Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

851. fundur
19. mars 2018 kl. 16:00 - 18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson 1. varamaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Ráðning félagsmálastjóra
Málsnúmer 201801107
Bæjarstjóri fer yfir stöðu í ráðningarferli og breytingar sem lagðar eru til á félagsmálasviði. Fjórar umsóknir bárust í starf félagsmálastjóra.
Eftir yfirferð umsókna er það ákvörðun bæjarráðs að ráða tvo einstaklinga úr hópnum í starf á félags- og velferðarsviði sveitarfélagsins. Annars vegar félagsmálastjóra sem yfirmann sviðsins og hins vegar félagsmálafulltrúa. Hugmyndin er að þessir tveir starfsmenn vinni þétt saman og myndi þannig öfluga liðsheild í málaflokknum auk annarra starfsmanna er sinna velferðar- og einstaklingsmálum hjá sveitarfélaginu. Með þessu er markmiðið að efla starfsemina enda sýnir staðan að mikil þörf er á því.
Bæjarráð samþykkir að ráða Elísu Sóleyju Magnúsdóttur, lögfræðing, í starf félagsmálastjóra og Skúla Ingiberg Þórarinsson, félagsráðgjafa, í starf félagsmálafulltrúa. Bæjarráð býður þau velkomin til starfa og óskar þeim velfarnaðar í starfi.
2.
Skólamáltíðir : samningur og fyrirkomulag
Málsnúmer 201803053
Samningur við HSU Hornafirði um skólamáltíðir sem gerður var vorið 2014 er útrunninn.
Bæjarráð felur fræðslustjóra að gera fyrirspurnir hjá veitingaaðilum vegna skólamáltíða í sveitarfélaginu og bera saman kostnað við önnur sveitarfélög.
3.
Stefnumótandi stjórnunaráætlun fyrir ferðaþjónustu í hverjum landshluta/Destination management plan (DMP)
Málsnúmer 201709112
Vinnu við gerð Áfangastaðaáætlunar DMP fyrir Suðurland er að ljúka. Lokafundur fyrir austursvæði verður 10. apríl á Hótel Skaftafelli Öræfum. Óskað er eftir ábendingum frá sveitarfélaginu vegna gerðar aðgerðaráætlunar og þá ferðamannastaði innan svæðisins sem nauðsynlegt er að hefja uppbyggingu á.
Bæjarráð felur atvinnu- og ferðamálafulltrúa að undirbúa svar við erindinu og málið verður tekið aftur fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
4.
Umsögn: þingsályktun um áætlun í byggðamálum 2018-2024
Málsnúmer 201803057
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir drög að tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018 til 2024. Frestur til að skila inn umsögnum er til 21.mars gegnum samráðsgátt. Byggðaáætlun setur fram þrjú markmið, að jafna aðgengi að þjónustu, að jafna tækifæri til atvinnu og stuðala að sjálfbærri þróun byggðar um allt land.
Lagt fram til kynningar.
5.
Útboð Vöruhús endurbætur 2018 2. áfangi.
Málsnúmer 201803030
Umsjónarmaður fasteigna leggur fram gögn vegna endurbóta Hafnarbrautar 30.
Bæjarráð heimilar útboð 2. áfanga Hafnarbraut 30 Vöruhús samkvæmt framlögðum gögnum.
6.
Endurbætur Ráðhúsi 2018
Málsnúmer 201801093
Lagðar fram hugmyndir um breytingar innahús í ráðhúsinu til að bæta aðstöðu til fundarhalds og fjölga skrifstofurýmum.
Bæjarráði líst vel á framlagðar hugmyndir og felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu.
7.
Lóðarumsókn: Miðós 6 og 8
Málsnúmer 201801102
Á fundi bæjarráðs 849 var skipulagsstjóra falið að skoða málið frekar.
Athugun sú sem bæjarráð óskaði eftir sýnir að mögulegt er að útbúa lóðir á athafnasvæði AT3 við Drápskletta og úthluta þeim. Þetta svæði var sett í aðalskipulag vegna óska um lóðir undir gagnaver. Bæjarráð telur að starfsemi gagnavers eigi frekar heima á þessu svæði heldur en í Óslandi í nábýli við fólkvanginn og fyrirhugaða starfsemi tengda ferðaþjónustu. Bæjarráð hafnar því umsókn um lóðir við Miðós 6 og 8 og bendir umsækjendum á AT3 við Drápskletta.
8.
Stöðuleyfisumsókn: Sölubás á móts við Gömlubúð
Málsnúmer 201803048
Erindi Dyngja Travel ehf dagsett 14. mars. Ósk um stöðuleyfi fyrir kofa/hús á svæðinu móti Gömlubúð.
Bæjarráð samþykkir umsókn um staðsetningu kofa/húss og vísar málinu til afgreiðslu byggingafulltrúa. Staðsetning á reitnum verði ákveðin í samráði við byggingafulltrúa út frá umferðaröryggi.
9.
Bygging íbúða: Borgartúni Hofi Öræfum
Málsnúmer 201802048
Bæjarstjóri fór yfir stöðuna og vinnu frá því málið var síðast rætt í bæjarráði.
Bæjarstjóri upplýsti um óformlegar viðræður við verktaka á svæðinu um byggingu íbúðarhúsnæðis að Hofi sem yrði tilbúið í lok árs 2018. Mikael ehf. er tilbúið til samstarfs á þessum forsendum. Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að vinna drög að samningi og kostanaðaráætlun og leggja fyrir bæjarráð.
10.
Ályktun um líkhús og kapellu
Málsnúmer 201803049
Erindi frá Hafnarsókn dagsett 15. mars.
Bæjarráð upplýsir að í vinnu við undirbúning byggingu nýs hjúkrunarheimilis er gert ráð fyrir líkhúsi og kapellu.
11.
Styrkvegir 2018: umsókn um styrk
Málsnúmer 201803045
Styrkvegir samkvæmt vegalögum nr. 80/2007 er heimilt að ákveða fjárveitingu í vegaáætlun til að styrkja tiltekna samgönguleiðir sem ekki falla undir skilgreiningu vega skv. lögunum. Umsóknarfrestur fyrir árið 2018 er til 15. apríl.http://www.vegagerdin.is/thjonusta/styrkvegir/
Bæjarstjóra falið að senda inn umsókn.
12.
Umsóknir um framlög til eflingar tónlistarnámi
Málsnúmer 201803055
Erindi Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis dagsett 14. mars. Ósk um upplýsingar frá sveitarfélaginu vegna framlaga til eflingar tónlistarnáms.
Bæjarráð felur fræðslustjóra að svara erindinu.
13.
Nordjobb sumarstörf 2018
Málsnúmer 201803036
Nordjobb sumarstarf 2018 samnorrænt verkefni sem útvegar ungu fólki á aldrinum 18 til 30 ára sumarvinnu og húsnæði á hinum Norðurlöndunum.
Lagt fram til kynningar.