskipulagsbreyting: Hitaveita á Hornafirði
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir umsögnum sem bárust um aðalskipulagsbreytinguna.
4. 201801114 - Deiliskipulag Hótel Höfn
Umræður um bílastæðamál við hótelið. Málið er í vinnslu.

4.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 204
1. 201709394 - Hugmyndir um uppbyggingu í ferðaþjónustu á Höfn.
Vignir gerði grein fyrir svörum sem bárust frá notendum hafnarinnar.
Bæjarráð óskar eftir fundi með aðilum málsins, hafnarstjórn og skipulagsnefnd.
Fundargerð samþykkt.
Vignir gerði grein fyrir svörum sem bárust frá notendum hafnarinnar.
Bæjarráð óskar eftir fundi með aðilum málsins, hafnarstjórn og skipulagsnefnd.
Fundargerð samþykkt.
5.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 294
11. 201712029 - Málefni fatlaðra
Umræður um húsnæðisþörf málefna fatlaðra. Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um húsnæðisþörf málefna fatlaðra og heimaþjónustudeildar.
Fundargerð samþykkt.
Umræður um húsnæðisþörf málefna fatlaðra. Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um húsnæðisþörf málefna fatlaðra og heimaþjónustudeildar.
Fundargerð samþykkt.
6.
Hafnarvík Heppa: aðgengi og frágangur
Erindi dagsett 26. febrúar frá lóðarhöfum að Heppuvegi 2C. Ósk um úrbætur á aðgengi að húsnaði og frágangi á svæðinu.
Starfsmönnum falið að fara yfir verkáætlun um malbikun, viðhald gatna og opinna svæða með tilliti til erindisins. Bæjarráð óskar eftir að verkáætlun verði lögð fram á fundi ráðsins fyrir páska.
7.
Umsögn um frumvarp: Sveitarstjórnarlög mál nr. 190
Erindi dagsett 28. febrúar Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til sveitarstjórnarlaga. Umsagnarfrestur er til 14.mars.
Lagt fram til kynningar.
8.
Umsögn um frumvarp: Hornafjarðarflugvöllur mál nr. 149
Erindi dagsett 28. febrúar Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um millilandaflug um Hornafjarðarflugvöll Umsagnarfrestur er til 14. mars.
Bæjarráð Hornafjarðar leggur þunga áherslu á að þessi þingsályktunartillaga verði tekin til afgreiðslu og samþykkt. Bæjarráð vísar jafnframt í fyrri umsagnir sínar um að minni vélum í millilandaflugi og ferjuflugi verði veitt heimild til að lenda á Hornafjarðarflugvelli. Til þess þarf að styrkja starfsemi flugvallarins enn frekar. Það mun efla atvinnulíf á Hornafirði, uppbyggingu og vöxt Vatnajökulsþjóðgarðs auk þess að auka öryggi í flugi yfir landið.
9.
Drög að frumvarpi: lög um mat á umhverfisáhrinfum
Erindi dags. 1. mars 2018 frá Samorku þar sem bent er á að drög að frumvarpi til laga um mat á umhverfisáhrifum nr.106/2000 sé í vinnslu. Þar kemur fram að helstu breytingar á frumvarpinu eru að gildistími á umhverfismati verði 3 ár í stað 10 ára eins og er í gildandi lögum.
Bæjarráð vísar erindinu til umræðu í umhverfisnefnd.
10.
Landsáætlun til verndar náttúru og menningarsöguleugum minjum
Erindi frá Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 1. mars þar kemur fram að sveitarfélög eru hvött til að senda umsögn vegna landsáætlunar til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum ef tilefni er til.
Lagt fram til kynningar.
11.
Umsögn um útgáfu leyfa: Horn 1
Erindi frá Sýslumanni á Suðurlandi dagsett 15. janúar, ósk um umsögn um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II Horn.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn um útgáfu leyfis.
12.
Styrktarsjóður EBÍ 2018
Erindi EBÍ dagsett 21. febrúar tilkynning um að opið er fyrir umsóknir í sjóðinn. umsóknarfrestur er til aprílloka.
Bæjarráð hvetur forstöðumenn stofnanna sveitarfélagsins til að skoða hvort einhver verkefni á þeirra vegum henti til umsóknar.
13.
Fundargerðir: stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2018
Fundargerð stjórnar nr. 857 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.