Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

850. fundur
13. mars 2018 kl. 16:00 - 19:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varaformaður
Kristján Sigurður Guðnason 1. varamaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Hugmyndir um uppbyggingu í ferðaþjónustu á Höfn
Málsnúmer 201709394
Á fundi bæjarráðs nr.849 óskar bæjarráð eftir fundi með aðilum málsins og fulltrúum hafnarstjórnar og skipulagsnefndar til að ræða um möguleika á framgangi málsins.
Formaður bæjarráðs fór yfir forsögu og ferli málsins frá því hugmyndin kom fyrst fram. Gísli og Þórdís kynntu hugmyndir um byggingu hótels við vesturenda hafnarinnar. Umræður um möguleika á annarri staðsetningu fyrir hótelið þar sem ekki er gert ráð fyrir byggingu á þessu svæði í gildandi aðalskipulagi. Gísli og Þórdís greindu frá því að viðskiptahugmyndin gangi út frá þessari staðsetningu og því ekki hægt að vinna með hugmyndina á öðrum stað.
Í bókun hafnarstjórnar kemur fram að landsvæði hafnarinnar með möguleika á viðlegukanti er af skornum skammti. Bæjarráð er þeirrar skoðunar að uppbygging af þessu tagi geti skapað mikla möguleika í atvinnu og ferðaþjónustu á svæðinu og sem aðdráttarafl. Bæjarstjóra falið að skoða málið nánar og leggja fram greinargerð fyrir bæjarráð.
2.
Skipulagsnefnd - 40
Málsnúmer 1803004F
Farið yfir fundargerð.
Fundargerð samþykkt.
3.
Menningarmálanefnd - 38
Málsnúmer 1802005F
Farið yfir fundargerð. Eyrún lagði fram ársskýrslu Menningarmiðstöðvar.
Fundargerð samþykkt.
4.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 36
Málsnúmer 1803001F
Farið yfir fundargerð.
Bæjarráð telur mikilvægt að fá heilbrigðisráðherra til fundar á Höfn. Bæjarstjóra falið að óska eftir að fá heilbrigðisráðherra í heimsókn.
Fundargerð samþykkt.
5.
Umhverfisnefnd - 39
Málsnúmer 1803003F
Farið yfir fundargerð.
Fundargerð samþykkt.
6.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 295
Málsnúmer 1803006F
Farið yfir fundargerð.
Fundargerð samþykkt.
7.
Hönnun: Víkurbraut 24 húsnæði málefna fatlaðs fólks
Málsnúmer 201802105
Samkvæmt fjárhagsáætlun 2018 eru 12 milljónir áætlaðar í breytingar á húsnæðinu að Víkurbraut 24 til að það nýtist málefnum fatlaðs fólks. Starfsmenn deildar og félagsmálastjóri hafa farið yfir æskilegar breytingar og lagfæringar. Hugmyndir þeirra hafa verið útfærðar og kostnaðarmetnar.
Á síðasta fundi óskaði bæjarráð eftir upplýsingum um húsnæðisþörf málefna fatlaðs fólks og heimaþjónustudeildar. Laufey fór yfir minnisblað þar sem gerð er grein fyrir húsnæðisþörf málaflokksins. Einnig lagðar fram teikningar og kostnaðarmat vegna breytinga á húsnæði við Víkurbraut 24. Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna áfram að undirbúningi á flutningi starfsemi málefna fatlaðs fólks að Víkurbraut 24.
8.
Umsókn um stækkun lóðar: Hafnarbraut rafhleðslustæði
Málsnúmer 201803035
Ósk Olíuverslunar Íslands um stækkun lóðar að Hafnarbraut til að koma megi fyrir rafhleðslustæðum.
Bæjarráð samþykkir stækkun á lóðinni og felur skipulagsstjóra að vinna að málinu með lóðarhafa.
9.
Hafnarvík Heppa: aðgengi og frágangur
Málsnúmer 201803026
Erindi dagsett 8. mars frá rekstraraðilum á Hafnarvík Heppu svæðinu um að gera svæðið meira aðlaðandi.
Á síðasta fundi bæjarráðs var lagt fyrir svipað erindi. Bæjarráð óskar eftir að þetta erindi verði tekið með inní afgreiðslu þess erindis.
10.
Úthlutunarreglur lóðir Útbæ
Málsnúmer 201709280
Lagt fram minnisblað skipulagsstjóra. Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna gjaldskrá og leggja fyrir bæjarráð.
11.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis fyrir Nýpugarða
Málsnúmer 201802106
Erindi Sýslumannsins á Suðurlandi dagsett 27. febrúar. Ósk um umsögn vegna útgáfu rekstrarleyfis fyrir veitingastað í flokki II Nýpugarðar ehf.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn um útgáfu leyfis.
12.
Umsögn um útgáfu leyfa Kiwanisklúbburinn Ós
Málsnúmer 201803017
Erindi Sýslumannsins á Suðurlandi dagsett 6. mars. Ósk um umsögn vegna útgáfu tækifærisleyfis í Sindrabæ Kiwanisklúbburinn Ós.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn fyrir útgáfu leyfis.
13.
Stefna stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku
Málsnúmer 201803012
Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur í samræmi vð stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis um raforku lagt fram tillögu til þingsályktunar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og formanni bæjarráðs að senda inn umsögn um þingsályktunartillöguna.
14.
Umsögn: þingsályktun - skipting útsvarstekna mál nr. 200
Málsnúmer 201803031
Erindi dagsett 8.mars Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um skiptingur útsvarstekna milli sveitarfélaga Umsagnarfrestur er til 28. mars.
Lagt fram til kynningar.
15.
Húsnæði Sláturfélagsins Búa - Vestur hluti sláturhúss
Málsnúmer 201709244
Farið yfir drög að leigusamningi. Bæjarráð samþykkir framlögð drög og felur starfsmönnum að ganga frá samningi við Sláturfélagið Búa. Einnig felur bæjarráð starfsmönnum að hefja undirbúning að flutningi matarsmiðjunnar úr Álaleiru.
16.
Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.
Málsnúmer 201803020
Fundarboð Lánasjóðs sveitarfélaga dagsett 7. mars lagt fram. Aðalfundur er boðaður 23. mars 2018
Lagt fram til kynningar.
17.
Fundargerðir stjórnar SASS 2018
Málsnúmer 201801057
Fundargerð stjórnar nr.530 og lokaeintak af Orkunýtingarstefnu SASS lagt fram.
Lagt fram til kynningar.
18.
Fundargerðir: stjórnar Vatnajökulsþjóðgarður
Málsnúmer 201709486
Fundargerð stjórnar nr. 116 og fundargerðir svæðisráðs suðursvæðis nr 55 til 57 lagðar fram. Eldri fundargerðir má einnig finna á heimasíðu þjóðgarðsins vjp.is
Lagt fram til kynningar.